Ægir - 01.09.2013, Side 47
47
næmisvaldandi efni þannig
að eftir stendur prótein stoð-
grind og Omega3 fitusýrur.
Sárastoðefni Kerecis er notað
við að meðhöndla þrálát sár
sem koma oft í kjölfar lang-
vinnrar sykursýki, t.d. þar
sem blóðflæði er skert til
fóta. Sárastoðefnið hefur ver-
ið notað á yfir 200 sjúklinga
hérlendis með góðum ár-
angri. Ef ekkert er að gert
geta þrálát sár leitt til aflim-
unar en í Bandaríkjunum eru
um 100.000 aflimanir fram-
kæmdar á ári í tengslum við
þrálát sár.“
Fyrirtækið framleiðir einn-
ig krem sem virkar vel á
harða húð á fótum, krem fyrir
psoriasissjúklinga, krem fyrir
exemissjúklinga auk þess
sem fyrirtækið framleiðir
krem sem er gott til að fjar-
lægja húðnabba sem inngróin
hár valda.
Ensím gegn kvefi
Zymetech ehf. var stofnað ár-
ið 1996 í tengslum við rann-
sóknir á ensímum úr þorski.
Fyrirtækið leggur áherslu á
rannsóknir, þróun og fram-
leiðslu á snyrtivörum og
lækningavörum úr þorskaen-
símum við örverusýkingum,
húðvandamálum og sára-
græðingu.
Fyrstu lyflækningatæki
Zymetech eru komin á mark-
að í Svíþjóð en snyrtivörur
fyrirtækisins hafa verið á
markaði hérlendis og erlendis
frá árinu 2000. Margar nýjar
vörur eru í pípunum.
Ágústa Guðmundsdóttir
rannsóknastjóri kynnti á
fundinum nýjustu afurð fyrir-
tækisins sem er munnúði
gegn kvefi, ColdZyme. Uppi-
staða þess er efnablanda með
ensími úr þorskslógi sem ger-
ir kvefveirurnar óvirkar. „Ens-
ímin brjóta niður prótein á yf-
irborði veira sem valda kvefi
og gera þær óvirkar þannig
að þær geta ekki lengur
bundist við frumur sem þær
myndu annars sýkja.“
Ágústa sagði að að baki
vörunni liggi átta ára rann-
sóknarvinna í samstarfi við
sænskt líftæknifyrirtæki.
Aukaafurðirnar í fiskvinnslu
eru verðmætar
Dr. Sigrún Mjöll Halldórsdótt-
ir, verkefnastjóri hjá Matís,
sagði frá samvinnu Matís og
tveggja íslenskra fyrirtækja,
MPF Ísland og Iceprotein.
„Samvinnan hefur verið
fólgin í því að þróa og setja
upp ferla sem miða að því að
nýta prótein úr aukaafurðum
fiskvinnslu sem annars yrði
hent eða nýtt í fiskimjöl. Til
þess hafa verið notaðar tvær
aðferðir. Í fyrsta lagi er það
sýrubasameðhöndlun sem
byggist á því að leysa upp
próteinin og aðgreina þau
þannig frá öðrum hluta auka-
afurðanna. Afurðin sem fæst
er próteinmassi sem má nýta
í vörur eins og fiskibollur.
Hin aðferðin sem við er-
um að nota er ensímtækni en
þá notum við ensím til að
brjóta niður prótein í smærri
einingar sem nefnast peptíð
sem hafa heilsusamleg áhrif í
líkamanum umfram hefð-
bundið næringargildi t.d.
blóðþrýstingslækkandi áhrif,
kólesteróllæknandi áhrif og
andoxunarvirkni. Þau hafa
möguleika á að vera inni-
haldsefni í fæðubótarefni og
markfæði.“
Sigrún Mjöll sagði að víða
um heim væri þránun í fiskaf-
urðum vandamál þar sem í
þeim eru efni sem hvetja til
þránunar auk þess sem að-
stæður við framleiðslu á
peptíðum eru harðneskjuleg-
ar sem hvetja til þránunar.
„Þránunin veldur vondri lykt
og bragði, minnkuðu næring-
argildi og styttra geymsluþoli.
N Ý S K Ö P U N Í S J Á V A R Ú T V E G I