Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Blaðsíða 36

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Blaðsíða 36
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR dýfir kvöldrauðri hendi í óslygna ána niður við Akkeron. Ég er einmana, Virilíus. Hvar er þitt stundvísa auga og hvar er varkár röddin sem gat látið efnahagsreikninga hljóma eins og Hómer og Hómer sem reikninga? Eða hnitmiðun hreyfinganna, ástúðlegur hlátur þinn og hátíðaskapið fræga? Horfið úr þessum heimi. Þú varst málsnilldin sjálf, Virilíus. Þú útskýrðir allt fyrir mér, jafnvel guðina sem er þó svo erfitt að skilja. Þú skrifaðir nöfn þeirra í sjötíu dálka. 0, dásamlega skrautskrift! Horfið úr heimi, að fullu og öllu. Og ég kenndi þér á viðkvæmum stundum að virða mig og meta. Þú sagðir ég væri samstillt, Virilíus, fagurmótuð og samræm, svolítið móðurleg lóa, og brúðan þín litla. Og þá gekk ég um gólf hátíðleg og hrifin og ljómaði öll eins og sólskin. Sköpunin er óður járnsmiður sem blæs i aflinn unz stjörnurnar stökkva til himins og járn tímans er rautt og stjórnmálamenn hvítglóandi og rætur og laukar snarka og sandurinn þyrlast um ljónið öskrandi gult, og höfin fyllast af hnísum, hundfiskum, löngum og blindfiskum sem vart eru til; það blæðir úr strjúpum og snilldarverk birtast, byltingum og ríkjum er lireytt út í vindinn — og allt er horfið ineð Virilíusi einum, sem klæddist embættiskyrtli og aðgætti auradálkinn um leið og hann hvarf. Hvar er nú fjör, og hver vill ganga í dansinn? Brostið er auga hins eineygða heims. Hún grœtur. DÓTÓ. Ég ætla að reyna að syrgja svolítið líka. Það tæki víst drjúgan tima að læra að syrgja hátt og lengi. Ég vildi ég gæti hugsað um þessa pilta án þess að fara að hlæja. Ég er alveg vonlaus. Ég gaf reyndar ágæta skó 26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.