Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Page 73

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Page 73
Á páskum 1954 og það eru þá líka fyrst og fremst vopn, sem í norrænum gröfum finn- ast. Já, um allar jarðir var þvi trúað, að um einhvers konar f.amhaldslíf væri að ræða, en jafnan var sú trú býsna jarðbundin. En svo kom Jesús fram, og boðaði æðri sjónarmið en rnenn höfðu áður þekkl Lærisveina sína bjó hann undir það, að leggja á lífið æðri og andlegri mælikvarða en áður hafði verið gert. Hann kenndi þeim að allt sem við ber skuli nreta eftir því eilífðargildi sem það Jiafi. Og fyrst og fremst skuli þó nræla lífið sjálft á þennan mælikvarða. Og Jesús sjálfur lét líf sitt fvrir sjónum lærisveina sinna, það var ekkert vafamál, að hann var látinn, þeir þurftu ekki annarra sögusagna um það, þar var um það mál að ræða, sem ekki varð efazt um. En svo sjá þeir hann allt í einu aftur, ekki aðeins einn þeirra, þannig að hugsanlegt sé að um skynvillu sé að ræða, nei, þeir eru allir saman, og þeir sjá hann allir. Og það er þó enn meira sem gerist, þeir ekki aðeins sjá hann, heldur og tala við hann, þeir meira að segja þreifa á honum. Þess er jafnvel getið að þeir hafi þreifað á nýlegum sárum hans, til þess að ganga sem bezt úr skugga um að ekki gæti verið um neina skynvillu að ræða. Nei, það varð ekki um það efazt að Jesús var upprisinn. Fyrir honum var vissu- lega um framhaldslíf að ræða. En það virðist svo, sem snemma hafi farið að bóla á því innan kristninnar, að Jesús væri annars eðlis en aðrir menn. Við könnumst nú vel við þá kenningu, og við erum því vön að hún sé sett í sam- band við getnað hans og fæðingu. Þess verður nú ekki vart að frum- kristnin hafí verið í neinum vanda stödd hvað þessa hluti snertir, enda er fremur ólíklegt að t. d. söfnuðir þeir sem Páll postuli stofnaði, hafi haft nukkrar spurnir af þessum undarlegu kenningum um uppruna Jesú. En það er þá Hka einmitt í sambandi við upp- risuna að efasemdirnar koma fram. Jú menn vissu það að Jesús hafði sigr- azt á dauðanum, en var það ekki vegna þess, að hann hafði verið ann- ars eðlis en aðrir menn? Það er þetta, sem þeir eru bersýnilega að velta fyrir sér, hinir kristnu menn í Korintuborg. Þeim finnst það svo óvenjulegt, þetta sem gerzt hefur í sambandi við upp- risu Jesú, að þeir eiga erfitt með að koma því fyrir innan hins þekkta ramma mannlegs lífs. Og ef það ekki kemst fyrir innan hans, þá er að leita útfyrir það mannlega. Þeir eru líka upp aldir í þeim hugarheimi, þar sem svo að segja jöfnum höndum var gert ráð fyrir mönnum sem væru almann- legir í allar ættir, og svo öðrum, sem væru goðkynjaðir að meira eða minna leyti. Nei, það var ekki að undra, þó mönnum sem aldir voru upp í grískum hugarheimi, gæti komið það til hugar að Jesús ætti sér annað eðli en aðrir menn. En þegar svo til kem- 63
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.