Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Page 88

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Page 88
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR dagsins — Hús dagsins þessa dimniu nótt — íJú ert liús dagsins, himinn og jörð. LjóSið kliðar af hógværum stuðlum og mjúkum hendingum, og allt snið bragsins, svipur hans og fas ljómar af bjartsýni — heiðríkri og öruggri bjart- sýni: Flýgur eldurinn til annnrra skóga í augum fuglanna, kveikir græn ljós í greinum, Alltof mörgum íslenzkum skáldum hefur hætt til þeirrar fásinnu að binda í kvæði sín þá túlkun, sein þeim sjálfum kann að vera mest í mun að koma á framfæri. Það er að jafnaði ömurlegt að horfa uppá kvæði taka til að útlista sjálft sig, og það jafnvel kvæði sem annars gæti verið gott. En auk þess er vís- ast að túlkunin sé röng, því allar líkur standa til að slík „innbyggð“ útskýring nái of skammt eða sé of einhliða, ef kvæðið er á annað borð nokkur skáldskap- ur. Það er að vísu hastarlegt að bera fólki á brýn að það skilji ekki sín eigin kvæði, en því miður eru alltof mörg dæmi þess að höfundur misþyrmi kvæði sínu vegna þess að hann treystir ekki sinum eigin skáldskap, eða hann bindur það af öðrum ástæðum of fast við sín einkasjónarmið og sviptir það á þann hátt almennu gildi. Ekkert slíkt gat hvarflað að svo þroskuðum listamanni sem Snorra Hjartarsyni. Og þessvegna höfum við hvert og eitt, sem lesum ljóðið Dans, túlkun þess í hendi okkar; ekkert er því til hindrunar að við gerum það að okkar eigin eign, hversu ólík sem við erum og hvað svo sem okkur kann að bera á milli. Hver sem á annað borð á sér einhverja von, háleita trú eða göf- uga hugsjón, hlýtur að fyllast fögnuði við lestur þessa yndislega ljóðs. Ég fletti blaði; og þarna er smáljóð, ein ferhenda, Þrá mín var ung, sannkölluð ger- semi, ein hin fegursta í íslenzkum nútímaljóðum, þetta undarlega tvihvarf fagnaðar og trega; hin unga þrá bjó í draumi skáldsins og heillaði álengdar með sínu ósnortna yndi; og nú er hnossið höndlað — keypt við unaði draums- ins! Hver er þessi þrá? Því ráðum við livert og eitt, sem höfum þegið af skáld- inu þetta ljóð: Þrá mín var ung og hló í tærum hyljum hafmey í hlænum, dansmey í laufskála vorsins. Nú býr hún hjá mér, þögnin vakir þar sem þaut í skógum. Það er útaf fyrir sig gaman að hyggja að hrynjandinni í þessuni fjórum ljóð- línum. Þrjár þeirra eru raunár fimm-jamba-línur, en þó með því fráviki að í 78
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.