Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Blaðsíða 10
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
stæði þjóðarinnar sviku þeir og hófu
samvinnu við heimsvaldasinna. Boð-
skap hans um að bera hag bænda og
verkamanna fyrir brjósti sviku þeir
og hófu í þess stað að myrða verka-
menn og bændur. Þeirri stefnu hans,
að hafa samvinnu við kommúnista,
var snúið við og hafin gjöreyðingar-
herferð á hendur þeim og samtök
þeirra bönnuð að viðlagðri dauða-
refsingu. Þeirri stefnu hans, að gera
bandalag við Sovétríkin, var snúið
upp í hatursfulla úlfúð í garð Sovét-
ríkjanna. Meðal leiðtoga Kuomin-
tangs var það aðeins ekkja Sun Jat-
sens, Soong Sjing Ling og fáeinir aðr-
ir sem hvergi hvikuðu frá hugsjónum
Sun Jat-sens, enda urðu þau að flýja
land.
Sjang Kæ-sjek, sem nú hafði fengið
öll völdin í hendur, varð sannur arf-
taki keisarastjórnarinnar, Juan Shi-
Kæs og hershöfðingjanna. Hann varð
bandamaður og leppur heimsvalda-
sinna og kínverskra auðstétta í borg
og sveit. Borgarastéttin fékk ekki þau
pólitísku hlunnindi sem hún hafði
gert sér vonir um. Hún varð sama
hornrekan og á tímum keisarastjórn-
arinnar. Og alþýða manna var beitt
meiri kúgun en nokkru sinni fyrr.
Styrjöldin við Jopan
Ósigri byltingarinnar 1925—27
fylgdi Sjang Kæ-sjek eftir með hrylli-
legum fjöldamorðum. Á aðeins
tveggja ára tímabili, 1927—29, lét
hann myrða um 450 þúsund komm-
únista, verkamenn, bændur, stúdenta
og menntamenn; og á áratugnum
1927—36 losaði tala fórnardýranna
milljónina, að frátöldum þeim sem
féllu í bardögum við hermenn hans.
Hinsvegar urðu byltingaröflin ekki
sigruð. Og brátt fylktu þau liði að
nýju undir forystu kommúnista.
„Kommúnistar höfðu ekki látið
hugfallast, látið bugast, látið tortíma
sér,“ eins og Mao Tse-tung komst að
orði löngu síðar. „Þeir risu upp aftur,
þurrkuðu af sér blóðið, grófu fallna
félaga sína, og héldu áfram að berj-
ast.“
1. ágúst 1927 er talinn stofndagur
Kínverska Rauða-bersins, því þann
dag fylktu Sjá En-læ, Sjú Teh og fleiri
leiðtogar kommúnista 30 þúsund
manna liði gegn andbyltingarhernum
í Kiangsi-fylki. Nokkrum mánuðum
síðar höfðu byltingarmenn sett þar
upp bækistöðvar sínar. Innan tveggja
ára höfðu þeir 19 slíkar bækistöðvar
í austur-, mið-, suður-, vestur- og
norðvestur-hluta Kína. Miðstjóm
verkamanna og bænda starfaði í Jui-
sjin í Kiangsi-fylki. Upp frá því var
byltingarstjórn ævinlega við völd í
einhverjum hluta Kína, — fram á
þann dag er Kínverska alþýðulýðveld-
ið var formlega stofnað.
En það verður of langt mál að
rekja sögu borgarastyrjaldarinnar í
Kína lið fyrir lið. Þess má aðeins
geta, að á árunum 1930—34 sendi
168