Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Blaðsíða 44
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
JÓNMUNDUR, lekur skrej til Loka: — Hverjum kemur við hvað ég á eða á
ekki.
SKELEGGUR, horfir fram: — Skipasmíðastöðin mín í Noregi er einkamál.
jÓnmundur: — Má ekki Skeli eiga einkamál eins og Pétur eða Páll?
skeleggur, tekur skref til Loka: — Hver er líka þessi Pétur og þessi Páll?
jÓnmundur, kerrtur: — Vel á minnzt: hver er þessi Pétur og þessi Páll?
SKELEGGUR: — Páll étur vitleysurnar upp eftir Pétri.
jÓnmundur: — Pétur tyggur upp þvaðrið úr honum Páli.
SKELEGGUR: — Sameiginlega eru þeir vitlausari en sitt í hvoru lagi.
jónmundur: — Samkvæmt kenningunni um múgsefjun.
SKELEGGUR, við Jónmund: — Og ef Jón bætist nú í hópinn.
jónmundur: — Ég segi nú ekki margt.
skeleggur: — Það tekur engu tali!
JÓNMUNDUR: — Þeir hafa enga stefnu.
SKELEGGUR: — Bara hjartalag.
jónmundur: — Mannsæmandi líf er skilyrði fyrir velmegun.
skeleggur: — Mannsæmandi líf er skilyrði fyrir velmegun.
báðir, fram í salinn, hátt: — Okkur er alvara.
skeleggur, við Loka: — Og hvað eruð þér að fara með þessu grufli?
jónmundur, við Loka: — Hvað eruð þér að meina með þessum söngvum?
skeleggur: — Þér sáið óánægju ...
JÓNMUNDUR: — Þér plantið efa .. .
Skeleggur: —... með þessu grufli ...
JÓNMUNDUR: — ... með þessum söngvum .. .
skeleggur : — ... valdið þér róti.
JÓNMUNDUR: — Við viljum hafa frið í samvizkunni.
SKELEGGUR: — Við viljum hafa frið í samvizkunni.
JÓNMUNDUR, með fingur á tofti: — En sjórinn var ekki sléttur fyrir.
SKELEGGUR, við Jónmund: — Sjórinn var úfinn.
jónmundur: — Holskeflurnar ...
skeleggur: — Brotsjóirnir ...
JÓNMUNDUR: — ... buldu á strandlengjunni.
SKELEGGUR: — ... á herðum okkar.
JÓNMUNDUR: — Okkur langar til að benda yður á eitt.
skeleggur: — Við viljum sýna yður fram á nokkuð.
jónmundur: — Við erum senterar í sífellt framlengdum fótboltaleik.
skeleggur : — Alþýðan er hinumegin.
202