Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Blaðsíða 22
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
sem við reyndum að hafa áhrif á en
gátum ekki.“
En það sýnir vel hvert það „lýð-
ræði“ er, sem Bandaríkjamenn berj-
ast fyrir, að jafnvel þótt þeir neydd-
ust til að beygja sig fyrir úrslitunum
í Kina, héldu þeir því enn til streitu á
opinberum vettvangi, að Sjang Kæ-
sjek-stjórnin væri réttkjörin stjórn
Kína og kröfðust þess að fulltrúi
hennar héldi sæti sínu á þingi Sam-
einuðu þjóðanna. Og þetta eiga þeir
við þegar þeir tala um sjálfsákvörð-
unarrétt þjóða: Vegna þess að kín-
verska þjóðin afneitaði Sjang Kæ-
sjek-stjórninni og hrakti hana úr
landi, þá er meginland Kína ekki leng-
ur til sem ríki og þjóð, en kotríkið
Formósa fær stórveldisnafnbót og
eyjarskeggjar (sem eru ekki Kínverj-
ar) eru kallaðir sannir og þjóðhollir
Kínverjar, — sjálfsákvörðunarréttur
þjóða merkir sem sé á bandarísku:
ákvörðunarrétt Bandaríkjanna fyrir
allar aðrar þjóðir, og það eitt.
En víkjum að lokum til Formósu,
sem nú er talin hluti hins „frjálsa
heims“ af því Sjang Kæ-sjek-stjórnin
situr þar í skjóli Bandaríkjanna.
Wedemeyer hershöfðingi sendir
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
skýrslu frá Kína 17. ágúst 1947 og
segir:
„Reynsla okkar á Formósu er mjög
fróðleg. Stjórnaraðferðir Sjen Jis
fyrrverandi landstjóra hafa gert eyj-
arskeggja andvíga stjórninni. Kuo-
mintang-stjórnin missti þarna gull-
vægt tækifæri til að gefa Kínverjum
og öllum heiminum í skyn með sann-
færandi hætti, að hún væri fær um að
stjórna með heiðarleik og röggsemi.
Ilún getur ekki skellt skuldinni á
kommúnista eða önnur henni andstæð
öfl. Eyjarskeggjar fögnuðu af alhug
þegar þeir losnuðu undan oki Japana.
En Sjen Ji og klíka hans færðu þetta
hamingjusama og gæflynda fólk í
fjötra samvizkulausrar og fégráðugr-
ar ofríkisstjórnar. Herinn hegðaði sér
eins og sigurvegari andspænis slegn-
um lýð. Leynilögreglan vann opin-
skátt að því að skipuleggja og tryggja
landstjórnarmeðlimunum aðstöðu til
arðráns .. . Heyrzt hafði að Formósu-
búar væru ekki mótfallnir því að
njóta vemdar Bandaríkjanna og
verndargæzlu Sameinuðu þjóðanna.
Nú óttast þeir að landstjórnin ætli
sér að mergsjúga þjóðina til styrktar
hinni skjögrandi og gjörspilltu Nan-
kingstjórn og ég held að ótti þeirra
sé á rökum reistur (U. S. relations,
síðu 309).
Síðan segir í beinu framhaldi af
skýrslunni (sama bók, sama síða):
„í janúar 1949, þegar kommúnist-
ar undirbjuggu sóknina yfir Jangtse-
fljótið, var Wei landstjóra vikið frá
störfum og Sjen Sjeng tók við og hélt
áfram að treysta einræði hersins. Á
síðustu mánuðum hefur íbúatala For-
mósu aukizt um á að gizka 400 þús-
und óbreytta borgara og rúmlega
180