Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Blaðsíða 9
SAGA VESTRÆNNAR ÍHLUTUNAR í KÍNA
legri tilskipan hans hófu hersveitir
undir stjórn liðsforingja úr hægra
armi Kuomintangs svipuð fjöldamorð
í Nanking, í Kanton og meðal bænda
í sveitunum. Upp frá því heyrðist
aldrei minnzt á úrslitakostina er stór-
veldin höfðu sent eftir atburðina í
Nanking 24. marz. Frá þeirri stund
sem Sjang Kæ-sjek varð svikari og
böðull þjóðar sinnar, varð hann
,,hetja“ auðvaldsblaðanna um allan
heim.
18. apríl, skömmu eftir fjöldamorð-
in, kom Sjang á laggirnar í Nanking
„stjórn þjóðernissinna“ sem skipuð
var stjórnmálamönnum og liðsfor-
ingjum úr hægra armi Kuomintangs.
Þetta var valdarán og uppreisn gegn
þjóðernis-byltingarstjórninni í Wu-
han, sem Sjang Kæ-sjek hafði svarið
hollustu. Það er því með fjöldamorð-
um og drottinsvikum, með aðstoð
heimsvaldasinna og ópíumsmyglara
og hinnar ólöglegu ríkisstjórnar í
Nanking sem Sjang Kæ-sjek-klíkan
öðlast „réttindi sem lögmæt ríkis-
stjórn Kína“, — en þau „réttindi“ eru
aftur notuð af bandarískum stuðn-
ingsmönnum hennar sem röksemd
fyrir setu fulltrúa hennar á þingi
Sameinuðu þjóðanna.
Samsteypustjórn byltingarmanna í
Wuhan hélt áfram störfum í þrjá
mánuði eftir liðhlaup Sjang Kæ-
sjeks. í henni áttu nú sæti vinstri arm-
ur Kuomintangs, sem var fulltrúi
miðstétta og smáborgara, og komm-
únislar, sem voru fulltrúar bænda og
verkamanna. Wuhan-stjórnin svipti
Sjang Kæ-sjek umboði sinu, en hann
svaraði með því að reyna að einangra
borgina. Baráttuhugur bænda og
verkamanna á umráðasvæði Wuhan-
stjórnarinnar hafði sjaldan verið
meiri en nú, og þeir kröfðust þess að
fá vopn í hendur. En sæði uppgjafar-
innar innan Kuomintangs hélt áfram
að skjóta frjóöngum.
15. júlí sigldu 36 erlend herskip
upp Jangtse-fljótið og vörpuðu akker-
um við Wuhan. „Vinstri-armur“ Kuo-
mintangs, undir forystu Wang Sjing-
Wei, hugðist þá „bjarga“ því sem
bjargað yrði og hóf fjöldamorð á
bændum, verkamönnum, stúdentum,
en einkum kommúnistum. Blóðbaðið
varð jafnvel enn hryllilegra en í slát-
urtíð Sjangs í Shanghæ. Svo ofboðs-
legt var hatur afturhaldsaflanna, svo
taumlaus ástríða þeirra til að „kenna
hyskinu mannasiði“, strax og færi
gafst, að hundruð kerrudragara voru
miskunnarlaust skotnir niður á stræt-
um borgarinnar. Þann eina glæp
höfðu þeir drýgt: að dirfast að stofna
með sér stéttarfélag meðan á bylting-
unni stóð.
Þannig sundraðist Wuhan-stjórn-
in. 011 völd komust í hendur „þjóð-
ernissinna“-stjómar Sjang Kæ-sjeks í
Nanking. Leiðtogar Kuomintang-
flokksins höfðu nú svikið stefnu Sun
Jat-sens í öllum atriðum. Boðskap
hans um að barizt skyldi fyrir sjálf-
167