Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Blaðsíða 15
SAGA VESTRÆNNAR IHLUTUNAR I KINA
hið mikla landflæmi sem kommúnist-
ar eiga ítök í.
„Þessi andspyrna er möguleg og á-
rangursrík vegna þess að hún er í
jormi miskunnarlauss skœruhernaðar
sem öll alþýða manna tekur öflugan
þátt í. Hinar eiginlegu hersveitir
kommúnista eru aöeins lítill hluti
þessa alþýðuhers, þó að þeir hafi
stjórn hans og skipulagningu á hendi.
Þær eiga tilveru sína því að þakka, að
fólkið umber þær, styður þær og berst
einhuga með þeim. Það ríkir fullkom-
in eining milli hersins og alþýðunnar.
„Þessi allsherjar herkvaðning
byggist á því, og er þess vegna mögu-
leg, að einskonar bylting hefur átt sér
stað sem bceði er félagsleg, pólitísk og
efnahagsleg. Þessi bylting er hófsam-
leg og lýðræðisleg. Hún hefur bætt
fjárhagsaðstöðu bændanna með lækk-
un landskulda, fækkun tolla og góðri
stjórn. Hún hefur veitt þeim lýðræð-
islega sjálfstjórn og vakið pólitíska
meðvitund þeirra og réttlætiskennd.
Hún hefur leyst þá úr fjötrum léns-
skipulagsins og veitt þeim sjálfsvirð-
ingu, sjálfstraust og sterka tilfinningu
fyrir hag heildarinnar. Kínverskri al-
þýðu hefur í fyrsta skipti verið gefið
eitthvað til að berjast fyrir.
„Nú er ekki barizt gegn Japönum
fyrst og fremst vegna þess að þeir séu
erlendir innrásarseggir, heldur vegna
þess að þeir afneita þessari byltingu.
Fólkið mun halda áfram að berjast
gegn hverri þeirri ríkisstjórn sem
skerðir eða rænir það þessum nýju
ávinningum.“
7. nóv. 1944:
„... Kommúnistar hafa staðið af
sér tíu ára borgarastyrjöld og sjö ára
framsókn Japana. Þeir hafa ekki ein-
ungis staðið af sér þyngri sóknar-
hryðjur óvinanna en herir kínversku
stjórnarinnar hafa orðið að þola,
heldur einnig hið algera umsátur er
Sjang Kæ-sjek hefur fyrirskipað.
„Þeir hafa lifað það af og þeir hafa
vaxið að styrkleika. Síðan 1937 hefur
vöxtur þeirra lotið næstum stærð-
fræðilegum Iögmálum. Frá því að
ráða yfir um 100 þúsund ferkílómetr-
um með hálfri annarri milljón íbúa,
hafa þeir aukið veldi sitt upp í 850
þúsund ferkílómetra með um það bil
90 milljónum íbúa. Og þeir munu
halda áfram að eflast.
„Astæðan fyrir þessum ótrúlega
lífsþrótti og styrk er einföld, en hún
ræður líka úrslitum. Hún er stuðning-
ur fjöldans, þátttaka almennings.
Kommúnistastjórnin og herir hennar
eru fyrsta ríkisstjórnin og stjórnar-
herirnir í kínverskri nútíðarsögu, sem
njóta almenns og eindregins fylgis.
Þeir njóta þessa stuðnings vegna þess
að stjórnarvöldin og herinn heyra al-
gerlega til fólkinu sjálfu.“
20. júní 1944:
„Aðstaða Kuomintangs og general-
issimósins (Sjang Kœ-sjeks) er veik-
ari en hún hefur nokkru sinni verið
síðastliðin tíu ár. Fjárhagshrun vofir
173