Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Page 41

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Page 41
DÓMSMÁLARÁÐHERRANN SEFUR SKELECCUR, gengur hratt tilhœgri: — Kjaftæði! Yfirheyrslan er rétt að byrja. LOKi: — Þetta er mín málamiðlun: ég mundi vilja fá að klífa aftur niður tréð. skeleggur: — Við verðum að fylgja réttarreglunum. Hann gengur ajtur til vinstri. Þér komuð inn í herbergi ? loki: — Undir súð. SKELEGGUR: — Teppalagt herbergi. loki: — Einmitt. Og sóffi í horninu. SKELEGGUR, gengur ajtur til hœgri: — Svefnsóffi? loki: — Svefnsóffi. Skeleggur: — Umbúinn eða auður? LOKi: — Umbúinn. jónmundur, við Skelegg: — Stemmir það? SKELEGGUR, horfir jram: — Það stemmir. Hann gengur nœr Jónmundi. Það er sóffinn hennar Iðu. Grimmur, við Loka. Hvað sáuð þér fleira? loki, snýr sér til hœgri: — Ekkert. skeleggur: — Þér ljúgið. loki, sýpur á glasinu: — Ekkert sem máli skiptir. SKELEGGUR: — Allt skiptir einhverju. LOKI, snýr sér að honum, sakleysislega: — Það var flygill í herberginu innar af. SKELEGGUR: — Og við flygilinn? LOKI, hneigir sig: — Ég bið forláts. skeleggur: — Þér haugaljúgið. LOKI, snýr sér til hœgri: — Hitt er einkamál. SKELEGGUR, snýr til vinstri: — Dóttir mín er þó dóttir mín. jónmundur, gengur til Skeleggs með jramrétta hörnl: — Til hamingju með tengdasoninn. skeleggur, gengur til hœgri: — Hann lýgur. Iða mín er sama sem trúlofuð. JÓNMUNDUR, horjir fram: — Sama sem trúlofuð, he, he, he! Loki gengur að barnum. SKELEGGUR, horfir fram: — Hann er á þotu. JÓnmundur: — Þessu trúi ég! SKELEGGUR: — Hún flaug með honum til Miama í sumar. Loki hellir kokteil í glasið. skeleggur: — Foreldrar piltsins ætla að heimsækja okkur að sumri. JÓNMUNDUR: — í þotu? He, he, he. SKELEGGUR: — Þú hlærð? 199

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.