Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Blaðsíða 60
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
að lýsa hlutunum eins og þeir horfa
við frá íslenzku sjónarmiði. Þýðand-
inn hefur þekkt hugmyndir íslenzkra
œttfræðinga á 12. öld um uppruna
þjóðarinnar og lagt á þær fullan trún-
að. Landfræðiritinu og íslendinga-
bók ber saman um það, að Grænland
hafi byggzt af íslandi og ísland úr
Noregi, en landfræðiritið hefur hitt
fram yfir bók Ara, að ferill þjóðar-
innar er þar rakinn einu skrefi lengra
aftur í tímann. Ekki verður fullyrt,
hvort þýðandi landfræðiritsins hefur
í huga uppruna íslendinga einvörð-
ungu eða orð hans eigi að skiljast á
þá lund, að Noregur hafi byggzt allur
frá Svíþjóð. Hitt leynir sér ekki, að
þjóðflutningar þessir hljóta að varða
sögu vora fremur en Norðmanna.
Þýðandi notar íslenzkar arfsagnir, en
ekki norskar. AS vísu koma fram
svipaðar hugmyndir í fornnorskum
kveðskap (Ynglingatali, en þar er um
að ræða fróðleik, sem heyröi til hin-
um íslenzka ættstofni, þótt höfundur
kvæðisins væri norskur og kvæði um
norskan konung.
Sú vitneskja, sem ráðin verður af
Landnámu um forsögu þjóöarinnar,
bendir eindregið í þá átt, að íslenzkir
höfðingjar hafa verið taldir sænsks
uppruna að verulegu leyti. Landnáma
nefnir um það bil fjögur hundruö
landnámsmenn, en ættir fæstra þeirra
eru raktar langt aftur. Um marga
íandnámsmenn er það látið nægja að
geta um nöfn þeirra. Stundum eru
feðranöfnin látin fljóta með, en sjald-
an eru ættir raktar lengra aftur. En
þegar slíkt er gert, eru þær oft settar
í samband við danska eða sænska
fornkonunga. AS sjálfsögðu er ekki
hægt að leggja bókstaflegan trúnað á
slíkar ættfærslur, en hitt er engu síð-
ur ástæÖulaust að vísa þeim algerlega
á bug. ASalatriðið er, að á 12. öld
hafa margar höfðingjaættir landsins
verið taldar af austrænum toga spunn-
ar. Hér ber því allt að sama brunni.
Ari fróði og samtímamenn hans töldu
íslendinga vera komna að mestu leyti
frá Noregi, en þegar ferill forfeðr-
anna er rakinn langt aftur í tímann,
liggur slóðin austur til Svíþjóðar eða
Danmerkur.
Af fornum ættartölum má hér
minna á nokkrar. Ég hef þegar getið
þess, að Ari rekur ættir sínar til Yngl-
inga. Ingólfur Arnarson er talinn vera
kominn af Hrómundi Gripssyni, kon-
ungi í Danmörku. Geirmundur helj-
arskinn er sagður vera sonár-sonur
Hálfs konungs, er réð fyrir Hálfs-
rekkum, en kona Geirmundar sonar-
dóttir Gautreks konungs í Svíþjóð.
A 12. öld munu margir íslenzkir höfð-
ingjar hafa rakiÖ ættir sínar til Ragn-
ars loÖbrókar, og Landnáma getur
þess sérstaklega, að þeir Auðunn
skökull og Höfða-Þórður hafi verið
af honum komnir. Hrafn heimski,
forfaöir Oddaverja, var talinn vera
kominn af Haraldi hilditönn Dana-
konungi, og við þessa skrá má enn
218