Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Page 82
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
og fyrstu árum sínum í Reykjavík, en þá
átti hún um tíma heima hjá frænda sínum
Jóni Árnasyni þjóðsagnaritara og bóka-
verði, en einnig þar hefði maður kosið ýtar-
legri og nákvæmari frásögn.
Halldóra virðist ekki vera sú manngerð,
sem lætur sér miklast í huganum það sem
hún hefur þegar afrekað eða kann að segja
mergjaðar sögur af því hvernig hún hefur
komið sínu fram. Heldur vinnur hún dag-
lega sína smásigra, án þess að finna mjög
til sín, og er með allan hugann við næsta
verkefni.
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson hefur hin síð-
ari ár mjög lagt sig eftir því að rita ævisög-
ur, merkastar þeirra hygg ég séu í bókun-
um sem hann nefnir við sem byggðum þessa
borg. Þær bækur hef ég lesið mér til mikill-
ar ánægju. Þar er stíllinn knappari en á
þessari bók og þar virðast sögumennimir
hafa verið viðráðanlegri.
Ævisögu Halldóru Bjarnadóttur prýða
margar ágætar myndir. Gaman er að bera
saman hinar glæsilegu myndir af Halldóru
ungri og aldraðri. Það er auðséð að þar
fer engin hversdagskona. Halldóra hefur
verið gullfalleg ung stúlka og hafa sam-
tímapiltarnir sjálfsagt mátt um sárt binda
sumir hverjir, en lítið segir af því í þessari
bók.
Jón úr Vör.
MÁL 0 G MENNING
Eins og félagsmönnum er kunnugt komu tvær fyrstu bækur þessa árs út snemma í vor.
Þriðja félagsbókin er nú í prentun og kemur væntanlega út um mánaðamótin sept.-okt.
Það er Þingvellir eftir Björn Þorsteinsson og Þorstein Jósepsson. Bók þessi kemur einnig
út á foriagi Heimskringlu á þrem erlendum málum: dönsku, þýzku og ensku; en í íslenzku
útgáfunni er texti Björns Þorsteinssonar stórum mun lengri en í hinum erlendu þýðingum.
Myndirnar eru hinsvegar þær sömu í báðum útgáfunum.
240