Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Page 23

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Page 23
MÝRIN HEIMA, ÞJÓÐARSKÚTAN OG TUNGLIÐ skynjaði salinn í móðu og þorði hvorki að líta framan í höfðingjana né hinkra við til að hlusta á kverkmæltan ræðuskörung, sem spáði því að kreppulána- sjóður mundi venja bændur af sjálfsbjargarviðleitni. Það bogaði af mér svit- inn þegar þessari hringferð var lokið, enda molluhiti í salnum og andrúms- loftið ólíkt norðankuli í mýrinni heima. Þrjá eða fjóra daga hafði ég ekki við að þerra af mér slíkan embættissvita. Mér fannst ég vera eins og urriðatittur í stórlaxatorfu og hefði helzt kosið að skjótast í felur þegar ráðherrar og þing- menn strikuðu til mín og báðu mig að reka einhver erindi fyrir sig, láta bréf í póst, sækja peninga til ríkisféhirðis, kaupa vindla, sígarettur eða neftóbak, beiskar töflur eða lakkrísspörð. En embættisstörfin reyndust svo auðveld, að sjálfstraust mitt hjarnaði við dag frá degi; og tilhlýðilegur uggaburður í miðri stórlaxatorfunni komst svo fljótt upp í vana, að feimnin þvarr, svitinn minnkaði, hjartað hætti að ólmast eins og í lífsháska. Eftir viku gat ég nafn- greint alla fulltrúana á elztu löggj afarsamkundu í heimi, þekkti þá sundur, vissi nákvæmlega hverjir reyktu og hverjir tóku í nefið, hverjir átu beiskar töflur og hverjir lakkrísspörð. Síðan fór ég að sækjast eftir að hlusta á ræður þeirra og deilur, hvenær sem hlé varð á embættisönnum. Nú kunna einhverjir að halda að sífelld rósemi og blíða hafi drottnað á Al- þingi fyrir röskum aldarfjórðungi, þegar öngvir erlendir herflokkar höfðu hér bækistöðvar og skoðanir stjórnmálamanna voru bundnar við þröngan innan- landsmarkað. Ég man að vísu eftir slíku blíðviðri, lygnum og kyrrlátum fund- um, þegar sérhver ræðuskörungur virtist of mettur og dasaður til að beita sér, en norðlenzkir og sunnlenzkir hagyrðingar hvísluðust á, tóku í nefið og nenntu ekki að skensa hverjir aðra, heldur ortu um konur og reiðhesta. Hitt var þó tíðast að þingmenn deildu af kappi, til dæmis um önnur eins stórmál og gjaldþol ríkissjóðs, sparnað og skattheimtu, nefndir og nefndaskipan, sauðfjárkvilla, grenjaleit og fuglafriðun, vegarspotta á Ströndum, brú á ár- kvísl í Skaftafellssýslu. Stundum urðu þessar deilur svo harðar, að forsetar hringdu bjöllum hvað eftir annað til að lægja öldurnar, en hagyrðingar gerð- ust ýmist þrútnir og níðskældnir eða bleikir og þöglir. Það brást ekki að mönnum hitnaði i hamsi jafnskjótt og minnzt var á þjóð- arskútuna. Sumir kváðust hafa bjargað þjóðarskútunni, þrátt fyrir ábyrgðar- lausa og illvíga stjórnarandstöðu. Aðrir héldu því fram, að þjóðarskútuna ræki óðfluga inn í brimskafl gegndarlausrar eyðslusemi, þar sem fjöregg hennar, krónan, hlyti að brotna, ef ekki væri spyrnt við fótum þegar í stað. Tveir eða þrír bölsýnir öldungar töldu jafnvel hæpið að takast mætti að vernda fjöreggið, því að þjóðarskútan hefði borizt svo langt inn í þennan ólg- 13
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.