Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Síða 28

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Síða 28
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Morguninn eftir skall á mig úrsynningshryðj a þegar ég var að arka inn Hverfisgötu með dagskrá Alþingis, bleytukafald í fyrstu, en síðan rigning. Ég veit ekki hvernig á því stóð, að hryðja þessi gerði mér óðara gramt í geði. Ætlar hann aldrei að stytta upp? sagði ég við sjálfan mig og hvatti sporið. Það endist ekki til kvölds, sagði ég líka og átti við álegubrotið í buxnaskálm- unum mínum. Þegar upp stytti og bleikir geislar tóku allt í einu að fálma um sótuga reykháfa, var mér orðið ljóst að stjórnmálamaður kæmist ekki hjá því að eiga buxur til skiftanna, þrátt fyrir kreppu og gjaldeyrisskort. Einn jakki nægði á þessum erfiðu tímum, jafnvel þótt hann væri í þrengra lagi, tvíhneppt- ur, dálítið snjáður á olbogum og varla hæfilega svartur. Hinsvegar mæddi svo margt á neðri hluta stjórnmálamanns, sem átti eftir að leita kjörfylgis og fest- ast í sessi, að tvennar buxur gátu ekki kallazt óspilunarsemi og tilræði við þjóðarskútuna. Ég hlýddi hugrenningum mínum, fór inn til skraddara nokk- urs og benti á röndóttar buxur: Hm, hvað kostuðu þær? Hann nefndi verðið og bætti við: Saumum þær eftir máli. Ég saup hveljur. Gott efni, sagði skraddarinn og þuklaði ástúðlega á buxunum. Mjög gott efni. Ég leit undan. Enskt, sagði skraddarinn og lét þess getið að eigandi þessara nýsaumuðu buxna væri kunnur stjórnmálamaður, ritstjóri dagblaðs. Ég andaði því skáhallt á buxurnar, að ég gæti ekki afráðið neitt í svipinn, hefði einungis viljað forvitnast um verðið, kæmi kannski seinna. Svona efni nota nú tæplega piltar á yðar aldri, sagði skraddarinn. A ég ekki að sýna yður — Ég þokaðist frá honum með húfuna í hendinni, kvaðst vera á hraðri ferð, bað hann afsaka ónæðið og hlykkjaðist út um dyrnar. Mér var þó ekki unnt að sætta mig við þessi málalok, svo að ég herti upp hugann rétt hjá Bankastræti, fór inn til annars skraddara, tók ofan og bauð góðan dag, en svipaðist síðan um hillur og benti loks á röndóttan stranga. Fyrsta flokks efni, sagði skraddarinn og horfði á mig eins og ljósmyndavél. Enskt. Jafnskjótt og hann nefndi verðið, sem var ívið hærra en hjá hinum, lagði ég á stað til dyranna, muldrandi niður í bringu mér, að ég væri á hraðri ferð, þyrfti að athuga málið, kæmi kannski seinna. Það sló ekki lengur bjarma á þök og rúður, klakkar þrútnuðu í útsuðri, bráðum skylli á ný hryðja. Ég gekk 18
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.