Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Page 33

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Page 33
MÝRIN HEIMA, ÞJÓÐARSKÚTAN OG TUNGLIÐ Hann hafði varla lokið fyrsta kaflanum þegar sú staðreynd blasti við mér, að frumvarp mitt væri í meginatriðum samhljóða boðskap hrekkjalómsins. Hláturinn dundi í neðri deild og fór ekki eftir flokkum að þessu sinni, norð- lenzkir og sunnlenzkir hagyrðingar skelltu upp úr, jafnvel fjármálaráðherra brosti. Skörungurinn hampaði blaðinu, teygði úr hverju orði, naut þessara óvenjulegu undirtekta, en ég laumaðist út úr salnum, þerrði framan úr mér angistarsveita og hét því að rífa frumvarpið mitt og greinargerðina í tætlur. Guð minn góður, hvílíkt ábyrgðarleysi, hvílík blindni! Auðvitað væri sparn- aður og aftur sparnaður eina ráðið til að fleyta þjóðarskútunni gegnum brim- skaflinn! Ég sá ekki lengur allsnægtir í hillingum, stjórnmálaþrengingar tóku við, endalausar áhyggjur, sífelld heilabrot um gjaldþol ríkissjóðs og einhvers- konar viðbrögð til að afstýra hörmungum. Ég sagði við sjálfan mig, að það væri til litils að ganga í stórröndóttum buxum, ef ég gæti ekki samið neinar raunhæfar tillögur, bent langmæddum þingmönnum á ný úrræði til að efla sparnað, þegnskap og fórnarlund. En hvar átti að bera niður? Hvar var blett- ur, þar sem ekki hafði verið slegið og rakað? Vel á minnzt, rakað! Þegar ég velti fyrir mér þessu dæmi í herbergi mínu á kvöldin, páraði tölur á blað og strauk hökuna, þóttist ég iðulega finna fyrir skeggbroddum, sem urðu mér til slíkra óþæginda í næsta vetfangi, að ég sá þann kost vænstan að löðra á mig sápu og raka mig. Því miður reyndist ég ekkert hugkvæmari að loknum rakstri, heldur sótti á mig kynlegt eirðarleysi, líkt og ég væri hálft í hvoru að vonast eftir — ja ég veit varla hverju, kannski gesti. Ég át um hríð lakkrísspörð og beiskar töflur, en varð ekki vitund gáf- aðri, fékk einungis brjóstsviða og þembing. Ég tók nokkrum sinnum í nefið, hnerraði og grét, en tekjustofnar ríkisins lengdust hvorki né gildnuðu. Loks hafði ég öngvar sveiflur á því, nema fór inn í tóbaksbúð og keypti rándýran vindil, gríðarlegan njóla, prýddan gullroðnu pappírsbelti frá hollenzkri verk- smiðju. Það dugði ekki að horfa í skildinginn þegar jafn mikið var í húfi og nú, einhverjir urðu að grafa heilann um raunhæfar tillögur. Ég nasaði af vindlinum að hætti þingskörunga heima í herbergi mínu um kvöldið, skar af honum, kveikti í og púaði stórum. Síðan skrúfaði ég hettuna af sjálfblekungn- um mínum og beið þess fullur eftirvæntingar að ný úrræði tækju að gægjast út úr fylgsnum hugans. Sparnaðartillögur, skrifaði ég á blað í stílabók og hagræddi mér á gömlu stólskrifli, stakk upp í mig njólanum, tottaði og blés. Eftir skamma stund varð einhver breyting á gáfnafari mínu; og þegar ég þóttist finna það á mér, að nú vantaði mig aðeins herzlumuninn til að ná 23
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.