Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Side 58

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Side 58
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Nichts kann auf Erden verglichen werden der Schafers Lust, auf griinen Heiden, verbliimten weiden, gibt’s wahre Freuden, mir ist’s bewusst.1 Þessi gjörólíka grundvallarafstaða og gæðamismunur þjóðkvæðanna vitna gegn hugmyndum rómantíkur- innar um einingu „þjóðarsálarinnar“ og sýna, að þau eru ekki einungis hugarfóstur mismunandi stétta og þj óðfélagsástands, heldur líka verk mismunandi hæfileikaríkra einstakl- inga. Alþýðan hefur tileinkað sér hina ólíkustu hluti og þróað þá með sér, „alþýðleikinn“ er margbreytilegur, góður og slæmur, frumleiki og fá- nýti — og því er óráðlegt að taka þátt í gagnrýnislausri rómantískri að- dáun á alþýðulist upp og ofan, þess- vegna er ógerningur að mæla hana á annan kvarða en hverja aðra list, eft- ir félagslegu innihaldi hennar og gæð- um. Og ennfremur verður að gera sér grein fyrir því, að vaxandi iðnvæð- ing, upplausn alls hins „trausta og stöðuga“ heldur óaflátanlega áfram að spilla alþýðulistinni, að hún getur ekki nema að mjög takmörkuðu leyti endurnýjað sig með innihaldi og túlkunarmáta bændasamfélagsins, 1 Ekkert á jörðu / jafnast á við / sælu hjarðsveinsins / á grænum heiðum / blóm- skrýddum völlum / er hinn sanna gleði / það veit ég. hins flakkandi iðnsveins: stórborgin, verkalýðsstéttin þarfnast nýs inntaks og nýrra tjáningarhátta. Með bylt- ingarhreyfingum hafa orðið til ný „þjóðkvæði“, Marseillaisinn, Inter- nationalinn, söngvar skæruliðanna í frelsisbaráttunni. Og listilega saman- settir söngvar Bertolts Brechts og Hanns Eislers hafa líka orðið að nýjum „þjóðkvæðum“, söngvum hinnar byltingarsinnuðu verkalýðs- stéttar. „Þjóðarheildin“ og hin dular- fullt skapandi „þjóðsál“ í heimi kapí- talismans eru óraunhæf hugtök; því þar standa stéttirnar hvor gegn ann- arri, og það er hvergi nema í barátt- unni við yfirstéttina, sem aftur verð- ur smám saman til alþýða úr þessu molaða samfélagi. Ákall þýzku rómantíkeranna til „alþýðunnar“ var ekki einungis tálsýn heldur urðu af- leiðingar hennar hrein afturhalds- semi, henni var ekki aðeins stefnt gegn borgarastétt nútímans, heldur gegn allri viðleitni stéttarbaráttunnar og hún hafnaði í rugli um „Þjóðfé- lagsbræðralag“ (Socialpartner- schaft), hafnaði í því að predika log- inn, skinhelgan „samhug“. Þessi rómantísku mótmæli gegn borgaraheimi kapítalismans skjóta, eins og áður er sagt, aftur og aftur upp kollinum; samt eru þau aldrei nema eitt af hugsanlegum viðbrögð- um listamanns í heimi, sem ógerlegt er að sætta sig við lengur. Með undra- verðum krafti hafa rithöfundar hins 48
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.