Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Page 41

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Page 41
STAÐA OG STEFNA ÍSLENZKRAR MYNDLISTAR upp tíu manna og ófjárráða lista- verkanefnd, sem lagði til urn kaup á nokkrum listaverkum, en dó síöan af fjölmenni bæði og áhugaleysi. Og ég veit ekki heldur til að hún hafi orðið borgarstjórninni sérlega harradauði. Utan þessa hefur horgarstjórn Reykjavíkur ekkert gert til stuðnings við hina ungu myndlist, og hygg ég það einsdæmi um svo stórt bæjarfé- lag, hvað þá um höfuðborg lands. Hinsvegar þykir bæði ríkisstjórn og horgarstjórn aldeilis ágætt að geta flaggað með listina þegar erlenda gesti ber að garði eða annars yfir- borðslegs tilhalds er þörf: Þá er hún sótt í öskustóna, eins og barnið í þjóðsögunni, þvegið í framan og klappað á kollinn af föðurlegu steig- urlæti. Sjaldan held ég að loddara- skapurinn í þjóðlífi okkar verði öllu ógeðslegri. Þeir vita það samt eins vel og aðr- ir, þessir menn, að hróður þjóðar út um veröldina byggist fyrst og fremst á listum hennar; milljónir manna um heim allan vita um ísland og bera virðingu fyrir því af þeirri ástæðu einni. Og lítil nágrannaþjóð okkar, færeyingar, er nú sem óðast að hefja sig til vegs í vitund norðurálfu fyrir tilstyrk skálda sinna og málara: Mik- ines, Djurhuus, Franz Jörgen Jacob- sen, William Heinesen. Ekki vantar að við eigum efnin, á mörgum sviðum frábær; en list þarf andsvars, áhuga; enn hefur góð list aldrei þróazt í menningarlegri logn- mollu. Þá var skilningurinn og stórhugur- inn meiri, meðan menn urðu að snúa við hverri krónunni í ríkissjóði: Frá 1896 til aldamóta kostaöi íslenzka ríkið ungan myndlistamann að fullu og öllu til náms; árið 1901 veitti Al- þingi Einari Jónssyni 3000 kr. viður- kenningu fyrir Útlagana, og 1907 veitti það enn Ásgrími Jónssyni 3000 króna listamannastyrk, meira en há embættislaun voru á þeim tíma, og má bæta því við, að ekki einum ein- asta þingmanni kom í hug að bera fram lækkunartillögu. Og í lok fvrra stríðs tók íslenzka ríkið að sér ævi- langa framfærslu Einars Jónssonar myndhöggvara, svo hann gæti unniö að list sinni í friöi. Nú myndi það sennilega þykja hótfyndni, ef einhver legði slíkt hið sama til um Ásmund Sveinsson eða Sigurjón Ólafsson. Hvað er hér að gerast? í stutlu máli það, að ísköld og andlaus ver- aldarhyggja er að læsa sig um þjóð- félagið og hefur einnig lamað þá menn, sem þó er trúað fyrir því að efla til varnar og sóknar það vígi sem hingað til hefur verið kallað ís- lenzk listmenning. Það er jafnvel engu líkara en þeir sömu hafi einna fyrstir fallið fram og lilbeöið ísskáp- ana! í sannleika sagt eru íslenzkir lista- menn orðnir svo að segja hinir einu I þessu þjóðfélagi sem halda andlegri 31
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.