Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Blaðsíða 4
Til lesenda
Það fórst fyrir að skrifa ritstjórnarpistil í fyrsta heftið og tilkynna lesendum
Tímaritsins að Vésteinn Ólason hefur nú látið af störfum sem ritstjóri og tekið við
prófessorsstöðu við háskólann í Osló. Ekki verður auðvelt að finna mann í stað svo
góðs drengs og prýðilegs fræðimanns, en vonandi fær hann betri tíma til að skrifa
fyrir Tímaritið meðan hann situr í Osló.
Nú kemur annað hefti ársins fyrir sjónir ykkar, ílangt og barmafullt af fræðandi
og uppbyggilegu efni að venju. Tvær aðalgreinar heftisins fjalla um Astu Sigurð-
ardóttur, þá sérkennilegu skáldkonu, og eitt af spilunum sem hún lét eftir sig prýðir
forsíðuna. Tilefni þessa er að í allan vetur hefur Kjallaraleikhúsið sýnt leikgerð
Helgu Bachmann af Reykjavíkursögum Ástu við miklar vinsældir, og fyrir jól kom
út bókin Sögur og Ijóð með öllum fullunnum smásögum og ljóðum Astu. Matthías
Viðar Sæmundsson og Dagný Kristjánsdóttir fara ólíkar leiðir að Astu en greinar
beggja sýna hve auðugur texti hennar er ef hann er skoðaður vandlega. Til að létta
stemninguna sveif ég á Steingrím Sigurðsson málara og rithöfund þar sem hann var
að útrétta í Alþýðuþankanum og bað hann að segja frá kynnum þeirra Astu. Hann
birti fyrstu smásöguna eftir hana í riti sínu Lífi og list árið 1951.
Höfundar Tímaritsins tala annars hver fyrir sig og þurfa ekki á pistli að halda til
kynningar.
Af útgáfunni er það að segja að hún er blómleg á þessum vordögum. Vorbókin
handa börnum er bráðskemmtileg saga eftir nýjan höfund, Hrafnhildi Valgarðsdótt-
ur, og heitir Kóngar í ríki sínu. Tilvalin sumargjöf handa fimm til tíu ára börnum.
Tvær ljóðabækur koma að venju, Böðvar Guðmundsson kveður sér hljóðs eftir
langa þögn á þessu sviði með ljóðabókinni Vatnaskilum og Isak Harðarson gefur út
Veggfóðraðan óendanleika.
Allir lesendur Tímaritsins hafa frétt af UGLUNNI, íslenska kiljuklúbbnum, sem
fór af stað í aprílbyrjun og tekur í raun upp gamlan þráð Máls og menningar: Að
gefa út á öllum tímum árs góðar bækur og svo ódýrar að allir geti eignast þær sem
það vilja. Áskrifendur fá sendar allar útgáfubækur klúbbsins, en með því fyrirkomu-
lagi er hægt að halda verðinu mjög lágu. Áskrifendur UGLUNNAR eru orðnir þrjú
þúsund þegar þetta er ritað. Ritstjóri UGLUNNAR er Árni Sigurjónsson, bók-
menntafræðingur.
Bestu sumarkveðjur. Ritstjóri.
130