Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Page 61

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Page 61
Spegillinn hennar Lídu Sal hvössum tönnum og svelgdu vatn til að skola niður stórri tuggu af júkarót. Guðlaun fyrir matinn, herra faðir minn . . . Máltíð lauk án þess mörg orð væru sögð, eins og ætíð, mitt í þögn og handahreyfingum eiginmanns Petrangelu og spurningum hennar: Hefurðu nú lokið við réttinn? Og síðan bað hún þernuna að bera fram næsta. Þegar Felípe litli hafði þakkað föður sínum, krosslagði hann hend- ur á brjóstið, veik sér til móður sinnar, hneigði höfuðið og endurtók: Guðlaun fyrir matinn, frú móðir mín . . . Bundinn var endi á matmálstímann, á þann hátt að herra Felípe lagðist í hengirúmið, konan settist í ruggustól en Felípe litli á bekk, líkt og hann sæti enn á hestbaki. Oll sökktu sér niður í hugsanir sínar. Herra Felípe reykti. Sá yngri þorði ekki að reykja svo faðir hans sæi; en hann gleypti reykinn með augunum. Petrangela rak fram snotran fót og ruggaði sér í ruggustólnum. 2. Kynblendingsstúlkan, hún Lída Sal, var lipur eins og svipuól og beindi ekki athyglinni að því sem blindinginn Beníto Jójón gerði heldur að hjali hans við mann nokkurn, Falútero að nafni. Sá var formaður hátíðarnefndar Heilagrar Maríu ljóðsins. Báðir höfðu lok- ið snæðingi og bjuggust nú til brottferðar. Þetta ýtti undir það að Lída Sal lagði eyrað að hjali þeirra. Vaskarnir þar sem óhreinu matar- ílátin voru þvegin voru nálægt skálahurðinni sem vissi að götunni. Friðlarnir? Það eru töframenn! sagði blindinginn fálmandi líkt og hann stryki óþægilegan köngurlóarvef af hrukkóttu andlitinu. Hvernig fær það staðist sem þér segið: að engir góðir kvenfulltrúar fáist einmitt núna, af því karlmenn eru öfugsnúnir? Núna er fátt um giftingar, Falútero minn, en mikið um skírnir; því miður. Lausaleiks- börn eru mörg og mikið um börn ókvæntra manna. Hvers óskið þér þá? Eg slæ fram þeirri spurningu svo ég heyri skoðun yðar á málinu og geti síðan sagt álit yðar öðrum félögum í bræðralagi hinnar sannheilögu meyjar. Hátíðin er skammt undan! Og ef engin kona fæst til að annast klæði Friðlanna, þá verður hátíðin haldin án töframanna líkt og í fyrra. 187
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.