Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Page 77
Þrjú gögn
5. með því að koma á framfæri þeim skáldskap eða ritsmíðum sem félaginu
þykir til þess fallið.
6. með bréfaskiptum við skáldhneigða verkamenn víðsvegar um land.
7. með því að komast í samstarf við „Samband byltingarsinnaðra rithöf-
unda“, afla sér þaðan hverskonar leiðbeininga og gagna.
Lög fyrir félag ??????????????
1. gr. Félagið heitir?.........
2. gr. Tilgangur félagsins er: (Hér kemur það sem samþykkt var á síðasta
fundi, 1.—4. liður.)
3. gr. Að tilgangi þessum vill félagið vinna: (Hér kemur seinni greinin
sem samþykkt var á síðasta fundi).
4. gr. Félagar geta þeir einir orðið, sem skuldbinda sig til að skrifa samkv.
framangreindum tilgangi félagsins.
5. gr. Hver félagi greiði 10 kr. inntökugjald, og kr. 0,50 mánaðarlega.
6. gr. Stjórn félagsins skipa 3 menn, formaður, ritari og gjaldkeri, og séu
þeir kosnir skriflega á aðalfundi, til eins árs í senn.
7. gr. Fundir skulu haldnir vikulega, og aðalfundur í janúarmánuði ár
hvert.
Ræða Kristins
Til þess að skilja hlutverk sitt sem byltingarsinnaður rithöfundur er nauð-
synlegt að gera sér skýra grein nútímabókmenntanna hér á landi og skáld-
anna sem bera þær uppi. Það er enginn vafi, að hugmyndir manna eru mjög
óljósar í þessum efnum, jafnvel byltingarsinnaðir menn láta stórum glepjast.
Sjónarmið stéttarbaráttunnar er það eina, sem getur veitt okkur réttan
skilning á ástandi og stefnu skáldskaparins og fullkomið öryggi í dómum og
mati. Og menn verða þar að þekkja hið eiginlega inntak stéttabaráttunnar,
þ. e. a. s. hið byltingarsinnaða inntak, annars eru menn strax komnir aftur
út í sömu þokuna. Eftir því er um tvær stéttir að ræða, er heyja úrslitabar-
áttu um yfirráðin yfir framleiðslutækjunum og menningartækjunum. Eina
lausnin á slíkri baráttu er byltingin, sem er um leið söguleg nauðsyn.
Mannfélagið greinist vitundarlega með hverju árinu skýrar í þessar tvær
stéttir, og menningin, þar á meðal skáldskapurinn, fær stöðugt greinilegri
svip hvorrar stéttarinnar fyrir sig. Þessu er mjög misháttað víðsvegar um
heiminn, en greiningin er allstaðar að skýrast. I Sovétríkjunum er menning
verkalýðsins orðin einráð og farin að eignast alveg ákveðið form. Eftir sigur
203