Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Side 101

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Side 101
Kristján G. Arngrímsson Jarðarför að hausti Veturinn hafði byrjað daginn áður og það var ennþá ofankoma þegar ég mætti við líkhúsið um morguninn. Það átti að flytja kistuna til kirkju. Eg hafði ekki klætt mig í samræmi við nepjuna og það var hrollur í mér — ég varð að bíta á jaxlinn tilað tennurnar glpmruðu ekki. Við vorum fjórir, líkberararnir, allir tengdir líkinu á sáiua hátt, hann hafði verið afi okkar allra. Samt voru engir okkar bræður. Þetta var með ráðum gert, hafði orðið að samkomulagi að hver fjölskylda ætti einn fulltrúa við líkburðinn. Það munaði litlu að ég heilsaði þeim með hressilegri athugasemd um veðrið en alvaran í svip þeirra gerði mér ljósan þann hátíðleika sem á deginum hvíldi. Þeir vottuðu mér samúð sína — við tókumst í hendur einsog samninganefnd í upphafi fundar. Hikandi endurgalt ég samúðarvott þeirra og uppgötvaði að kuldalegur októberdagurinn var dagur hinnar formlegu sorgar. Samt hafði afi þá legið dauður í heila viku og enginn verið að hafa sérstaklega fyrir því að vera sorgmæddur. Fyrr en í dag. Einsog allir hefðu sínkróníserað úrin. Maðurinn á líkbílnum kom og opnaði líkhúsið. Hvít kistan olli mér einhverri líðan sem ég hafði ekki kynnst fyrr en þá, svo óendanleg virtist hún þarna í lífvana andrúmsloftinu, umlukin gráum veggjum sem endurvörpuðu fölri haustbirtu frá litlum glugga. Við einn kistunaglann var festur miði með nafni afa míns svo að við myndum örugglega jarða hann en ekki af misgáningi einhvern alit annan. Þöglir gripum við frændurnir í handföngin á kistunni. Þau voru ósköp veigalítil og eitt andartak hvarflaði að mér að þau myndu brotna af þegar við lyftum kistunni. Líkbílstjórinn virtist beinlínis hneykslaður þegar við ætluðum að setja kistuna öfugt inní líkbílinn — hinsegin, hinsegin, hvíslaði hann fljótmæltur einsog hann væri að skikka smábörn. 227
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.