Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Page 2
Það þarf betri leiðsögn fyrir
ungt afreksfólk í íþrótt-
um, segir Birna Varðar, sem
hefur skrifað bókina Molinn
minn um glímu sína við
íþróttaátröskun. Hún var
orðin um fjörutíu kíló og
hljóp 70 kílómetra á viku.
Heilsa 24
Hvenær kemst þú venjulega í jólaskap? Ég kemst í jólaskap
þegar skammdegið leggst yfir landið og öll ljós, lifandi og leidd, faðma sál og
sinni. Svo kemst ég alltaf í jólaskap þegar ég heyri kórana í kirkjunni æfa
jólalög og sálma og þegar Sveinn kirkjuvörður er búinn að setja upp allt
skrautið í safnaðarheimilinu, það er sko alvörujólaland.
Hver er hinn sanni jólaandi? Hinn sanni jólaandi býr í þrá okkar
eftir því að tilheyra öðru fólki, hann birtist í gestrisni okkar, í því að setja
upp gamalt og jafnvel laskað jólaskraut sem er alls ekki í stíl við innbúið af
því að það ber með sér dýrmætar minningar. Jólaandinn birtist líka í ljúf-
sárri líðan vegna þess sem var en kemur aldrei til baka og svo kemur hann
fram í óttablandinni gleði okkar yfir fyrirvaraleysi barnsins.
Hvernig fer messa fram á aðfangadag? Í aftansöngnum klukk-
an 18:00 á aðfangadag eru allir fallegu jólasálmarnir sungnir af söfnuði og
kór, þá eru flestar kirkjur með hátíðartón Bjarna Þorsteinssonar sem er
talsverð áskorun fyrir presta því það er upphaflega samið fyrir tenórrödd,
en þetta færir mörgum kirkjugestum jólin þótt presturinn sé kannski svo-
lítið skjálfraddaður. Jólaguðspjallið er lesið og þá meyrnar hjarta mitt.
Ég persónulega vel að hafa fremur stutta og mjúka prédikun í þessari
messu, það eru mörg ung og eftirvæntingarfull hjörtu í kirkjunni og
mikilvægt að vera næmur fyrir þeirra þörfum. Þetta eru fjölsóttustu
messur ársins og þarna taka margir bókstaflega á móti jólunum.
Eru þínar messur hefðbundnar eða bregður þú út af
vana og hefur messur óformlegar? Ég held í hefðir þegar
kemur að aftansöngnum á aðfangadagskvöld, í ár þjóna ég hins vegar í
miðnæturmessunni sem er klukkan hálftólf um kvöldið og þar ætla ég
ekki að tóna neitt heldur leyfa tregafullri jólatónlist kammerkórsins
Hymnodiu að vera í öndvegi, við syngjum auðvitað öll saman Heims um
ból og þá ætla ég að efna loforð mitt um að þjóna í jólapeysunni fram yf-
ir prédikun en ég tek þátt í forvarnarátaki Barnaheilla gegn einelti og enn
er hægt að heita á prestinn inni á jolapeysan.is.
Er eitthvað sérstakt sem við þurfum að hafa í huga á
jólunum? Það er auðvitað mjög mikilvægt að gæta vel að þörfum og
líðan barnanna og hafa í huga að þetta er þeirra hátíð, við munum flest
okkar bernskujól og ef þau hafa verið góð getum við yljað okkur við
þær minningar alveg þar til yfir lýkur en hafi þau verið í skugga átaka,
óreglu og óuppgerðra mála geta þau breyst í sálrænan draugagang. Ég
sat með eldriborgurum á dvalarheimilinu Lögmannshlíð um daginn og
rifjaði upp með þeim þeirra bernskujól og ég get svo svarið það að birt-
an sem færðist yfir andlit sumra var slík að Oslóartréð á Austurvelli
hefði bliknað í samanburðinum, þó mundu fæst þeirra stærri gjafir
en kerti, bók og spil, þau mundu hins vegar hvernig þeim leið og
hvort þeim var hlýtt.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
HILDUR EIR BOLLADÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Jólin eru hátíð
barnanna
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014
Við erum alltaf með möndlugraut í hádeginu
á aðfangadag og um kvöldið rjúpur, sem
maðurinn minn skýtur. Á jóladag er hangikjöt
með handskornu heimagerðu laufabrauði.
Ásta Einarsdóttir (47)
Við borðum alltaf purusteik á aðfangadags-
kvöld og hangikjöt á jóladag. Á gamlárskvöld
er fjölskyldan svo með kalkún, alltaf eins,
með fyllingunni hennar mömmu …
Jenný Henriksen (39)
Það eru hefðir en breytilegar, eftir því hvað
dæturnar vilja! Svínakjöt síðustu ár en nú alí-
fuglakjöt. Ekki villibráð því ekki má borða
það sem er drepið, bara það sem fæst í búð!
Jón Hjaltason (55)
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Þetta hefur verið eins í mörg ár: hangikjöt á
Þorláksmessu, hamborgarhryggur á að-
fangadagskvöld, lambalæri hjá mömmu á jóla-
dag og kalkúnn á gamlárskvöld.
Bjarni Guðmundsson (37)
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
SPURNING DAGSINS ER HEFÐ FYRIR EINHVERJUM SÉRSTÖKUM MAT Í ÞINNI FJÖLSKYLDU UM HÁTÍÐARNAR?
„Öll bókin er eins konar rit-
stýrð sagnfræði,“ segir Matt-
hías Johannessen um nýja
skáldsögu sína, Sögur úr
Vesturbænum. Í henni hefur
ungur drengur orðið og
fjallað er um heiminn sem
hann ólst upp í fyrir miðja
síðustu öld. Menning 54
Í BLAÐINU
Forsíðumyndina tók
Eggert
Í Japan er það hefð að
borða djúpsteiktan
kjúkling frá Kentucky
Fried Chicken á jóla-
dag, þökk sé vel heppn-
aðri auglýsingaherferð
„Kurisumasu ni wa ken-
takkii!“ (Kentucky á jól-
unum!) frá 1974.
Ferðalög 18
Félag íslenskra grjónapunga er líklega lífseigasti
hádegisverðarklúbbur landsins en á þessu ári fagna þeir
því að hafa komið saman á hverjum virkum degi í
fimmtíu ár til að borða, spjalla og hlæja. Ákveðinn kjarni
mætir alltaf, aðrir sjaldnar en iðulega er messufært. 52
Séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju, hefur
alltaf haft óslökkvandi áhuga fyrir fólki. Hún segist hafa byrjað
að lesa minningargreinar um það bil sjö ára gömul um blá-
ókunnugt fólk og þykir skemmtilegra að skoða fólk en söfn.
Hildur Eir á auðvelt með að hrífast með stemningu og er lítið
fyrir að virða kristilegan tíma þegar gott samkvæmi er annars
vegar. Hress prestur hér á ferð!