Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 50
Ljósmynd/Art Gray
Hús formanna (House of Shapes) er um það bil 700fm einbýlishús við Elliðavatn í Kópavogi. Það er byggt
fyrir Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar,
og fjölskyldu hans. Að sögn Hlédísar á húsið að vera
heimili og griðastaður en um leið vettvangur vinnu, fræða-
starfs og þjóna vegna móttöku gesta. Þannig skiptist húsið
í tvo byggingarhluta, annan hlutann hefur fjölskyldan alveg
út af fyrir sig en hinn gegnir fjölþættara hlutverki, eins og
að rúma veislur og móttökur. Byggingarhlutar eru að-
skildir og tengjast með brú.
„Byggingin er óður til framtíðar, vísinda og uppgötvana.
Form byggingarinnar eru óhefðbundin en samanstanda af
grunnformunum, uppruna allra forma, allrar sköpunar, það
er að segja hring, sem táknar andann, þríhyrning, sem
táknar sálina og ferhyrning, sem táknar líkamann. Þetta
kemur skýrt fram í grunnmynd og sniðmyndum. Samruni
þessara forma er tákn sköpunarinnar,“ segir Hlédís.
Húsið er steinsteypt, bæði beinir veggir og bognir, lá-
rétt og lóðrétt. Lóðréttir steyptir bogar eru sjónsteypa
innan í húsinu, þar sem þáttur verkfræðinga og verktaka
fær að njóta sín á völdum stöðum. Efnistök virka flókin en
eru í raun einföld, að sögn Hlédísar. Gegnumgangandi inni
jafnt sem úti er steypa, sýnileg og/eða pökkuð inn í tít-
aníumskel til að verjast vatni og veðrum. Þá er notuð
steypt flís inni og úti, á þeim hlutum sem skera sig úr að-
alformum byggingarinnar. Flísin er unnin eftir hönnun graf-
fitílistamanninum Banksi og í ákveðinni birtu koma verk
hans fram, þá sérstaklega í baðherbergjum inni í húsinu.
Engin niðurföll eða rennur eru á húsinu, en rigning-
arvatn rennur eftir títaníumklæddum bogum og er beint
niður, til dæmis á stofueiningunni, þar sem vatnið rennur í
slæðu (fossi) milli glugga og niður í tjörn sem umlykur
hringherbergi sem er hjartað í húsinu. Hlédís kveðst hafa
verið mjög spennt að sjá hvernig þetta virkaði og í fyrstu
rigningu brunaði hún með hjartslátt upp eftir. Og viti
menn, allt virkaði eins og til var ætlast. Alltaf ánægjulegt
þegar form og praktík fara saman.
Hús Formanna mun vera eina byggingin á Íslandi sem
klædd er títaníum en leitað var til sama framleiðanda og
útvegaði Guggenheim-safninu í Bilbao títaníumklæðn-
inguna frægu.
Hlédís skilgreinir húsið sem skúlptúr sem leggst inn í
landslagið sem aftur lagar sig að húsinu. „Það er ut-
anaðkomandi hlutur sem settur er niður og aðskilur sig
sjónrænt frá landslaginu. Hönnunin tekur á hinn bóginn
mið af veðri og vindum, húsið myndar skjól fyrir veð-
uráttum, er lokað fyrir umferð og götu, en opnar sig í átt
að vatninu og útsýninu,“ segir hún.
Hlédís segir verkefnið hafa tekið miklum breytingum á
sköpunarferlinu, bæði innanhúss og utan. Öryggið hafi ein-
kennt það í upphafi en síðan hafi verið farið út fyrir þæg-
indarammann og brotist út úr hinu hefðbundna. Hönn-
unin var unnin í nánu samstarfi við verkkaupa sem Hlédís
segir hafa verið einstakan. „Hann var hvergi banginn við
að fara út fyrir hefðbundin mörk og færði okkur bæði trú
og þor.“
HÚS FORMANNA
Óður til framtíðar
Arkitektúr
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014