Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 49
hátæknisamfélag sem við lifum í. Byggingar eiga
að geta aðlagað sig breyttum kröfum framtíð-
arinnar, án þess að missa sérkenni sín.“
Þar að auki tilgreinir Hlédís nándina. Hún sé
óvíða meira en á Íslandi. „Hvar annars staðar í
heiminum er hægt að taka upp símann og
hringja beint í ráðherra í ríkisstjórn, jafnvel
sjálfan forsætisráðherrann? Ég talaði um þetta í
New York um daginn en ég held að enginn hafi
trúað mér,“ segir hún hlæjandi.
Bjart framundan hjá arkitektum
Fáar stéttir fengu eins þungt högg í hruninu og
arkitektar, menn beinlínis hættu að byggja.
Núna, rúmum sex árum síðar, segir Hlédís stöð-
una mun betri. Stórar hótelbyggingar vegi þar
þyngst, þær hafi verið góð innspýting í fagið. Þá
sé aftur að komast skriður á íbúðarhúsnæði.
„Þetta gerðist mjög hratt. Einn daginn var
verið að byggja úti um allt og næsta dag voru
menn hættir að byggja. Fyrir vikið þurftu arki-
tektar að taka u-beygju og sjá tækifærin í
breyttum aðstæðum. Þannig er okkur kennt að
hugsa og þarna reyndi svo sannarlega á það.
Þetta hafa verið erfiðir tímar en landið er sem
betur fer byrjað að rísa á ný.“
Hún segir menn hafa lært sitthvað á hruninu.
„Það er ekkert launungarmál að sumir fóru fram
úr sér fyrir hrun sem skilaði sér í byggingum
sem voru ef til vill ekki nægilega góðar. Núna
eru byggingarnar almennt betri og menn betur
meðvitaðir um það sem skiptir máli, svo sem
vistvæna þáttinn og sjálfbærni. Því ber að fagna
enda ekki hægt að bíða með það lengur. Ég sé
ekki annað en bjart sé framundan hjá íslenskum
arkitektum.“
Morgunblaðið/Eggert
Hlédís Sveinsdóttir segir
verðlaunin hafa mikla þýð-
ingu fyrir EON arkitekta og
íslenska arkitekta almennt.
Hlédís ásamt Patrick Tighe arkitekt og Art Gray ljósmyndara í hátíðarveislunni. Gunnar Árnason og Hlédís Sveinsdóttir með verðlaun sín.
Marta Elena Vassilakis ljósmyndari, Jeff Alsass, Art Gray ljósmyndari, Hlédís
Sveinsdóttir arkitekt og Gunnar Árnason framkvæmdastjóri EON arkitekta.
21.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49