Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 48
Þ
egar Hlédís Sveinsdóttir sá að stofa
hennar, EON arkitektar, væri til-
nefnd til verðlauna fyrir bygginga-
arkitektúr hönnunartímaritsins Int-
erior Design í flokknum söfn/gallerí
ásamt 9/11 National Memorial-safninu á Ground
Zero á Manhattan, minnisvarða um árásina
hræðilegu 11. september 2001, gerði hún sér
ekki miklar vonir um að fara með sigur af hólmi.
9/11 hlyti að vinna, bæði væri safnið stórfenglegt
að allri gerð, auk þess sem það hefði gríðarlegt
tilfinningalegt gildi fyrir bandarísku þjóðina. Það
kom líka á daginn, 9/11 vann, og klappaði Hlédís
arkitektunum lof í lófa ásamt tvö þúsund öðrum
hátíðargestum í IAC-byggingu Franks Gehrys í
New York fyrr í mánuðinum.
En sagan var ekki öll sögð. Eftir að hafa lokið
lofsorði á 9/11 tilkynnti kynnir kvöldsins að safn-
ið deildi fyrstu verðlaunum með öðru safni –
Heklusetri uppi á Íslandi. Sköpunarverki EON.
Hún átti varla orð. „Þetta er mikill heiður og við
erum virkilega hrærð yfir því að hafa verið sett
við hliðina á 9/11-safninu. Það var mjög
skemmtilegt jafnvægi í þessu. Þetta risastóra
safn á Manhattan við hliðina á þessu litla þjóð-
lega eldfjallasafni á Íslandi,“ segir Hlédís.
Unnu líka í flokki stórra einbýlishúsa
EON arkitektar létu ekki þar við sitja á hátíð-
inni, stofan bar einnig sigur úr býtum í flokki
stórra einbýlishúsa. Fyrir Hús formanna (House
of Shapes) í Fagraþingi 5 við Elliðavatn. Húsið
er í eigu Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar
erfðagreiningar. Þeim verðlaunum deildi EON
ekki með öðrum.
Interior Design-verðlaunin njóta mikillar virð-
ingar í hönnunargeiranum. Keppnin hefur verið
haldin níu sinnum og eru valin verk úr þúsundum
verkefna sem skoðuð eru. Að þessu sinni voru
verkefnin yfir tvö þúsund. Á hverju ári eru tilnefnd
eða valin fjögur til fimm verkefni í úrslit í ýmsum
flokkum hönnunar og bygginga, innanhúss og utan.
Höfundar verðlaunaverkefna eru heiðraðir á
verðlaunaafhendingu á Manhattan í byrjun des-
ember á hverju ári. Verðlaunahafar eru í for-
grunni á hátíðinni, verkefnin sérstaklega kynnt
og fá heiðursumfjöllun í janúarhefti Interior De-
sign og öðrum fjölmiðlum.
Fjölgar í Frægðarhöllinni
Samhliða ID-verðlaununum voru þrír arkitektar
limaðir inn í Frægðarhöll arkitektúrsins, Hall of
Fame. Til þess vegsauka var stofnað 1985 af Int-
erior Design og hefur fjölgað árlega í hópnum
síðan. Hall of Fame heiðrar þá arkitekta og
hönnuði sem þykja framúrskarandi og hafa lagt
sitt af mörkum til að efla hönnunar- og arki-
tektageirann. Margir þekktustu arkitektar og
hönnuðir samtímans hafa verið heiðraðir, svo
sem Antonio Citterio, Clodagh, Thierry W. Des-
pont, Frank Gehry, Albert Hadley, Andree Put-
man, David Rockwell, Lauren Rottet, Philippe
Starck og Robert A.M. Stern.
EON arkitektar sendu Hús formanna og
Heklusetur inn í keppnina fyrr á þessu ári að
undirlagi ljósmyndarans Arts Grays, sem kom
hingað í sumar til að taka myndir af Húsi for-
manna og Heklusetri. „Hann hvatti okkur ein-
dregið til að taka þátt í keppninni og það borgaði
sig greinilega,“ segir Hlédís.
Hún segir verðlaunin mikla hvatningu og hafa
ótvíræða þýðingu fyrir EON arkitekta. Ísland sé
afskekkt land og langt frá hringiðu arkitektúrs
og hönnunar í heiminum. Þess vegna sé kær-
komið að kastljósið beinist að íslenskum arki-
tektúr með þessum hætti. Tvö þúsund manns
sóttu viðburðina í tilefni verðlaunaveitingarinnar,
athöfnina sjálfa og galamálsverð á Waldorf
Astoria-hótelinu í framhaldinu, og allt fékk það
fólk að kynnast verkum EON arkitekta. Hún
segir fjölmarga hafa komið sérstaklega til þeirra
í því skyni að óska þeim til hamingju og fræðast
nánar um verkin en með henni ytra var Gunnar
Árnason, framkvæmdastjóri EON.
Dyr hafa opnast
„Dyr hafa opnast. Það er alveg greinilegt. Við
fundum að verkin okkar vöktu athygli á hátíð-
inni, auk þess sem við vorum kynnt fyrir fjöl-
mörgu fólki í faginu,“ segir Hlédís. „Stofan okk-
ar er orðin þekktara nafn en hún var og búið að
sýna fjölmörgu málsmetandi fólki í faginu verkin
okkar. Nú er það bara undir okkur komið að
vinna úr þessu.“
Hlédís segir þreifingar um samstarf þegar
hafnar, bæði við arkitekta í Evrópu og Banda-
ríkjunum. Of snemmt sé þó að segja til um hvað
komi út úr því. „Við erum opin fyrir öllu.“
Hlédís lítur ekki síður á verðlaunin sem við-
urkenningu fyrir Ísland en auk EON voru arki-
tektahjónin Erla Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi
Þorsteinsson, sem starfa í Los Angeles, tilnefnd
og hlutu verðlaun í flokknum „græn hús“, fyrir
sumarhús á Íslandi. „Það segir manni að íslensk-
ir arkitektar eru að gera góða hluti sem fyllir
mann auðvitað stolti.“
Nokkuð er síðan EON arkitektar settu ljós-
myndir af Húsi formanna inn á heimasíðu stof-
unnar. Að sögn Hlédísar hafa viðbrögð verið
töluverð, bæði jákvæð og neikvæð. „Það er
greinilegt að margir hafa skoðun á þessu húsi,
það hefur vakið umræðu og tilfinningar hjá fólki.
Það er svo sem ekkert skrýtið þegar um svona
óhefðbundið verk er að ræða.“
Spurð hvort hún taki neikvæðar athugasemdir
nærri sér kveðst Hlédís hafa verið undir þær bú-
in. „Það kallar oftar en ekki á viðbrögð þegar
maður fer út fyrir rammann. Því verður maður
að una. Ég fylgist auðvitað með umræðunni og
reyni að læra af henni.“
Sér ekki eftir að hafa komið heim
Hlédís útskrifaðist með meistaragráðu í arkitekt-
úr árið 1993 frá University of California
(UCLA). Hún flutti heim og stofnaði EON arki-
tekta fyrir fimmtán árum eftir að hafa starfað í
Bandaríkjunum, Rússlandi og Sviss. „Ég sé ekki
eftir að hafa komið heim, útgangspunkturinn er
og verður að starfa hér. Það breytir ekki því að
ég hef mikinn áhuga á því að fara í alþjóðlegt
samstarf í framtíðinni og hef stefnt að því lengi.
Það er bara spurning hvar þau verkefni verða,
þau gætu alveg eins orðið hér heima eins og er-
lendis.“
Hún segir mikilvægt fyrir arkitekta að víkka
sjóndeildarhringinn og halda stöðugt áfram að
ögra sér. „Ég er full af eldmóði! Það er svo
margt spennandi í gangi í heiminum og tækninni
í faginu hefur fleygt fram. Það sem var ómögu-
legt í gær er hægt í dag, ekki síst fyrir atbeina
þrívíddartækninnar sem gerir okkur kleift að
stúdera verkefni með mun nákvæmari hætti en
áður. Arkitektúr er allt önnur grein en hún var
fyrir tíu til fimmtán árum. Sérstaklega hvað
varðar stærri óhefðbundnari verkefni.“
Einstök náttúra
Spurð hvað heilli hana mest við Ísland nefnir
Hlédís fyrst náttúruna. Hún sé einstök. Það
kemur glöggt fram í stefnuyfirlýsingu á heima-
síðu stofunnar, eon.is:
„EON arkitektar hafa sterkar rætur til ís-
lensks þjóðfélags. Tenging við sérkenni og sögu
þjóðarinnar er okkur mikilvæg. Einnig leggjum
við áherslu á tengingu byggingalistar og um-
hverfisþátta landsins. EON arkitektar standa
fyrir sköpun góðra rýma og stefna að því að
leggja sitt af mörkum til byggingalistar hér á
landi. Markmið EON er að sameina nútíma arki-
tektúr, umhverfisþætti með vísun í stílbrögð og
sögu, í eina heild sem hentar og virkar í íslensku
veðurfari og náttúru og passar inn í hið hraða
Ég er full af
eldmóði!
EON ARKITEKTAR, STOFA HLÉDÍSAR SVEINSDÓTTUR, BAR SIGUR ÚR BÝTUM Í
TVEIMUR FLOKKUM ÞEGAR HIÐ VIRTA HÖNNUNARTÍMARIT INTERIOR DESIGN
ÚTHLUTAÐI VERÐLAUNUM FYRIR FRAMÚRSKARANDI VERK Á ÁRINU 2014 Í
NEW YORK Á DÖGUNUM. ANNARS VEGAR SIGRAÐI EON Í FLOKKI STÆRRI
EINBÝLISHÚSA, FYRIR HÚS FORMANNA VIÐ ELLIÐAVATN, SEM ER Í EIGU KÁRA
STEFÁNSSONAR, OG HINS VEGAR Í FLOKKI SAFNA/GALLERÍA FYRIR HEKLUSET-
UR. SÍÐARNEFNDU VERÐLAUNUNUM DEILDI EON MEÐ ARKITEKTUNUM SEM
HÖNNUÐU 9/11-SAFNIÐ Á MANHATTAN. VERÐLAUNIN ERU VEITT FYRIR
FULLBYGGÐ VERK EN EON SÁ UM HÖNNUN BYGGINGANNA, AÐ UTAN SEM
INNAN, ÁSAMT LÓÐA- OG LANDSLAGSHÖNNUN.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
* Stofan okkar er orðinþekktara nafn en hún varog búið að sýna fjölmörgu máls-
metandi fólki í faginu verkin
okkar. Nú er það bara undir
okkur komið að vinna úr þessu.
Arkitektúr
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014
Hlédís Sveinsdóttir (arkitekt MA)
aðalhönnuður/arkitekt, innanhúss-
hönnun, lóðar- og landslags-
hönnun.
Gunnar Árnason, verkefnisstjóri á
byggingartíma, 2010-2014.
Gunnar B Stefánsson (arkitekt BA),
umsjón á fyrra byggingastigi. (2009
-2010).
Verkkaupi: Kári Stefánsson.
Verkfræðingar: Verkfræðiþjónustan
/Jón Guðmundsson verkfræðingur
(burðarþol). Efla (raflagnir).
VSB (lagnir).
Heklusetur
Hlédís Sveinsdóttir (arkitekt MA),
aðalhönnuður/arkitekt.
Gunnar B Stefánsson (arkitekt BA).
Verkkaupi: Sveinn R. Eyjólfsson og
Auður S. Eydal.
Verkfræðingar (burðarþol/lagnir/
raflagnir): Tækniþjónustan sf. /Vil-
hjálmur Þorláksson verkfræðingur.
Verktaki: ÍAV.
Tæknilegur ráðgjafi vegna þróunar
hraunklæðninga utanhúss: Flosi
Ólafsson.
Hús forma