Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 15
trú á mér þótt ég væri ekki sá fyrirmyndarnemandi sem hún var.“ Mamma þín orti pólitísk ljóð, ert þú pólitísk? „Nei, ekki eins og mamma. Ég er alin upp í kalda stríðinu við miklar öfgar og mamma og pabbi gerðu það upp síðar meir. Ég fæðist 1981 og elst upp í Breið- holtinu. Mamma var að skrifa fyrir Þjóðviljann og þegar átti að stríða mér kölluðu krakkarnir mig kommúnista. Ég vissi ekki almennilega hvað það þýddi en það var útskýrt fyrir mér á mjög fallegan hátt þannig að ég upp- lifði snemma að ég tilheyrði þjáð- um minnihlutahópi. Mitt pólitíska uppeldi er alltaf með mér en ég hugsa samt allt öðru vísi um heiminn en foreldrar mínir gerðu enda er kalda stríðinu lokið.“ Þú ert listamaður sem horfir á íslenskt samfélag utanfrá, hvernig finnst þér það vera? „Ég veit ekki hvort ég sé sam- félagið utanfrá, alla vega finn ég hvergi neinar útlínur. Stundum finnst mér ég líka vera alveg að drukkna í kliðnum. Um daginn fór ég í flugvél og í stað þess að heyra hina vanalegu og örlítið þvoglumæltu ræðu flugmannsins um fet og skyggni sagði hressileg rödd frá júmbósamlokutilboðum. Þá hugsaði ég með mér að þarna kjarnaðist vandi samtímans; í skorti á ósköp eðlilegri reisn.“ Þjóðin er dugleg við að tjá skoðanir sínar á facebook, ert þú virk þar? „Nei, en kannski hefði ég þörf fyrir það ef ég byggi í útlöndum. Tilhugsunin um að búa hér og taka þátt í umræðunni skapar hjá mér köfnunartilfinningu. Ég er ekki karakter í facebook- umræður. Ég tjái mig öðruvísi og í gegnum þann farveg sem ég hef valið mér.“ Sjóuð í því að taka gagnrýni Hvernig tekurðu gagnrýni? „Sem betur fer er ég myndlist- armenntuð. Ég var tvítug þegar ég byrjaði í myndlistarnámi og það voru stöðugar yfirferðir þar sem maður átti að svara fyrir það sem maður var að gera. Það er góður skóli. Ég hef oft lesið yfir handrit vina og vinir hafa lesið yfir mín handrit og þar er oft harkaleg gagnrýni. Ég er því orðin nokkuð sjóuð í því að taka gagnrýni. Það má alveg gagnrýna mig. Fyrsta ljóðabókin mín kom út þegar ég var 23 ára gömul. Ég hafði verið að vinna í henni í þrjú ár og mér fannst alltaf að hún væri ekki tilbúin en svo kom að því að ég varð að senda hana í prentun, sem var erfitt. Þá tók ég ákvörðun um að ég ætlaði að vinna við listir. Ég er mjög með- vituð um að í starfi mínu get ég ekki alltaf slegið í gegn. Stund- um gerir maður eitthvað sem öll- um finnst frábært og stundum ekki. Ég geri alltaf mitt besta og reyni að vera trú sjálfri mér og því sem kallar á mig. Stundum getur það verið eitthvað sem ekki margir hafa áhuga á en ég vona samt að stundum sé það eitthvað sem vekur áhuga margra. Annars fæ ég ekkert sérlega mikið út úr því að vera hrósað. Mér finnst aðalatriðið að ég sjálf sé sátt. Það er gaman ef verk manns snerta fólk, algjör plús, en þetta snýst meira um innri þörf og svörun við henni heldur en egó höfundarins eins og fólk ímyndar sér kannski. Þessi skammi tími, jólavertíðin, þegar höfundar verða sýnilegir er mjög ólíkur venjulegu dagsformi þeirra; þegar þeir sitja einir með sjálfum sér og fálma eftir merk- ingu í tóminu.“ Nýjasta bókin þín Kok er myndlistarbók og ljóðabók, en eru myndlistaráhrifin greinileg í öðrum verkum þínum? „Þessi áhrif eru algjörlega gegnumgangandi og þeirra gætir í miklum mæli í leikritum mínum og smásögum. Ég held líka að tilfinning mín fyrir byggingu og plotti komi úr myndlistinni. Upp- bygging er myndrænt fyrirbæri.“ Skiptir það máli fyrir þig að ljóðabók þín er tilnefnd til Ís- lensku bókmenntaverðlaunanna? „Já, mér þykir afskaplega vænt um það og er ánægð fyrir hönd Koks. Mér finnst eins og ég sé að senda prúðbúinn en svolítið skrítinn einstakling út í lífið og verð vitaskuld að halda með hon- um.“ Er það þá rétt sem stundum er sagt að rithöfundar líti á bæk- ur sínar eins og börnin sín? „Já, en það verður líka til viss aðgreining. Frá því Kok kom út hef ég verið á kafi í öðru verk- efni en svo var bókin tilnefnd til verðlauna og það er flott. Mér finnst líka gaman að sjá tvær ljóðabækur og smásagnasafn vera tilnefnd til Bókmenntaverðlauna í ár. Sjálf les ég mikið af ljóðum og smásögum og vil veg þessara formgerða sem mestan og best- an.“ Þú sérð framtíð þína sem rit- höfundur og myndlistarmaður? „Já, ég ætla bara að halda mínu striki.“ Er ekki erfitt að eiga fjárhags- lega afkomu sína undir rit- störfum? „Það kemur sér vel að vera al- in upp hjá mjög vinstrisinnuðu fólki því þar eiga peningar ekki að skipta eins miklu máli. Þegar ég var lítil og sagði: Ég elska þessa blússu eða: Ég elska þessa dúkku þá sagði mamma: Ekki elska hluti, Stína mín, elskaðu fólk.“ * Tilhugsunin um að búa hér og takaþátt í umræðunni skapar hjá mérköfnunartilfinningu. Ég er ekki karakter í facebookumræður. Ég tjái mig öðruvísi og í gegnum þann farveg sem ég hef valið mér. 21.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Borðstofuborð fyrir stórfjölskylduna Sm24 borðstofuborð 100 x 200 cm + 3 x 50 cm stækkun Gegnheil eik Verð 399.000,- Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is Komdu og skoðaðu úrvalið hjá okkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.