Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014
Matur og drykkir
M
atur kemur mjög við sögu í Biblíunni, ef
grannt er skoðað, þó engar séu birtar upp-
skriftirnar. Mikið er borðað, eins og hverj-
um manni er og hefur alltaf verið nauðsyn,
og maturinn sem borinn er á borð í bókinni helgu er
hollur, segir séra Svavar Alfreð Jónsson.
Hugmyndina að bókinni: Biblíumatur - uppskriftir frá
landi mjólkur og hunangs, fékk forleggjari séra Svavars,
Guðjón Ingi Eiríksson hjá Hólum, „og hann þurfti ekki
að ganga lengi á eftir mér,“ segir prestur.
Tvö barna séra Svavars og eiginkonu hans, Bryndísar
Björnsdóttur, eru búsett í Hollandi. Björn Ingi er í
læknanámi í Maastricht og kona hans, Lára Dagný Guð-
mundsdóttir, er í meistaranámi í lista- og menningar-
fræðum. Dóttir séra Svavars og Bryndísar, Sunna, hóf í
haust nám við konunglegu listaakademíuna í Haag.
Björn Ingi og Lára Dagný komast ekki heim um jólin
og hjónin skutust því utan á dögunum ásamt yngstu
dótturinni, Hildi Emelíu, og fjölskyldan hélt litlu-jólin í
Maastrich þar sem fjölskyldufaðirinn sló upp veislu og
bauð að sjálfsögðu upp á biblíumat.
„Verkefnið hefur tekið eitt og hálft
ár og í því sameina ég nokkur af
mínum áhugamálum. Ég hef alltaf
haft gaman af því að elda og líka að
borða góðan mat. Ég eldaði alla rétt-
ina sjálfur og prófaði – reyndar fleiri
en komust í bókina. Ég bauð fólki í
mat til að smakka með mér, enda
hef ég alltaf haft gaman af því líka
að borða með öðrum; að hafa sam-
félag í góðum mat. Svo tók ég allar
myndirnar sjálfur enda mikill áhuga-
maður um ljósmyndun. Loks ég hef
að sjálfsögðu mikinn áhuga á heilagri
ritningu, því ritsafni. Biblían er nátt-
úrlega mikið ritsafn og varð til á
mjög löngum tíma; þar eru engar uppskriftir en vitað er
hvaða hráefni voru notuð. Land gyðinga var mikið
gnóttaland.“
Svavar segist hafa þurft að grúska heilmikið um fyr-
irbærið biblíumat og pantað bækur til að leita fanga.
Maturinn í bókinni er mjög „hreinn“, eins og séra Svav-
ar orðar það. „Segja má að helsta einkennið sé hve mat-
urinn er einfaldur. Sykur er mjög lítið notaður en mikið
hunang og berjasaft til að gefa sætubragð, mikið er um
grænmeti og ávexti, lambakjöt og fisk. Ég fjalla líka um
súpur, salöt, brauð og eftirrétti. Þetta er matur sem fer
vel í mann.“
Séra Svavar kynntist kirkjustarfi ungur en einnig góð-
um mat.
„Pabbi spilaði á böllum á Hótel KEA í gamla daga en
oftast dinnermúsík. Við mamma fórum stundum að hitta
hann og þá buðu kokkarnir mér gjarnan í eldhúsið og
gáfu mér eitthvað gott. Svo var það einu sinni að
mamma fór með mig upp kirkjutröppurnar til messu þar
sem presturinn stóð fyrir altari, mjög fallega klæddur að
mér fannst. Þegar hann fór fram í skrúðhús á leið sinni í
predikunarstólinn, sagði ég víst svo
undir tók í kirkjunni: Mamma, hvert
fór kokkurinn?“
Séra Svavar segist telja ýmislegt
sameiginlegt með þessum tveimur
störfum; kokksins og prestsins. „Við
prestarnir vinnum við að matreiða
textann úr þessari bók. Kokkarnir
vita að hráefnið þarf að vera fyrsta
flokks og það er fyrsta flokks hráefni
sem við prestarnir höfum. Vissulega
þarf að beinhreinsa og skera frá,
velja hráefni sem fólk getur melt og
það þarf að krydda það. Maður er
sem sagt alltaf í ákveðinni mat-
reiðslu.“
Séra Svavar Alfreð Jónsson og eiginkona hans, Bryndís Björnsdóttir, á græn-
metismarkaðnum í Maastricht að velja hráefni í veisluna á litlu-jólunum.
SAMEINAR ÁHUGAMÁLIN Í NÝRRI BÓK
Mamma, hvert
fór kokkurinn?
* Það er fyrstaflokks hráefnisem við prestarnir
höfum. Vissulega
þarf að beinhreinsa
og skera frá, velja
hráefni sem fólk get-
ur melt og það þarf
að krydda það.
Systkinin Sunna, lengst
til vinstri, og Björn Ingi. Á milli
þeirra er Lára Dagný, eig-
inkona Björns Inga.
SÉRA SVAVAR ALFREÐ JÓNSSON, SÓKNARPRESTUR Í AKUREYRARKIRKJU, ER MIKILL
ÁHUGAMAÐUR UM MAT OG MATARGERÐ, FLINKUR LJÓSMYNDARI TIL MARGRA
ÁRA OG HEFUR AÐ SJÁLFSÖGÐU EINLÆGAN ÁHUGA Á HEILAGRI RITNINGU.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Möndlusúpa
Fyrir 4 - 6 í forrétt.
1 lítill fínsaxaður laukur
2 kramin hvítlauksrif
2 bollar hænsnasoð
2 bollar vatn
¼ tsk rifinn sítrónubörkur
½ tsk kúmín
Salt og pipar eftir smekk
½ bolli möndlukurl
3 msk ólívuolía
Rauðurnar úr tveimur harð-
soðnum eggjum
3 fínsaxaðir skalottulaukar
4 msk jógúrt
Setjið lauk, hvítlauk, skalottulauk, soð, vatn, sítrónubörk, krydd, salt og
pipar í pott og sjóðið við vægan hita. Ristið möndlurnar 4 mínútur í ólívu-
olíu á pönnu. Ausið þeim upp með gaffli og látið þorna á eldhúspappír áð-
ur en þið setjið þær í skál. Myljið eggjarauðurnar út í. Hrærið síðan blönd-
unni út í súpuna og látið sjóða í 10 mínútur. Berið fram með jógúrtslettu á
hverjum diski.
Setjið tvo osta á fat og raðið í
kringum þá þurrkuðum fíkjum,
döðlum og rúsínum. Dreifið val-
hnetukjörnum yfir ásamt pist-
asíuhnetum sem ristaðar hafa
verið með hvítlauk.
Fíkjur, döðlur,
rúsínur, hnet-
ur og ostur