Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014
Ég fékk tækifæri til þess að hafa áhrif á fjár-lög ríkisins næsta ár er ég tók tímabundiðsæti á alþingi nú í desember. Eða þannig.
Aðkoma alþingis að fjárlögunum í desember ein-
kennist af óteljandi breytingartillögum og yf-
irgengilegum málamiðlunum á alla kanta, skí-
treddingum myndi einhver segja. Fyrir þann
sem kemur inn í vinnuna á þessu stigi endist sól-
arhringurinn ekki til þess að fá yfirsýn yfir allt
sviðið sem fyllist af hæfileikalausum leikurum
eftir því sem nær dregur atkvæðagreiðslu. Mál-
þóf um eitthvað sem engu máli skiptir, í þeim til-
gangi að knýja fram milljón krónur hér og þar,
er regla frekar en undantekning í desember.
Málþóf í þágu skattalækkunar og minni rík-
isreksturs þekkist hins vegar ekki. Því miður. Ég
skal vera fyrst manna til þess að viðurkenna að
fjárlögin, sem ég tók þátt í að samþykkja, kveða
á um margvísleg ónauðsynleg ríkisútgjöld, óráð-
síu jafnvel. Hins vegar áttu sér stað undur og
stórmerki sem draga úr sárustu kvölinni sem
fjárlagafrumvarpið veldur frjálslyndu fólki
hægra megin í pólitík. Einn ógagnsæjasti skatt-
urinn var afnuminn í eitt skipti fyrir öll. Vöru-
gjöld, 15-25%, hafa verið lögð á ýmsar vörur sem
við öll notum daglega; handáburð, ávexti, gólf-
teppi, krullujárn, lampa, brauð … Það var eig-
inlega hátíðlegt að taka þátt í afnámi þessa sér-
kennilega skatts á svokallaðar almennar vörur.
En við erum ekki laus við óeðlilega skatta,
ekki einu sinni alveg laus við vörugjöldin. Bif-
reiðar, áfengi, búvörur og tóbak bera áfram
vörugjöld. Efra þrep virðisaukaskattsins er enn
allt of hátt, og neðra auðvitað líka. Tollar eru
áfram við lýði.
Mönnum er mjög í mun að draga úr áhrifum
skattkerfisbreytinganna á ýmsa hópa. Alls kyns
undanþágur hafa tíðkast. Ferðaþjónustan hefur
ekki innheimt virðisaukaskatt en hefur nú verið
felld í neðra þrepið. Af hverju ekki það efra?
Laxveiði er áfram undanþegin virðisaukaskatti.
Bílaleigur og rútubílafyrirtæki hafa fengið und-
anþágur frá vörugjöldum á bifreiðar. Nú í des-
ember var dregið úr undanþágu bílaleiga en ekki
rútufyrirtækja. Áfram verður innflutningur á bíl-
um sem einkum hátekjufólk kaupir (rafmagns-
og metanbílar) undanþeginn vörugjöldum eða
með verulegum afslætti en aðrir bílar bera áfram
allt að 65% vörugjöld. 65%!
Hví þessar undanþágur og afslættir yfirleitt?
Jú, vegna þess að þessir skattar eru of háir. Af-
nám vörugjaldsins nú í einu skrefi sýnir að það
er hægt að taka skynsamlegar ákvarðanir við
fjárlagagerð og ná nægilegri samstöðu um þær á
alþingi. Næstu skref þarf að taka við gerð næstu
fjárlaga, ekki þarnæstu. Af nógu er þar að taka.
Hátíðarstund á alþingi
* Ef löggjafinn viður-kennir að sumum fyr-irtækjum er ofviða að greiða
þá skatta sem lagðir eru á
hvað má þá segja um heim-
ilin í landinu og getu þeirra
til að greiða t.d. 65% vöru-
gjald fyrir fjölskyldubílinn?
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridur.andersen.is
Jón Gnarr, fyrrverandi borgar-
stjóri og grínisti, setti fram eigin
kenningu á því á Facebook í vik-
unni af hverju landið okkar heitir
Ísland og sagði meðal annars í
henni: „Eftir mikið grúsk og sam-
töl við ýmsa fræðimenn þá er ég
kominn með kenningu um upp-
runa nafnsins Ísland. Ég held að
gríski landkönnuðurinn Pýþeas
hafi fyrstur manna fundið landið í
ferð sinni um 325 fyrir Krist. Ég
held að Pýþeas hafi nefnt Ísland
„Isla de Día“ eða „Eyja birtunnar“.
Ég býst við því að hann hafi verið
hér um hásumar. Engar frumheim-
ildir eru til um ferðir Pýþeasar
heldur einungis það sem róm-
verskir sagnfræðingar varðveittu.
Ég held að þegar Rómverjar afrit-
uðu grísk kort þá hafi þeir umrit-
að staðarnöfn úr grísku og yfir á
latínu. Gríska heitið á þessum
ókunna stað hafði ekki merkingu
fyrir þeim þannig að þeir brugðu
fyrir sig skítareddingu og nefndu
eyjuna „Is-
landia“.
Salka Sól
Eyfeld tón-
listar- og dag-
skrárgerð-
arkona
gagnrýndi verðlagningu á kaffi á
Twitter og á Facebook í gær og
birti mynd af verðmiðanum sem
var upp á 380 kr. Salka Sól skrif-
aði: „Kaffiterían á Reykjavík-
urflugvelli er ekkert að djóka með
verðið á kaffisoðning! Hver bolli
af svona soðning kostar í kringum
7 kr. í fram-
leiðslu.“
Sóley
Tóm-
asdóttir, for-
seti borg-
arstjórnar hjá
Reykjavíkurborg, fann gamla
skyrtu í pakkningu sem var keypt í
sálugu verslunarmiðstöðinni
Miklagarði sem var í Holtagörðum
á 9. áratugnum. Verðmiði frá
Miklagarði var á pakkningunni.
Hún skrifaði: „Afi minn fer ekki í
jólaköttinn. Hann var að kaupa
sér skyrtu. Í Miklagarði.“
AF NETINU
Jólavaka í beinni
Góðir gestir koma í sjónvarpssal til að vera með á Jólavökunni og má þar nefna Ásgeir Trausta.
Morgunblaðið/Rósa Braga
RÚV stendur fyrir svokallaðri jólavöku í
fyrsta skipti, í beinni útsendingu á Rás 2 og í
sjónvarpinu, nú um helgina, laugardaginn 20.
desember. Dagskráin stendur frá kl. 12.40 á
Rás 2 og stendur til 22 og tveggja klukku-
stunda dagskrá hefst kl. 19.40 í sjónvarpinu.
Meðal umsjónarmanna eru Ragnhildur
Steinunn Jónsdóttir, þeir Hraðfrétta-
stjórnendur, Brynja Þorgeirsdóttir, Gísli Ein-
arsson og Gísli Einarsson.
Farið verður um allt land á vökunni; fylgst
með skötuverkun, vel skreytt hús á Suður-
nesjum skoðuð og nyrsti skógur landsins
skoðaður. Auk þess munu gestir úr öllum átt-
um kíkja í sjónvarpssal, má þar nefna Ásgeir
Trausta, Pál Óskar og Heru Hilmarsdóttur.
Vettvangur
„Það er nánast ógnvekjandi að það
skuli vera til einhver sem er eins ekta
góður og Edda Magnason. Þú finnur
að þú stendur frammi fyrir einhvers
konar Mozart,“ segir blaðamaður og
gagnrýnandi Svenska Dagbladet í
gagnrýni um nýjustu sólóplötu Eddu
Magnason.
Woman Travels Alone er heitið á
nýrri plötu hinnar hálfíslensku tónlist-
ar- og leikkonu en Edda, sem er ein
vinsælasta tónlistarkonan í Svíþjóð,
átti stjörnuleik í kvikmyndinni Mon-
ica Z og var valin leikkona ársins í Sví-
þjóð árið 2013.
Platan fær glimrandi dóma í öllum
helstu dagblöðum og fjölmiðlum
landsins. Í dómi Svenska Dagbladet
kallar gagnrýnandinn Eddu jafnframt
„ofurmenni“.
Hin hálfíslenska Edda Magnason fær frábæra dóma fyrir
sólóplötu sína Woman Travels Alone.
Líkti Eddu
við Mozart