Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2014
Jólem bar sigur úr býtum í Jóla-
lagakeppni Rásar 2, sem lauk á
föstudaginn, með lagi sínu Vetr-
arljósið. Keppnin í ár var ein-
staklega vegleg og bárust alls 80
lög. Tíu þeirra voru valin í úrslit
og kepptu þau um hylli dómnefnd-
ar og hlustenda en Vetrarljósið
stóð að lokum uppi sem sig-
urlagið.
Jólem er eflaust betur þekktur
á öðrum árstímum sem Toggi No-
lem en heitir réttu nafni Þorgils
Gíslason. Hann hefur áður vakið
athygli sem meðlimur í hip hop-
sveitinni Skyttunum frá Akureyri
og átti hann einnig eitt vinsælasta
lag Rásar 2 á síðasta ári, Aheyb-
aró, ásamt félaga sínum Kött Grá
Pjé.
Í verðlaun fyrir sigurlagið í
Jólalagakeppni Rásar 2 hlýtur
Toggi 100.000 króna gjafabréf frá
Tónastöðinni, 100.000 króna gjafa-
bréf frá Svefni og heilsu og átta
rétta veislu fyrir sex á Sjávar-
grillinu.
SPENNANDI KEPPNI LOKIÐ
Vetrarljósið Jólalag Rásar 2
Menn bregða sér að sjálfsögðu í betri fötin fyrir viðburð eins og Jólalagakeppni
Rásar 2. Jólem ásamt félaga sínum Kött Grá Pjé, þeir gera út frá Akureyri.
„Vart er hægt að hugsa sér
skemmtilegra myndefni en ein-
mitt börn – en það krefst líka
mikillar þolinmæði hjá ljósmynd-
aranum,“ sagði í frétt Morg-
unblaðsins á aðfangadag fyrir
fimmtíu árum.
Blaðamaður, sem ekki lætur
nafns síns getið, og Ólafur K.
Magnússon ljósmyndari höfðu
brugðið sér í heimsókn á Vöggu-
stofu Thorvaldsensfélagsins á
Þorláksmessu og gat að líta af-
raksturinn á baksíðu blaðsins og
í myndaþætti á blaðsíðu 3.
„Sum barnanna litu
ljósmyndavélina heldur óhýru
auga og fóru að skæla, þegar
þau sáu blossann frá vélinni. Þá
hlupu þau í fangið á næstu
fóstru,“ segir í fréttinni. „Önnur
voru áræðnari, eins og t.d. hann
Palli, vinur okkar, sem tók á
móti Ólafi ljósmyndara opnum
örmum og vildi endilega fá að
stela skóreimum hans.“
Blaðamaður sá ekki annað en
ungviðið væri komið í jólaskap
og taldi líklegt að stórt jólatré,
sem blasti við allra augum, ætti
sinn þátt í því. Á vöggustofunni
dvöldust ungbörn allt að þriggja
ára aldri en þar voru rúm fyrir
32 börn. 16 stúlkur litu eftir
börnunum og unnu þrískiptar
vaktir.
GAMLA FRÉTTIN
Í jóla-
skapi
Þessir tápmiklu piltar stilltu sér upp fyrir ljósmyndara Morgunblaðsins á
Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins rétt fyrir jólin 1964. Hvergi bangnir.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Dominic Chianese
kvikmyndaleikari
Þröstur Ólafsson
hagfræðingur
Woody Allen
kvikmyndaleikstjóri
engin ranga bara rétta . . .
Tvöfalt prjón
Peysur • sokkar • vettlingar • treflar • húfur
hólkar • sjöl • teppi • og fleira
salka.is • Skipholti 50c • 105 Reykjavík
47 fjölbreyttar
uppskriftir að fallegum
slaufum
Fyrsta prentun uppseld
Önnur prentun komin í verslanir
Slaufa er ekki
bara slaufa ...