Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 20
Ásamt Disney World er Universal Orlando Resort
eitt helsta aðdráttarafl ferðamanna. Universal sam-
anstendur af tveimur stórum görðum, Universal
Studios og Islands of Adventure.
Þessi risastóri megagarður hentar frekar eldri
krökkum og fullorðnum. Í garðinum er ógrynni af
allskonar tækjum og rússíbönum sem hleypa miklu
magni af adrenalíni um æðar. The Simpsons, ýmsar
ofurhetjur, Kalli kanína og co., Transformers og fleiri
persónur er þar að finna.
Universal Orlando Resort og Disney World eru
gríðarlega vinsælir garðar og því má gera ráð fyrir
löngum röðum. Það er snjallt að verða sér úti um
svokallaðan Fast pass eða hraðpassa. Passinn gefur
forgang umfram alla þá sem ekki hafa slíkan passa
líkt og hraðkassarnir sem eru til staðar í matvöru-
verslunum. Aðeins er hægt að fá þrjá hraðpassa í
einu og því þarf að vanda valið vel. Viðkomandi er
úthlutað tímasetningu og þarf að mæta á réttum
tíma. Þegar tíminn er runninn upp og viðkomandi
mætir á svæðið þarf aðeins að bíða í 10-20 mínútur í
stað þess að bíða í klukkutíma eða tvo.
Leyndarmál skemmtigarðanna
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014
Ferðalög og flakk
Frá opnun Diagon Alley í Harry Potter-garðinum í fyrrasumar.
O
rlando á Florida er eft-
irsóknarverður staður,
sérstaklega fyrir fjöl-
skyldur. Borgin sjálf
er svo sem ekki mjög frábrugðin
öðrum borgum og mætti tala um
ósköp venjulega borg, en það sem
gerir svæðið umhverfis hana svo
áhugavert er fjölbreytt flóra
skemmtigarða og allskonar af-
þreying fyrir fjölskylduna.
Disney World, Universal Stud-
ios, Harry Potter-garðurinn, Legó-
land, sundlaugagarðar og sædýra-
söfn.
Á þessu svæði eru einnig glæsi-
legar verslunarmiðstöðvar og svo-
kölluð „outlet“ eða afsláttarbúðir,
þar sem hægt er að fá mikið fyrir
minni pening. Veitingastaðirnir í
Orlando og á nálægum svæðum
eru, ekki að undra, mjög amerískir
og hátíðlega er tekið á móti kúnn-
um. Það sem er einstaklega þægi-
legt við veitingastaðina er að þeir
eru langflestir afar fjölskylduvæn-
ir. Ekki þarf að stressa sig á því
að kerran komist ekki fyrir eða að
börnin séu með læti, því slíkt er
daglegt brauð og þjónar á veit-
ingastöðunum orðnir ansi sjóaðir.
Þetta má í raun segja um næstum
allt umhverfið í Orlando.
Andrúmsloftið er sannarlega af-
slappað og er Orlando á Florida
hinn fullkomni staður til að heim-
sækja með alla fjölskylduna í eft-
irdragi.
VILTU STRESSLAUSAN OG FJÖLSKYLDUVÆNAN STAÐ?
Ekta fjöl-
skylduparadís
JÓLIN Á ÍSLANDI ERU VISSULEGA DÁSAMLEG EN ÞAÐ ER HINS VEGAR VIRKILEGA
SKEMMTILEGT OG NÁNAST NAUÐSYNLEGT AÐ PRÓFA AÐ EYÐA ÞEIM ERLENDIS.
JÓLASTRESSIÐ VERÐUR FJARLÆGT, FJÖLSKYLDAN NÆR GÓÐRI SLÖKUN OG EKKI
ER VERRA EF STAÐURINN ER Í HLÝRRI KANTINUM.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Disney World, sem staðsett er
skammt frá Orlando, er dásam-
legur staður og sérstaklega fyrir
þau yngri. Þar er að finna allar
helstu persónur Disney-teikni-
mynda í fullri stærð, sem gleðja lítil
hjörtu. Garðurinn var opnaður 7.
október 1971. Á hverju ári sækja
tæplega 53 milljónir manna garð-
inn og er hann einn vinsælasti
ferðamannastaður allra tíma sam-
kvæmt Forbes. Kastali Öskubusku
er einkennismerki Disney World
og er kastalinn það fyrsta sem ber
fyrir augu þegar komið er á Disn-
ey-eyjuna en þangað þarf að fara
með ferju.
Mikki og Mína mús, Andrés önd
og Andrésína, Guffi og Plútó eru
að sjálfsögðu aðal-Disney-
hetjurnar en auk þess eru mun
fleiri persónur sem prýða garðinn
og sífellt bætist í hópinn í takt við
nýjar teiknimyndir. Í Disney World
eru allskonar tæki sem henta öll-
um aldri. Fyrir ári fór undirrituð
með son sinn, þá tveggja ára, í
Disney sem vakti gríðarlega lukku
þrátt fyrir ungan aldur. Bangsímon
og Bósi ljósár voru þar fremstir í
flokki. Disney er fyrir alla fjölskyld-
una og fólk á öllum aldri enda
finna líklega flestir til notalegrar
nostalgíu þegar garðurinn er heim-
sóttur.
Vissulega er margt fólk í garð-
inum og sér í lagi á háannatíma svo
sem um jól og páska en skipulag er
þó nokkuð gott og þurfa gestir líka
að skipuleggja eigin ferð.
Notaleg nostalgía
Guffi, Plútó, Mikki og Mína mús og Andrés önd eru aðalmálið í Disney World.
AFP
Í Universal eru allskonar
tryllitæki og rússíbanar
fyrir áhugasama ofurhuga.