Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 53
að horfa á enska boltann. Eitthvað var öðruvísi en venjulega og eftir smá umhugs- un áttaði ég mig á því hvað það var: Beggi var ekki að reykja. Bindindið entist fram yfir hálfleik, þá sprakk Beggi og bað Bald- vin Jónsson um sígarettu.“ Garðar rifjar upp að Bergur hafi ein- hverju sinni verið stöðvaður af næsta bíl í Ártúnsbrekkunni. „Það bullsauð á bílnum en Beggi tók ekki eftir því af því hann reykti svo mikið inni í bílnum.“ Annars áttu Bergur og bílar víst af- skaplega illa saman. Þeir rifja upp söguna af því þegar Bergur ætlaði með fjölskyld- una í sunnudagsbíltúr upp í Bláfjöll. „Það fór ekki vel,“ segir Garðar. „Hann festi bíl- inn á sumardekkjunum og það endaði með því að brjálaðir bílstjórar í röðinni á eftir honum tóku sig til og færðu bílinn út í kant. Beggi sat eftir með sárt ennið, í sum- arfrakka og á blankskóm.“ Dátt er hlegið. Þess má geta að elsti sonur Bergs, Guðni Bergsson, erfði sæti hans við borðið og lætur reglulega sjá sig. Einn á móti öllum „En hættum nú að tala um látna félaga sem ekki geta varið sig,“ segir Halldór. „Ég skal segja ykkur góða sögu af honum Harry hérna.“ Kliður fer um borðið. „Einu sinni hélt hann því fram að rauð- hærðir handknattsleiksmenn gætu aldrei verið góðir.“ Nú? „Fyrirgefðu að ég gríp fram í fyrir þér en allar sögur þarfnast útskýringa,“ segir Karl Harry. „Örugglega, þá útskýrir þú þetta bara á eftir,“ heldur Halldór áfram. „Ekki nóg með það. Hann hélt því líka fram að svart- ir knattspyrnumenn gætu aldrei verið góðir. Þetta var algjör sprengja inn í hópinn og menn tíndu til Pelé, Eusébio, Garrincha og fleiri snillinga. Þetta var sumsé hrakið hressilega en niðurstaðan varð sú að rauð- hærðir svertingjar væru vonlausir í báðum greinum.“ Karl Harry glottir. Síðan kemur hann með sínar skýringar. „Allar sögur breytast með árunum. Það er tóm þvæla að ég hafi talað um handbolta í þessu sambandi.“ Annars er Karli Harry hvergi brugðið. „Hér hef ég alltaf verið einn á móti öllum,“ upplýsir hann. „Ég er til dæmis eini krat- inn í hópnum. Hinir eru allir sjálfstæð- ismenn. Í mesta lagi einn og einn laumuk- rati. Það er nóg að ég taki til máls þá verður allt vitlaust.“ Af þessum sökum fór hann einhverju sinni í þagnarbindindi en þá fór allt úr skorðum líka. Þögnin fór víst sérstaklega illa í Hermann sem hélt því fram að settur hefði verið tappi í Karl Harry. Var hann uppnefndur „Tappinn“ lengi á eftir. Er hann ekki svartur? Nú bætist Sigurður Haraldsson í hópinn ásamt gesti sem hinir bera ekki kennsl á. „Þetta er tengdó,“ segir Sigurður. „Tengdó,“ étur Halldór upp eftir honum. „Er hann ekki svartur?“ Nú frussa menn hreinlega úr hlátri. Aumingja tengdó, sem heitir Björn Björns- son, veit ekki hvaðan á hann stendur veðr- ið. Kríthvítur maðurinn. Í ljós kemur að maðurinn er „tengdó“ í þeim skilningi að börn þeirra Sigurðar eru par. Eins og afreksmanna er siður fóru marg- ir úr hópnum að spila golf eftir að keppn- isskórnir voru komnir á hilluna. Fór þetta sérstaklega illa í Pétur og Garðar sem hót- uðu að hætta að mæta á Grjónapunga- fundum vegna stífra umræðna um þá íþrótt. Nú eru þeir víst allra manna for- fallnastir sjálfir. „Ég þekki engan sem hefur eytt jafn- miklu í að ná árangri í golfi og Pétur,“ segir Hörður. „Hann hefur gengið tugþús- undir kílómetra og flutt inn að minnsta kosti tvo þjálfara frá útlöndum. Á bak við þetta eru margar milljónir.“ „Í dollurum talið,“ bætir Ólafur við. Einhverju sinni var hópur Grjónapunga að leita að golfboltanum hans Péturs og Gunnar kallaði: „Hvernig bolta varstu með?“ Pétur svaraði að bragði: „Hvítan!“ Pétur lætur sér þetta grín á sinn kostnað í léttu rúmi liggja og gengst við eftirfar- andi: „Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég verð aldrei bestur í golfi – en ég gæti alveg orðið flottastur.“ Greifinn á Græna teppinu Talandi um flottheit þá er flottasti mað- urinn í hópnum að allra dómi, Þorsteinn Sí- vertsen, fjarri góðu gamni. Býr á Kan- aríeyjum yfir vetrartímann. „Skossi er svona Belmondo-týpa,“ upplýsir Ólafur. „Orðinn 72 ára en lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en sextugur.“ Þeir segja orðið séntilmaður eiga ákaf- lega vel við um Þorstein. „Skossi er alltaf vel til hafður, auk þess sem hann er af- skaplega kurteis maður að upplagi og nægjusamur. Lítil hvítvín dugar honum auðveldlega í þrjár helgar,“ segir Hörður. Þorsteinn nýtur að vonum kvenhylli og Gunnar segir hann vera með pikköpplín- urnar á hreinu. „Fyrirgefðu gæskan, er ég ofarlega á danslistanum hjá þér?“ Fram kemur að Þorsteinn sé að vinna í því að setja upp hádegishringborð á Kan- arí, einskonar útibú frá FÍGP. Gælunafn kappans, „Greifinn á Græna teppinu“ vekur forvitni en fátt er um svör við borðið. „Segðu bara að Græna teppið sé heilsubót- arstaður,“ segir Ólafur og dregur augað í pung. Hefur prófað allar greinar Hafi Gunnar gestgjafi haldið að hann væri sloppinn er öðru nær. „Íþróttaálfurinn okk- ar,“ segir Halldór og slær á öxlina á Gunn- ari. „Enginn okkar á fleiri medalíur.“ „Að vísu hefur hann keypt þær flestar,“ bætir Pétur við. Karl Harry segir enga íþróttagrein til sem Gunnar hafi ekki prófað. Hann sé til dæmis heimsmeistari í badminton uppi á jökli. Þá sé hann líklega eini Íslendingurinn sem hafi sigrað Pétur Guðmundsson, fyrr- verandi NBA-leikmann, í körfubolta, maður á móti manni. „Hvað voruð þið gamlir þá, Gunni?“ spyr Hörður. „Þriggja ára?“ Halldór upplýsir að Bergur og Hermann hafi stöðugt verið að gera lítið úr íþrótta- afrekum Gunnars en eftir að þeir féllu frá hafi hann blómstrað og notið sannmælis. „Já, einfaldlega vegna þess að ég hef loksins komist að,“ segir Gunnar. Menn hristast úr hlátri. Talið berst að kvennamálum Gunnars sem er einhleypur. Sitthvað látið flakka sem líklega á lítið erindi við lesendur Morgunblaðsins! Í ljós kemur að Gunnar er að viðra hund fyrir konu um þessar mundir, einu sinni í viku. „Er hún einhleyp?“ spyr Hörður. „Nei,“ svarar Gunnar. „En hundurinn er alla vega einhleypur!“ segir Hörður. Það er bara stungið Halldór grípur þetta á lofti. „Já, það eru menn í þessum hópi sem segja að ganga eigi hratt og vasklega til verka í kvenna- málum.“ „Eins og þið heyrið þurfa menn að vera með breitt bak í þessum hópi,“ segir Karl Harry. „Hér hikar ekki nokkur maður. Það er bara stungið.“ Þeir eru sammála um að Bergur og Her- mann hafi verið sérstaklega aðgangsharðir, þegar sá gállinn var á þeim. „Beggi lét ekki liggja í láginni,“ segir Karl Harry og Hörður bætir við að Hermann hafi snemma komið sér upp skotheldu kerfi: Sókn er besta vörnin! „Fyrir vikið hafði hann orðið 70% af tímanum og kom þannig í veg fyrir að aðrir kæmust að til að skjóta á hann.“ Ekki svo að skilja að menn langaði endi- lega að gera það. „Menn vissu að það voru margir snöggir blettir á Hermanni og virtu það,“ segir Halldór og bætir við glottandi: „Svona yfirleitt.“ Komdu þér í form, karlinn! Skyndilega er Garðar horfinn. „Ætli hann hafi ekki farið í ræktina,“ segir Halldór. „Hann er að slá sér upp með konu sem sagði beint út við hann: Ætlir þú að vera með mér, karlinn, skaltu koma þér í form!“ Enn er hlegið. Þrátt fyrir allt fullyrðir Karl Harry að Félag íslenskra grjónapunga hafi að geyma kurteisustu og tillitssömustu menn í heimi. Beðinn að rökstyðja það svarar hann: „Jú, sjáðu til. Við getum hlustað á sömu söguna á hverjum degi og alltaf látið eins og við séum að heyra hana í fyrsta sinn!“ Með tilheyrandi hlátrasköllum ... Ólafur H. Jónsson, Pétur Guðmundsson og Hörður Hilmarsson hlæja sig máttlausa. Ætli þeir hafi heyrt söguna fyrr? „Er hann ekki svartur?“ var Sigurður Haraldsson spurður um „tengdó“, Björn Björnsson. „Sjáðu til, það þarf að útskýra allar sögur,“ segir Karl Harry Sigurðsson. 21.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.