Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 39
21.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Að tísta er eins og að senda rosa kúl símskeyti
til vina þinna einu sinni í viku.
Tom Hanks
Hver skyldi nú eiginlega vera að
hringja í mig? Þetta var spurning
sem heltók marga hérna áður
fyrr þegar síminn glumdi skyndi-
lega á stofuborðinu og engin leið
var að svara henni nema með því
að taka sénsinn og svara í símtól-
ið. Númerabirtirinn kom að góð-
um notum á þessum tíma og
gerði fólki kleift að sjá hver væri
að hringja án þess að þurfa nauð-
synlega að svara viðkomandi. Ekki
var óalgengt að sjá slík tæki aug-
lýst á seinni hluta tíunda áratug-
arins. Þá geymdi hann 50 síðustu
númer og virkaði þannig líka sem
símboði – tæki sem einnig á skilið
sjálfstæða umfjöllun. Það var í raun ekkert minna en bylting að koma heim eftir langan dag og þurfa ekki
að lifa í óvissu um hver hafði reynt að hringja í mann. Númerabirtirinn eyddi óvissunni og lítið mál að
hringja til baka. Eftirspurn eftir númerabirtum varði þó ekki lengi enda tóku fljótlega að koma á markað
heimasímar sem voru með innbyggðan númerabirti. Þá leið ekki á löngu þangað til farsíminn hóf innreið
sína á íslenskan markað og þá varð ekki aftur snúið, hver einasti sími sem var framleiddur bauð upp á
innbyggðan númerabirti.
GAMLA GRÆJAN
Númerabirtirinn lifði
skammt á markaði á tíunda
áratugnum en gaf fyrirheit
um það sem í vændum var.
Númerabirtirinn eyddi óvissunni
Huggulegt er að fá sér gönguferð í góðra vina hópi um
Winter Wonderland í Hyde Park í Lundúnum yfir hátíð-
arnar. Þar er selt jólaglögg og heitt kakó á básum, börn
skemmta sér í afþreyingartækjum og fullorðnir kaupa
jólavarning. Athygli vekur að fleiri og fleiri hópar kjósa að
staðnæmast í mannþrönginni – sá sem í miðjunni stendur
dregur fram lítið prik og smellir símanum sínum á enda
þess, rekur svo höndina út og tekur hópmynd af skælbros-
andi samferðafólki sínu. Hér er um að ræða selfie-prikið,
uppfinningu sem auðveldar fólki að taka mynd af sjálfu sér
úr þægilegri fjarlægð. Selfie-myndir hafa náð miklum vin-
sældum með tilkomu samskiptamiðla og orðið selfie var til
að mynda valið orð ársins 2013 af sérfræðingum Oxford
orðabóka. Þeir sem smellt hafa af einni slíkri á snjallsíma
vita hversu vandasamt getur verið að taka sómasamlega
sjálfsmynd með útréttan handlegg. Því hefur sala á selfie-
prikum rokið upp á undanförnum mánuðum og talið er
öruggt að margir jólapakkar í ár muni innihalda eitt slíkt.
Selfie-prikin eiga rætur sínar að rekja til snjóbretta- og
hjólabrettafólks sem vildi geta tekið myndir af sér á ferð.
Japanir voru fljótir að kveikja á möguleikum selfie-
priksins og nú hefur æðið borist til Vesturlanda. Fyrir-
tækið Selfie Pods á Englandi segist hafa selt um 6.000
stykki á tímabilinu frá ágúst til loka nóvember. Talið er að
annað eins muni fara í jólaversluninni. Enn sem komið er
fer ekki mikið fyrir selfie-prikinu hér á landi en óhætt þyk-
ir að spá því að innreið þess muni fara fram fyrr en síðar.
Tvær stúlkur taka hér vandkvæðalaust magnaða útsýnis-
selfie með atbeina priksins góða.
AFP
Selfie-prikið í
jólapakkana
NÝJASTA NÝTT
Símaframleiðandinn Blackberry hef-
ur nú sent frá sér nýjan síma sem
kynntur er sem „Ekkert-kjaft-
æði-sími“ í nýrri markaðsherferð
fyrirtækisins. Sá nýi minnir mjög á
símann vinsæla sem gerði framleið-
andann að leiðandi afli á farsíma-
markaði fyrir nokkrum árum. Hönn-
un símans byggist mikið á þeim
gamla og aðdáendur hans ættu að
gleðjast yfir því að sjá lyklaborðið
gamlakunna enn á sínum stað. Sér-
fræðingar á fjarskiptamarkaði segja
að með þessari aðgerð sé Blackberry
að „snúa aftur til róta sinna“ í því
augnamiði að höfða til viðskiptavina
sinna í fjármálageiranum. „Þetta
snýst í raun meira um að halda í
viðskiptavini og hættan er sú að nýi
síminn laði ekki marga nýja við-
skiptavini til fyrirtækisins,“ sagði
sérfræðingurinn Carolina Milanesi
hjá Kantar WorldPanel í samtali við
BBC. „Ég á erfitt með að sjá fyrir
mér að fólkið sem ólst upp við snert-
iskjái muni sjá þetta sem spennandi
retro-vöru og taka henni fagnandi.“
Þó telja sumir að með þessu sýni
Blackberry að fyrirtækið sé með-
vitað jafnt um styrkleika sína sem
veikleika.
Ekkert kjaftæði frá Blackberry
SÍMI FRÁ BLACKBERRY SEM
ER Í SENN NÝR OG
GAMALDAGS VEKUR
MISJÖFN VIÐBRÖGÐ HJÁ
SÉRFRÆÐINGUM.
Blackberry-símar nutu mikilla vinsælda í viðskiptalífinu fyrir nokkrum árum en
fyrirtækið hefur átt erfitt uppdráttar eftir tilkomu iPhone á markað.
AFP
Studio 2.0
Verð frá59.990.-
Njóttu tónlistarinnar í ró og næði
með ANC tækninni (Adaptive Noise
Canceling). Þegar þú hlustar á tónlist
þá útilokar ANC-tæknin umhver-
fishljóð eftir mismunandi hávaða og
aðstæðum í umhverfinu.
Litir °°°°
Solo2
Verð 37.990.-
Solo2 heyrnartólin eru
kraftmikil, tær og færa þig nær
þeim gæðum sem tónlistar-
maðurinn vill að þú upplifir.
Litir °°
UrBeats
Verð18.990.-
UrBeats In-Ear heyrnartól,
fást í iPhone litunum.
Litir °°°