Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 36
N
ominet Trust, tæknifjárfestingarsjóður sem sérhæfir sig í verkefnum í al-
mannaþágu, sendi nýlega frá sér lista yfir 100 tækniframfarir sem stuðlað
hafa að bættum heimi á árinu 2014. Á listanum er að finna margvíslegar
tækninýjungar hvaðanæva og þar sitja jafnt til borðs framlög frá þróuð-
um ríkjum sem vanþróaðri. Listinn er of langur til þess að hægt sé að fjalla um allar
nýjungarnar en hér verður stiklað á stóru og fjallað um nokkur atriði sem er að finna
á listanum; athyglisverða tækni sem vafalaust mun setja svip sinn á heiminn innan tíð-
ar.
Tækninýjungar sem stuðla að betri heimi
UM VÍÐA VERÖLD EINBEITIR FJÖLDI MANNA SÉR AÐ ÞVÍ AÐ REYNA AÐ BÆTA LÍFSKJÖR ANNARRA MEÐ UPPFINNINGUM SÍNUM. Á
MEÐAL ÞEIRRA UPPFINNINGA SEM ÞYKJA MEÐAL ÞEIRRA HUNDRAÐ BESTU ÁRIÐ 2014 ERU UMHVERFISVÆNN ÞYNGDARAFLSLAMPI,
KORTLAGNING KYNFERÐISGLÆPA Í EGYPTALANDI OG LEITARVÉL SEM ÆTLAR SÉR AÐ VELTA GOOGLE ÚR SESSI.
Halldór A. Ásgeirsson haa@mbl.is
Græjur
og tækni
AFP
*Verið er að þróa nýja tegund gallabuxna sem eruþess eðlis að þær koma í veg fyrir að tölvu-þrjótar geti nýtt sér þráðlausa tengingu til aðbrjótast inn á þráðlaus greiðslukort. Að sögnsérfræðinga færist slíkur þjófnaður stöðugt ívöxt. Buxurnar eru hannaðar í samvinnu viðtölvuöryggisfyrirtækið Norton og koma á al-
mennan markað í febrúar að því er fram kemur
á vef BBC.
Gallabuxur verjast netþjófnaði
Hér er um að ræða lítið sprota-
fyrirtæki frá Philadelphiu sem
setti sér það smávægilega mark-
mið að velta Google úr sessi og
veita risanum harða sam-
keppni á sviði leitar á
netinu.
Um 20 manns
vinna hjá félaginu
sem stendur og
tromp fyrirtæk-
isins felst í frið-
helgi einkalífs.
Ólíkt Google
safnar Duck-
DuckGo hvorki
upplýsingum né deilir
þeim með þriðja aðila.
Einkunnarorð DuckDuckGo eru
að hér sé á ferðinni leitarvél sem
ekki fylgist með þér. Þá er jafn-
framt minna af auglýsingum og
rusli inni á síðunni.
Síðunni var hleypt af stokk-
unum árið 2008 og í júní 2013
framkvæmdi hún daglega um
tvær milljónir leita. Í september
sama ár, eftir uppljóstr-
anir Edwards
Snowdens, var
þessi tala kom-
in í fjórar
milljónir og
árið 2013
var heildar-
fjöldi leita á
síðunni rúm-
lega milljarður.
Nú hafa fjár-
festar kveikt á per-
unni og flykkst til
DuckDuckGo. Hresst hefur ver-
ið upp á útlit síðunnar og leit-
arvélin fylgir nú forhlaðin með
nýjustu stýrikerfum Apple svo
dæmi sé tekið.
DuckDuckGo
HarassMap er stórmerkilegt frumkvæði í Egyptalandi
sem miðar að því að beita uppsafnaðri hópþekkingu til
þess að kortleggja kynferðisglæpi í landinu og stuðla að
því að kynferðisglæpamenn komist ekki upp með brot
sín að refsilausu. 83% kvenna og 98% erlendra kvenna í
Egyptalandi hafa mátt þola kynferðislega áreitni eða
verri brot.
Fjórar konur eru á bak við verkefnið og því var
hleypt af stokkunum árið 2009. Hægt er að senda á
einfaldan hátt inn nafnlausar frásagnir af því hvar og
hvers konar ofbeldi eða glæp viðkomandi hefur mátt
þola og þá er jafnframt mögulegt að merkja framlögin
ákveðnum flokkum sem ná yfir allt frá dónalegum
ávörpum til óviðeigandi hegðunar og jafnframt nauðg-
unar.
Þolendur fá samstundis send stuðningsskilaboð með
upplýsingum um hvar hægt er að nálgast lögfræði- og
sálfræðiaðstoð, læra sjálfsvörn og hvernig kæra skal til
lögreglu. Upplýsingarnar og gögnin sem fást fyrir at-
beina þessa kerfis gera aðstandendum HarassMap kleift
að greina stærð vandamálsins í Egyptalandi og á hvaða
stöðum það er alvarlegast og jafnframt átta sig á töl-
fræðistaðreyndum um bæði fórnarlömb og gerendur.
HarassMap
Hér er um að ræða uppfinningu sem eflaust hefði fyllt sir Isaac
Newton stolti; afar ódýran lampa sem knúinn er áfram af
þyngdaaflinu einu saman. Markmiðið með hönnuninni er að út-
rýma hættulegum, mengandi og dýrum steinolíulömpum. Þyngd-
araflslampinn er að vísu ekki stafræn uppfinning en fékk engu að
síður að fljóta með inn á listann í krafti snilldarinnar sem í hon-
um felst.
Einn fimmti hluti jarðarbúa neyðist til þess að nota stein-
olíulampa vegna þess að aðgangur hans að rafmagni er takmark-
aður. Á hverju ári er dauði 1,5 milljóna manna í Afríku tengdur
við eim frá steinolíulömpum og þá er jafnframt afar algengt að
alvarleg brunasár megi rekja til notkunar slíkra lampa. Þá gefur
slíkur lampi, sem látinn er loga fjórar klukkustundir á dag, frá
sér 150 kíló af koltvísýringi út í andrúmsloftið á ári hverju.
Lampinn virkar þannig að hlut sem vegur um 15 kíló (til dæm-
is bara poki fylltur með mold) er lyft og hann látinn falla til jarð-
ar. Í fallinu framleiðir hluturinn hreyfiorku sem knýr hljóðlátan
mótor sem aftur býr til nægilegt rafmagn til þess að knýja lamp-
ann í 25 mínútur.
Gravity Light
Duolingo er afar vinsælt tungu-
málaforrit sem tengir á snjallan hátt
saman ríka eftirspurn eftir góðri
þýðingaþjónustu og mikið framboð
af nemendum sem vilja læra tungu-
mál ókeypis. Stofnandi Duolingo,
Luis von Ahn, setti upp síðuna til
þess til að bæta aðstæður þeirra
sem vilja virkilega læra nýtt tungu-
mál til þess að öðlast frekari tæki-
færi í samfélaginu en hafa hins vegar
ekki þá peninga sem þarf milli
handanna.
Hann megnaði að setja upp hell-
ing af háklassa-tungumálakúrsum á
netinu – ókeypis. Og hvernig fór
hann að því? Með því að fá við-
skiptavini sem vantar þýðingaþjón-
ustu til þess að borga fyrir herleg-
heitin.
Líkt og margir aðrir tungumála-
skólar gerir Duolingo nemendum
sínum kleift að æfa sig með því að
vinna þýðingar. Það sem aðgreinir
Duolingo frá öðrum skólum er að
þessar þýðingar eru fyrir alvöru-
kúnna, sem greiða fyrir hraðvirka
þýðingaþjónustu. Nemendur Duo-
lingo geta þýtt margvíslega texta,
kosið um nákvæmni þýðinganna og
kúnnar á borð við CNN og Buzz-
feed reiða fram fjármuni í staðinn.
Duolingo Þessi vefsíða er sú fyrsta sinnar tegundar sem hefurþað að markmiði að vernda uppljóstrara sem leka
upplýsingum um glæpi sem framdir eru gegn dýr-
um. WikiLeaks-módelið er nýtt til þess að upp-
ljóstrarar geti komið á framfæri upplýsingum um
slæma meðferð á dýrum án þess að eiga á hættu að
þurfa að gjalda slíkt dýru verði.
Upphaflega hugmyndin var sú að koma síðunni á
fót til þess að stemma stigu við ólöglegum við-
skiptum með tegundir í útrýmingarhættu. Wild-
Least styðst við öfluga kóðunarferla svo hver sem
er og hvenær sem er, hvort sem viðkomandi verð-
ur vitni að ólögmætum veiðum eða flutningi dýra
milli staða og svo framvegis, getur gert viðvart.
Löggæsluaðilar hafa átt í erfiðleikum með að hafa
hemil á vel skipulögðum og fjármögnuðum glæpa-
samtökum sem sérhæfa sig í ólöglegum viðskiptum
með dýr í útrýmingarhættu. Talið er að iðnaðurinn
sé virði um 20 milljarða bandaríkjadollara á ári.
WildLeaks