Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 42
Hátíðleg og fáguð förðun er fullkomin yfir hátíðarnar. Morgunblaðið/Þórður K ristjana Guðný Rúnarsdóttir lærði förðun árið 1996 í Make up Forever og hefur síðan farðað fyrir ýmis tímarit. „Síðastliðin 11 ár hef ég unnið fyrir Lancome og síðastliðin níu ár hef ég starfað sem national makeup artist hjá Lancome sem felst í því að fara á hverju ári í próf og verja þannig titilinn.“ Kristjana farðar mikið fyrir tískuþætti og forsíður helstu tímarita landsins en hún hefur einnig farðað stórstjörnur og fylgt þeim eftir sem einkaförðunarfræðingur, meðal annars hefur hún unnið fyrir Yoko Ono og dóttur Isabellu Rosselini og barna- barn Ingrid Bergman, Elettru Rossellini Wiedemann. Kristjana segist hafa mikla ástríðu fyrir því að þjónusta kúnnann vel og gefa góða ráðgjöf. „Með þessari jólaförðun langaði mig að sýna konum hvað það er hægt að gera auðvelda, fallega og elegant förðun fyrir jólin. Hvernig hægt sé að líta vel út án þess að stressa sig mikið yfir því.“ Hátíðlegt og einfalt Það sem Kristjana gerði var að undirbúa húðina vel með farðagrunni sem gefur húðinni fallegan ljóma og jafnar húðtóninn. Næst bar hún augn- skuggagrunn á augnlokin en þá helst augnskugg- inn betur. Því næst bar hún farða á húðina með farðabursta og setti ljómapenna undir augun til að lýsa upp augnsvæði og gefa bjartara útlit og í kringum varirnar til að lýsa upp varasvæðið en þá helst varaliturinn lengur. Kristjana bar að því loknu laust púður létt yfir allt andlitið til þess að festa farðann. Með því að bera laust púður yfir farðann helst farðinn allan daginn. Kristjana notaði síðan matt sólarpúður til þess að móta hjá kinnbeinum. Byrjað er frá enni og undir kinnbein, einnig bar hún sólarpúður undir kjálkabeinið til að móta andlitið. Næsta skref er augnskugginn en Kristjana valdi fimm lita augnskuggapallíettu. Kristjana byrjaði á ljósasta litnum og bar hann yfir allt augnlokið og á milli brúna til að fá meiri dýpt á skygginguna. Dökkbrúna litinn bar hún rétt í glóbuslínuna og blandaði vel saman. Ljósasti liturinn fer í augnkrókinn og létt undir augabrún. Dökkfjólublái liturinn í pallíettunni notaði hún undir neðri augnhárin til að ramma inn augnlokin. Næst var borinn þægilegur og auðveldur augnlínupenni á augnlokin. Svo er það maskarinn sem gerir augnhárin dramatísk. Kristjana mótaði augabrúnirnar með augnhárablýanti. Á epli kinnanna notaði notaði hún mildan kinnalit. Að lokum var varalitur borinn á varirnar. Kristjana segir mikilvægt að móta var- irnar með varablýanti þegar notaður er sterkur varalitur svo hann haldist betur. Kristjana valdi sterkan varalit sem hún segir ekta hátíðarvaralit sem helst vel á vör- unum og gefur mikla fyllingu. Fyrirsæta: Berglind Brá Jóhannsdóttir. Vörurnar sem Krtistjana notaði: La Base pro Hydra Glow, farðagrunnur. La Base Paupiéres Pro 02, augnskuggagrunnur. Taint Miracle nr. 005, farði. Poudre Majeur, laust púður. Star Bronzer 03, matt sólarpúður. Hypnôse Doll Eyes D08, augnskuggapallíetta. Artliner 24 hr. nr. 12, augnlínupenni. Grandiose, maskari. Le crayon cecils nr. 010. Le Contour Pro 315, varablýantur. L’absolu Rouge 368, varalitur.  Sólarpúður er notað til þess að skyggja og skerpa andlitið. Matt sólarpúður er borið á frá enni og undir kinnbein og einnig undir kjálka- línu. Kristjana Guðný og Berglind Brá. JÓLAFÖRÐUN Einföld og klassísk jólaförðun UM HÁTÍÐARNAR ER SKEMMTILEGT AÐ SKARTA SÍNU FEGURSTA OG HENTAR KLASSÍSK, EINFÖLD OG ÞÆGILEG FÖRÐUN SÉRSTAKLEGA VEL UM JÓLIN. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is  Til að byrja með er borinn farðagrunnur á húðina sem gefur húðinni ljóma og augnskugga- grunnur á augnlokin svo að augnskugginn hald- ist betur. Síðan er borinn á farði með pensli sem gefur jafna og fallega áferð.  Augnskugginn borinn á augun. Ljós litur er borinn á allt augnlokið og á milli brúna til að fá meiri dýpt á skygginguna. Dökkur litur er síðan borinn á glóbuslínuna og blandað vel. Dekksti liturinn er borinn undir neðri augnhárin til að ramma inn augnlokin.  Augnlínupenni og maskari gefa augunum skarpara yfirbragð. 42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014 Tíska
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.