Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014
L
jóðabók Kristínar Ei-
ríksdóttur Kok er til-
nefnd til Íslensku
bókmenntaverð-
launanna og bóksalar
völdu hana ljóðabók ársins. Krist-
ín er myndlistarmenntuð og í
bókinni eru teikningar eftir hana
sem tengjast beint efni ljóðanna.
Kristín eyðir jólum og áramótum
á Spáni og í Portúgal þar sem
hún leggur lokahönd á leikrit
sem sýnt verður í Borgarleikhús-
inu á næsta ári. „Leikritið heitir
Hystory og fjallar um þrjár kon-
ur sem voru bestu vinkonur í
grunnskóla, frá því í sex ára
bekk þar til sumarið eftir 10.
bekk þegar þær eru fimmtán
ára. Svo gerist eitthvað sem
verður til þess að þær slíta öll-
um samskiptum og hittast ekki
fyrr en tuttugu árum síðar,“ seg-
ir Kristín.
Það eru yfirleitt mikil átök
milli persóna í verkum þínum og
þær sýna þar oft mikla grimmd.
„Já, það er rétt. Það er bæði
blessun og bölvun að sjá
grimmdina í samskiptum og vera
meðvitaður um hana. Það er al-
veg hægt að lifa lífinu án þess
að velta því fyrir sér og væri
kannski auðveldara. Ég held samt
kannski að maður hafi ekki val
um það hvort maður dettur inn á
þessa rás eða ekki. Ég varð ein-
hvern veginn manneskja sem sér
þessa hlið á samskiptum fólks og
svo óvart líka manneskja sem
miðlar því sem hún sér. Þannig
er þetta bara stundum.“
Gat ekki verið í ramma
Móðir þín er Ingibjörg Haralds-
dóttir skáld og þýðandi. Mótaði
hún að einhverju leyti áhuga
þinn á skáldskap?
„Áhrif hennar eru óskaplega
mikil. Mamma er dásamlegt skáld
og hefur haft áhrif á mig í gegn-
um skáldskap sinn. Það eru setn-
ingar í ljóðum hennar sem lifa
alltaf með mér. Hún hafði líka
mikil áhrif á mig með því að ala
mig upp við lestur. Ég las óg-
urlega mikið sem barn og með
henni og hún hafði mjög góðan
smekk á barnabókum. Uppáhalds-
rithöfundurinn minn þegar ég var
lítil var Maria Gripe og ég vil
hér með koma þeirri ósk á fram-
færi að bækur hennar verði end-
urútgefnar. Þetta eru enn þær
bækur sem hafa haft mest áhrif
á mig, sama hvað ég les mikið
sem fullorðin manneskja.
Gripe er aldrei að skrifa niður
til neins bara af því að hann er
lítill. Ein af bókum hennar er
Húgó og Jósefína sem fjallar um
strák sem fann sig ekki í skóla-
kerfinu og var alltaf úti í skógi
að safna kóngulóm. Ég held að
Húgo hafi haft mikil áhrif á mig
af því ég fann mig ekki í skóla-
kerfinu. Það veldur venjulega
miklu uppnámi þegar barn finnur
sig ekki í ramma en þarna sá ég
loksins persónu sem fann sig
ekki í skólakerfinu og það var
bara allt í lagi. Það bara hentaði
honum ekki að vera í ramma! Ég
las bækurnar um Húgó aftur og
aftur vegna þess að ég gat ekki
verið í ramma. Það er sannarlega
ekkert að því að finna sig í
skólakerfinu, en sumir gera það
ekki. Ef maður stendur sig ekki
í skóla þykir maður strax annars
flokks. Slíkan stimpil er mjög
grimmilegt að setja á barn.“
Var þetta erfitt fyrir þig?
„Já, og mótaði mig mjög. Það
bjargaði miklu að hafa aðgang að
bókmenntum. Ég átti líka óskap-
lega listræna ömmu og pabba
sem er mjög vítt þenkjandi og
þau höfðu vit á því, ásamt
mömmu, að hvetja mig áfram í
því sem ég gat. Ég gat skrifað
ritgerðir, teiknað og skrifað og
var góð í stafsetningu, en allar
raungreinar þvældust fyrir mér. Í
skólakerfinu var svo mikil áhersla
lögð á það sem börn gátu ekki
og það skapaði stöðugt niðurrif.
Þegar ég var í tíunda bekk
gafst ég upp og ákvað að það
væri ekki þess virði að fara í
skóla. Ég var komin svo langt
aftur úr í raungreinum og var
svo viðkvæm að ég náði ekki að
harka af mér eins og sumir geta.
Ég gafst upp og mætti ekki í
samræmdu prófin. Mamma studdi
mig í þeirri ákvörðun og hvatti
mig til að skrifa. Hún missti ekki
„Ég geri alltaf mitt
besta og reyni að
vera trú sjálfri mér
og því sem kallar á
mig,“ segir Kristín.
Morgunblaðið/Golli
Blessun og
bölvun að sjá
grimmdina
KRISTÍN EIRÍKSDÓTTIR ER HÖFUNDUR LJÓÐABÓKARINNAR
KOKS SEM TILNEFND ER TIL ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐ-
LAUNANNA. Í VIÐTALI TALAR KRISTÍN UM MIKILVÆGI BÓK-
MENNTANNA, GAGNRÝNI OG VERÐLAUN. TALIÐ BERST
EINNIG AÐ SKÓLAKERFINU SEM HÚN FANN SIG EKKI Í OG
ÁHRIFUM HÚGÓS HENNAR MARIU GRIPE.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
Svipmynd