Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Page 4
Nær allt hækkar nema leikskólar
Reykvíkingar munu finna fyrirgjaldskrárhækkunum borg-arinnar um áramót. Flestir
liðir í gjaldskrám borgarinnar
hækka um sem nemur væntanlegri
verðbólgu eða um 3,4%. Sumt
hækkar þó meira eða um 6-17%.
Mest hækkun er á ýmsum leyfum
sem tengjast mengunar- og heil-
brigðiseftirliti. Þá hækka sorp-
hirðugjöldin líkt og um síðustu
áramót, en þau hafa nú hækkað
um rúm 16% frá 2013.
Stærstur hluti tekna Reykjavík-
urborgar kemur til vegna útsvars
borgarbúa. Hluti þeirra tekna sem
borgin aflar kemur þó inn vegna
ýmissa annarra gjalda sem lögð
eru á þá sem nýta tiltekna þjón-
ustu. Gjöldin endurspegla þó ekki
endilega kostnað borgarinnar við
að veita þjónustuna.
Sorphirðugjöld hafa hækk-
að um 16% frá 2013
Sorphirðugjöld eru ein þeirra leiða
sem borgin fer til að afla tekna. Sé
miðað við hina hefðbundnu svörtu
tunnu þá var gjald af henni 18.600
krónur á ári fyrir hækkunina sem
var gerð um síðustu áramót. Með
hækkuninni um þessi áramót fer
gjaldið úr 20.400 í 21.600 krónur.
Húsfélag sem greiðir af fjórum
slíkum tunnum á ári þarf því að
greiða 12.000 krónum meira fyrir
umhirðu þeirra til borgarinnar en
það gerði á síðasta ári.
Algengast er að verð á þjónustu
hækki um 3-4%. Sá sem nýtir sér
einstaka þjónustuþætti finnur því
lítið fyrir hækkuninni, en þegar
allt er lagt saman gæti buddan
orðið ögn léttari. Gjald í sund fyrir
fullorðna hækkar úr 600 í 650
krónur, gjald fyrir börn hækkar úr
130 í 140 krónur og bókasafns-
skírteini hækkar úr 1.700 krónum í
1.800 krónur. Þá hækkar þjónusta
við eldri borgara sem nemur vísi-
töluhækkun, s.s. gjald fyrir heims-
endan mat og gjald fyrir fé-
lagsstarf.
Gjald fyrir börn á frístundaheim-
ilum borgarinnar hækkar líkt og
annað. Bæði skólamáltíðir og mál-
tíðir á leikskólum hækka einnig.
Gjald fyrir barn á frístundaheimili
fyrir fimm daga vikunnar fer úr
11.940 krónum í 12.350 krónur.
Hækkun matar étur upp
lækkun leikskólagjalda
Í frétt sem skrifuð var á vef borg-
arinnar í tilefni af gjaldskrárhækk-
unum fyrir nokkru var sett í fyr-
irsögn að leikskólagjöld yrðu
lækkuð. Það er í sjálfu sér rétt að
sjálft námsgjaldið á leikskóla lækk-
ar um 6,2-6,4%. Hins vegar hækk-
ar fæðisgjald um 3,2-3,4% sem
þýðir að í raun lækkar reikningur
foreldra alls ekki um fyrrnefnd 6,2-
6,4% þar sem flest börn eru í fæði
í leikskólum. Hækkun matarins ét-
ur þannig upp um helming lækk-
unarinnar og reikningur foreldra
lækkar því minna en borgin boðar
í sínum fréttaflutningi.
Þrátt fyrir að gjaldskrárhækk-
anir Reykjavíkurborgar um áramót
þýði að foreldrar greiði meira fyrir
mat á leikskólum og í grunnskólum
þá er það engu að síður svo að
miðað við áætlun ver borgin minna
fé til kaupa á mat handa börnum í
leik- og grunnskólum borgarinnar.
Samkvæmt rauntölum fyrir árið
2013 lagði borgin 1.019 milljónir
króna í hráefniskaup fyrir leik- og
grunnskóla, áætlun fyrir árið 2014
gerir ráð fyrir 1.206 milljónum
króna en á næsta ári er áætlað að
hráefni fyrir mötuneyti leik- og
grunnskóla borgarinnar kosti 1.178
milljónir, sem er 28 milljóna króna
lækkun frá því í ár. Maturinn er
því ódýrari fyrir borgina en dýrari
fyrir foreldra.
Hvað frístundaheimilin varðar þá
var sú breyting gerð um síðustu
áramót að borgin fækkaði starfs-
fólki með því að auka hámarks-
fjölda barna á hvern starfsmann.
Um þessi áramót hækka svo gjöld-
in á frístundaheimili um 3,4%.
Þjónusta hefur því verið dregin
saman á árinu en gjöld fyrir hana
verða engu að síður hækkuð.
Foreldrar greiða meira fyrir mat
handa börnum sínum í leikskólum
og grunnskólum frá áramótum þótt
námsgjald á leikskólum lækki.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
GJALDSKRÁR REYKJAVÍKUR HÆKKA UM ÁRAMÓT. ALGENGAST ER AÐ VERÐ Á ÞJÓNUSTU BORGARINNAR HÆKKI UM 3,4% EN SUMT HÆKKAR MEIRA.
LEIKSKÓLAGJÖLD ERU ÞAÐ EINA Í GJALDSKRÁM BORGARINNAR SEM LÆKKAR. MATARREIKNINGUR FORELDRA LEIK- OG GRUNNSKÓLABARNA HÆKKAR.
Sorphirðugjöld hækka um áramót líkt og um síðustu áramót. Árgjald fyrir
svarta tunnu hefur hækkað úr 18.600 krónum á ári í 21.600 krónur frá 2013.
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014
Einstæðir foreldrar, öryrkjar og
námsmenn í Reykjavík fá afslátt af
leikskólagjöldum og greiða raun-
ar minna fyrir leikskólavist barna
sinna en víðast hvar annars stað-
ar. Þegar börn þeirra færast upp
um skólastig – og gjöldin sem
greiða þarf til Reykjavíkur eru
ekki fyrir leikskóla heldur fyrir
frístundaheimili og skólamáltíðir
– þá er enginn afsláttur. Ekkert
samræmi er í afsláttarkerfum
milli skólastiga.
Einstæðir foreldrar, öryrkjar
og námsmenn þurfa því að
greiða meira til Reykjavíkur fyr-
ir samfelldan dag barns með
fæði í skóla og frístund en á leik-
skóla. Um áramót eykst þessi
munur því breytingar á gjald-
skrám fela í sér lægri leik-
skólagjöld en hærri gjöld á frí-
stundaheimili. Munurinn á því
að vera með barn á leikskóla og
á frístundaheimili, fyrir þá sem
njóta afsláttar á leikskólastigi,
eykst þar með enn meira, þ.e.
afsláttarhópurinn greiðir enn
minna en áður fyrir leikskóla og
enn meira en áður fyrir frí-
stundaheimili.
80 þúsund krónum meira
í frístund en leikskóla
Sem dæmi greiðir einstætt for-
eldri með barn á leikskóla nú
15.320 krónur fyrir 8 klukku-
stunda vistun og fullt fæði. Á
næsta ári lækkar greiðslan niður
í 14.560 krónur á mánuði.
Ef við gefum okkur að barnið
hefji skólagöngu á næsta ári þarf
einstæða foreldrið að reiða
fram 22.720 krónur á mánuði
eftir að skólagangan hefst í stað
21.990 króna nú, fyrir frístunda-
heimili og fullt fæði. Greiðslur til
borgarinnar hækka því um 8.160
krónur á mánuði, eða um yfir 80
þúsund krónur fyrir skólaárið
við það að barnið færist upp um
skólastig. Sama gildir ef annað
foreldri er öryrki, báðir for-
eldrar eru í námi eða annað for-
eldri starfar á leikskóla í Reykja-
vík.
Í dæminu er miðað við 8 klst.
vistun á leikskóla og fullt fæði,
þ.e. morgunmat, hádegismat og
síðdegishressingu. Á grunn-
skólastigi er miðað við frí-
stundaheimili fimm daga vik-
unnar, hádegismat í skólanum og
síðdegishressingu.
Þær upplýsingar fengust hjá
Skúla Helgasyni, formanni skóla-
og frístundaráðs, að vinna standi
yfir við að samræma gjaldskrár
og afslætti. Hugmyndir hafa
komið upp um að gjaldið verði
tekjutengt og tekið verði upp
samræmt afsláttarkerfi milli
skólastiga. Um áramót verður
sú breyting gerð að systkina-
afsláttur gildir milli skólastiga,
sem er nýjung hjá Reykjavík-
urborg en mörg
önnur sveitar-
félög hafa
tekið upp.
ENN MEIRI MUNUR FYRIR EINSTÆÐA FORELDRA
*Um áramót hækka gjöld fyrir börn á frístundaheimili íReykjavík. Fimm daga vistun hækkar um rúm fjögurþúsund yfir skólaárið. Skólamáltíðir hækka um tvö þúsund. ÞjóðmálEYRÚN MAGNÚSDÓTTIR
eyrun@mbl.is