Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014
* Greenwich hlaut að þýða Grenivík. Og ekki baraað staðir veraldar væru miðaðir við Grenivíkheldur var tíminn það líka.
Valgarður Egilsson frá Hléskógum í Höfðahverfi í Læknablaðinu.
Landið og miðin
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
UM ALLT LAND
FLJÓTSDALUR
Vatnajökulsþjóðgarður og Fljótsdalshreppur
hafa síðustu ár staðið sameiginlega að
landvörslu við Hengifoss í Fljótsdal. Skv. könnun
sem gerð var á meðal 400 ferðamanna í sumar
er ástand göngustígs upp að fossinum það sem helst þarf að bæta og
er stefnt að því. Fljótsdalshreppur hefur ákveðið að halda samstarfinu
áfram og greiðir 250 þúsund til verkefnisins á næsta ári.
AKUREYRI
Íþróttabandalag Akureyrar hefur óskað eftir þátttöku Akureyrarbæjar í
fjármögnun á ritun íþróttasögu Akureyrar. Erindi frá ÍBA var tekið fyrir á fundi
er ugur ríkt
u til bæjarráðs og felur fo
rráð hefur nú tekið e
peninga í verkið á næstunn
SUÐURLAND
Auglýst hefur verið eftir framkvæmdastjó
fyrsta á Íslandi. Jarðvangurinn nær yfir
eystra, Mýrdalshrepp og Skaftárhre
og búseta starfsmannsins verði í
Framkvæmdastjórin„
nýsköpun á svæð
við verkefni og
Háskólapró
ÞINGVE
naþingi vestra
hitaveákveðið að leggja
ðveimur svæ um á næsta
i; annars vegar norður
Hrútafjörð að Bessastöðum
og Sveðjustöðum, hins veg Laugarbakka suður Miðfjörð.
Árið 2016 og 2017 er ste að því að leggja hitaveitu í Víðidal
og vestan Miðfjarðarár frá Melstað að Söndum. Árið 2018 er
gert ráð fyrir að bora á R negí Hrútafirði v a mögulegrar
hitaveitu fyrir Hrútafjörð
S
U ekið að sér
um óbl tsins,
se on hefur haft
ve 02. Það verður
ve óttahúsiVallaskóla
fyrsta laugardag Þorra – n
Selfossþorrablótið sem na
sem Selfyssingar sameinas
starf ungmennafélagsins,“
Að fara hér milli kirkna ísveitunum á jólunum ogflytja fólki þau tíðindi að
frelsarinn sé fæddur finnst mér
mikil forréttindi. Enginn boðskapur
sem fluttur er á jarðríki er jafn-
mikilvægur og
þessi frétt sem
aldrei verður göm-
ul,“ segir séra Eg-
ill Hallgrímsson,
sóknarprestur í
Skálholti. „Jóla-
messunum fylgir
sérstök stemning,
því margir eiga um þær góðar
minningar og koma jafnvel um
hver jól í gömlu sveitakirkjuna sína
og halda þannig í tengsl sín við for-
tíðina og eigin æsku. Sum-
arhúsafólkið sem hér dvelst um há-
tíðarnar fjölmennir sömuleiðis í
messur.“
Messugestir sjaldnast
þeir sömu
Ætla má að þorri landsmanna sæki
einhverjar athafnir í kirkjum um
jól og áramót, sem eru því anna-
tími hjá prestum landsins. Sú er
raunin hjá séra Agli Hallgrímssyni
sem um hátíðarnar annast tíu
messur og ætla má að fáir messi
oftar. Guðsþjónustur þessar eru
jafnmargar og kirkjurnar í presta-
kalli Egils, sem spannar Biskups-
tungur, Laugardal, Grímsnes,
Grafning og Þingvallasveit. Athafn-
ir í þessum kirkjum á næstu dög-
um eru alls fimmtán, en til að létta
á annríkinu hlaupa nokkrir prestar
undir bagga með Skálholtsklerki.
Má þar nefna að séra Kristján Val-
ur Ingólfsson vígslubiskup annast
messugjörð á Þingvöllum. Hefur
raunar myndast sú hefð í samstarfi
Egils og Kristjáns Vals að sá síð-
arnefndi ber hitann og þungann af
öllu helgihaldi á Þingvöllum.
„Erindið í jólamessunum er alltaf
auðvitað hið sama og þegar kirkj-
urnar eru margar eru messugestir
sjaldnast þeir sömu. Ég byggi ræð-
urnar upp frá ákveðnum grunn-
punktum og miða þær við að fagn-
aðarboðskapurinn nái til þeirra
sem í kirkjunni eru hverju sinni,“
segir Egill sem á aðfangadagskvöld
messar í Skálholtsdómkirkju svo og
á jóladag. Þann dag annast hann
guðsþjónustu í Miðdalskirkju í
Laugardal og á annan í jólum á
Mosfelli í Grímsnesi og í Bræðra-
tungu í Biskupstungum. Svo koma
Úthlíð, Úlfljótsvatn í Grafningi,
Haukadalur og Torfastaðir en á
síðastnefnda staðnum er nýárs-
dagsmessa – og tekur messugjörð-
in og boðskapurinn þá mið af því
að nýir tímar eru runnir upp, en
því fylgja jafnan vonir, væntingar
og mikil tækifæri.
Í Tungunum
taka allir undir
Sálmar hátíðanna eru sígildir:
Heims um ból og Í Betlehem er
barn oss fætt um jólin og um ára-
mót Hvað boðar nýárs blessuð sól?
Er þar sunginn meistaratexti séra
Matthíasar Jochumssonar. „Hér í
sveitinni búum við annars að því að
tónlistarhefðin er sterk,“ segir Eg-
ill. „Réttasöngurinn á haustin er
raddaður og því er ekkert tiltöku-
mál þótt oft sé enginn kirkjukór. Í
Tungunum taka allir undir og
syngja við raust. Í nýársmessunni
finnst mér ánægjulegt þegar allir
taka undir í þjóðsöngnum okkar –
og þar hefur sjálfsagt áhrif að
hann ómar við upphaf allra bolta-
leikja landsliðanna. Þetta síast
smám saman inn í vitund fólksins.“
Lengi tíðkaðist í dreifbýlinu að
messugestir væru kallaðir inn í bæ
að athöfn í kirkju lokinni. „Ein-
hverra hluta vegna hefur þetta að
mestu leyti lagst af. Reyndar hefur
þessi skemmtilegi siður haldist í
Bræðratungu. Sveini heitum Skúla-
syni og eiginkonu hans Sigríði Stef-
ánsdóttur fannst þetta sjálfsögð
gestrisni og þetta hafa núverandi
bændur í Tungu, Kjartan sonur
þeirra og Guðrún Svanhvít Magn-
úsdóttir, haldið í,“ segir sr. Egill
sem hefur verið prestur í tæpan
aldarfjórðung. Fyrst á Skagaströnd
en í Skálholti frá 1998.
Ánægjuleg fjölskyldujól
Þótt jólin séu annatími hjá Skál-
holtspresti segir Egill að þau séu
eigi að síður gæðatími hjá sér og
sínum. „Með góðu skipulagi eigum
við ánægjuleg fjölskyldujól sem ég
hlakka til. Og hér verður hamborg-
arhryggur á borðum, ég er úr
Hveragerði og konan mín, Ólafía
Sigurjónsdóttir, er borgarbarn.
Hvorugt okkar vandist því að hafa
til dæmis rjúpur í jólamatinn, þótt
annars skipti ekki öllu mál hver
maturinn er. Aðalmálið er að gleðj-
ast, njóta og upplifa það ævintýri
sem fæðing frelsarans er á öllum
tímum í lífi kynslóðanna.“
BISKUPSTUNGUR
Tíu messur
hjá Agli
SÉRA EGILL HALLGRÍMSSON SKÁLHOLTSKLERKUR HEFUR Í
MÖRG HORN AÐ LÍTA. KIRKJURNAR Í PRESTAKALLI HANS
ERU TÍU OG MESSUR NÆSTU DAGA ERU JAFNMARGAR.
ALLIR VILJA HEYRA FAGNAÐARBOÐSKAPINN.
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Egill Hallgrímsson
Kirkjan á Stóru-Borg í Grímsnesi er í
prestakalli séra Egils Hallgrímssonar.
Venju samkvæmt er hún lýst fallega
upp á aðventunni og með því setur
hún sterkan svip á sveitina.