Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Side 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Side 13
 Lestu ljóð fyrir mömmu/ pabba.  Lestu tvær blaðsíður í bók- inni þinni upphátt með mikl- um tilþrifum.  Lestu sögu með mömmu/ pabba. Finnið í sameiningu tvö orð til að lýsa sögunni.  Slökktu ljósin, kveiktu á vasaljósi og lestu sögu.  Lestu bók með mömmu/ pabba. Ákveðið nýtt nafn á bókina í sameiningu.  Mamma/pabbi á að lesa frétt úr Mogganum fyrir þig. Segðu frá fréttinni með þínum orðum. Hugmyndir að sumarlestri 21.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 „Þegar eru norðlægar áttir er veðrið miklu betra hjá okkur hér en norðar. Það eru bara síðustu dagar sem hafa verið erfiðir og þá aðallega að koma vörum til og frá svæðinu; yfirleitt er keyrt en bílarnir hafa þurft að stilla sig inn á [ferjuna] Baldur vegna þess að vegir hafa verið ófærir,“ segir Haukur Már Sigurðsson, kaup- maður í Fjölvali á Patreksfirði. Gott hljóð var í Hauki. „Jólaversl- un hefst yfirleitt á bilinu 10. til 15. desember en er um það bil að byrja núna,“ sagði hann á fimmtudaginn. Fólk frá Tálknafirði og Bíldudal sæti lagi þegar vegir eru mokaðir. Hauk- ur selur matvöru, valda bókatitla, leikföng og svolítið af raftækjum. Opið er til sjö öll kvöld en í söluturn- inum Albínu er alltaf opið til tíu og veitt góð þjónusta líka, segir hann. Haukur selur mest til einstaklinga en sjávarútvegsfyrirtækið Oddi hef- ur árum saman keypt jólagjafir handa starfsfólkinu, 80-90 manns, hjá Hauki; hamborgarhrygg og ým- islegt meðlæti. „Oddi hefur líka gefið starfsfólki úttektarmiða í búðirnar hér og þannig tryggt verslun í heimabyggð, sem er mjög gott.“ PATREKSFJÖRÐUR Haukur Már Sigurðsson: [Sjávarútvegsfyrirtækið] Oddi hefur gefið úttekt- armiða í búðirnar hér og þannig tryggt verslun í heimabyggð.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Jólaverslun að hefjast Berglind Björnsdóttir, aðstoðar- skólastjóri Blönduskóla á Blönduósi, rakst á góða aðferð á því rómaða al- neti sem dugði til að fá níu ára dótt- ur hennar til að lesa sér reglulega til yndis sumarið 2013. Í kjölfarið útbjó hún lestr- arbingóspjald sem hún hafði einnig séð á netinu og hefur ekki síður orðið vinsælt. „Ég fer stundum inn á pinterest-- hugmyndavefinn eins og aðrir kennarar og hugsaði með mér að ég hlyti að geta fundið skemmtilegar hugmyndir til þess að fá dóttur mín til að lesa yfir sum- arið. Það er nefnilega svo mikilvægt að börnin lesi jafnt og þétt; þjálf- unin er stöðug allan veturinn, þau ná ákveðnum atkvæðafjölda en lesa svo jafnvel ekkert um sumarið og þegar þau mæta að hausti hrynur súlan í fyrsta lestrarprófi. Flest eru fljót að vinna það upp aftur en fyrir þá sem eru í brasi með lestur getur það verið mjög slæmt,“ segir Berg- lind í samtali við Morgunblaðið. Þegar dóttirin reið um eins og vel taminn lestrarhestur allt sumarið segist Berglind vitaskuld hafa mont- að sig af henni á Facebook eins og nú tíðkast. „Vinir og vandamenn fóru að spyrja mig hvort þeir gætu fengið þetta prógramm hjá mér og ég deildi því til fólks. Það, hve mikla athygli sumarlesturinn vakti, og svo lestrarbingóið, sýndi mér fram á hve þörfin var mikil. Fleiri en ég vildu greinilega brjóta upp lestrar- munstrið og þetta er ekki bundið við sérstakan aldur. Í sumum fjöl- skyldum taka allir þátt saman.“ Berglind bendir á að ef börnin lesi auki þau orðaforða sinn. „Með auknum orðaforða batnar lesskiln- ingur og ef þau skilja betur það sem þau lesa ná þau betri árangri í námi.“ Mjög oft er vísað í Pisa-könnun sem gefur til kynna að ungir dreng- ir lesi sér ekki lengur til skilnings. „Ef þeir eru með texta sem vekur áhuga þeirra veit ég að strákarnir skilja hvert einasta orð. Ég held að málið sé að ef þeir eru með texta sem höfðar ekki til þeirra fyrir fim- maura – til dæmis um mataræði vörubílstjóra – vekur það engan áhuga og skyldi engan undra. Í skólanum hjá okkur fá krakkarnir korter á dag til að lesa. Eftir að þessi nýbreytni var tekin upp hefur orðið sú breyting að þegar krakk- arnir eru búnir með þau verkefni sem þeim voru sett fyrir spyrja sí- fellt fleiri hvort þeir megi lesa; sem er auðvitað alveg frábært. Mest er um vert að þau finni eitthvað sem þau hafa gaman af; þá geta þau les- ið sér til ánægju.“ Berglind segir að hafa þurfti allar klær úti til að halda börnum að lestri. „Þau umgangast fullorðna minna en áður, eru dálítið mikið í sínum eigin heimi núna – tölvuheimi – og munnleg samskipti miklu minni en áður. Ég er viss um að beint samhengi er á milli þess að hug- takaskilningur og orðskilningur er lakari og að samskiptin eru minni en áður.“ BLÖNDUÓS Lestrarbingó og sumar- lestur þykja spennandi LESTUR ER FÓLKI AFAR MIKILVÆGUR, EINS OG NÆRRI MÁ GETA. BERGLIND BJÖRNSDÓTTIR, KENNARI Á BLÖNDUÓSI, FANN GÓÐA LEIÐ TIL AÐ HALDA KRÖKKUM VIÐ EFNIÐ. Yndislestur í grunnskólanum á Blönduósi í haust. Sigurjón Bjarni Guðmunds- son og Unnur Guðmundsdóttir. Fyrir aftan þau er Ísabella Erna Jónasdóttir. Ég les í 15 mínútur... Undir sæng með vasaljós Í herberginu mínu Á mánudegi Í bílnum Í uppáhalds- stólnum mínum Í borð- stofunni Upphátt fyrir einhvern í fjölskyldunni minni Í baðkarinu (með eða án vatns) Eftir kvöldmat Á fimmtudegi Í náttfötunum Á þriðjudegi Í bauna- púðanum Með hatt á höfði Áður en ég borða morgunmat Í sófanum í stofunni Á miðvikudegi Í eldhúsinu Sitjandi á gólfinu Á föstudegi Í mömmu og pabba rúmi Í stofunni – en með slökkt á sjónvarpinu Með gott snarl í skál Í rúminu mínu Þegar ég les í 15 mínútur og leysi eitt af verkefnunum fæ ég límmiða yfir viðeigandi bingóreit. Þegar ég er búin að fylla alla bingóreitina fæ ég _____________________ í bingóverðlaun! Berglind Björnsdóttir Ljósmynd/Jón Sigurðsson Frá og 4. janúar hefur Strætó akstur frá Reykjavík til Suðurnesja og á milli þéttbýliskjarna þar; stoppað verður í Reykjanesbæ, við Vogaafleggjara, í Grinda- vík, Garði, Sandgerði og við Leifsstöð á flugvellinum. Með strætó til Suðurnesja Ágóði af jólabingói kvenfélagsins á Reyðarfirði rann í ár til dvalarheimilanna á Eskifirði og Fáskrúðsfirði: 150 þús. kr. til hvors heimilis. Heiðursfélagi býr á hvorum stað, þær Lára Guðmundsdóttir og Sigríður Gunnarsdóttir. Styrkja tvö dvalarheimili HYBRIDGE SPORTÍS MONTEBELLO TRILLIUM kr.104.990.- kr.114.990.- kr.89.990.- MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS CITADEL kr.129.990.- GRÍPTU GÆSINA SETTU ALVÖRU GÆÐI Í JÓLAPAKKANN!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.