Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014
Eru einhverjar
sérstakar hefðir
á heimilinu fyrir
jólin? „Það er allt
þetta hefðbundna;
jólakortin, jóla-
kransinn, smá-
kökubakst-
ur, hengja
jólaserí-
urnar utan
á húsið og vefja þeim utan
um trén. Sirrý horfir á
Kristján út um
gluggann og dáist
að því þegar
hann hengir
upp seríurnar
og spáir í það
í hvaða mán-
uði þær muni
verða teknar
niður aftur.“
Þau hlæja bæði.
„Svo kallar Kristján í
okkur og lætur okkur dást
að ljósunum þegar hann kveikir á þeim.
Mjög flott en ekki jafn vel gert og hjá eig-
inmanni nágrannakonu okkar, Sigríðar
Snævarr, en hennar maður fær Garðlist í
þetta, held ég,“ segir Sirrý. „Okkur finnst
þeirra tré svo fallegt og alltaf tilhlökk-
unarefni í skammdeginu að fá upp öll ljós-
in.
Einnig er það vonandi orðin hefð hjá
okkur að fara í jólahlaðborð hjá
Marentzu Poulsen á Kaffi Flóru.
Hún er drottning huggulegheit-
anna. Í fyrra fórum við saman
nokkrir vinir og nágrannar úr
Litla Skerjafirði og það var
frábært. Svo er það hefð
hjá okkur að falla alveg
fyrir jólabókaflóðinu og
við lesum nýjar bækur
alla aðventuna. Í fyrra,
og í ár, er það nýjung
að Sirrý les fyrir
börn víða, því
„Tröllastrákurinn
sem gat ekki sofn-
að“ var á jóla-
bókamarkaði í
fyrra og nýja bókin
„Tröllastrákurinn
eignast vini“
kom út núna
fyrir jólin.
Þetta er nú
reyndar
okkar heim-
ilisfram-
leiðsla því
Sirrý semur
Eru einhverjar
sérstakar
hefðir á heim-
ilinu fyrir jólin? „Við
erum frekar ung fjölskylda í
árum talið og komandi jól
eru þau sjöttu sem við
höldum saman. Af
því að fjölskyldan
okkar er samsett
erum við ekki
endilega saman öll
jólin. Stundum á
fjölskyldan öll að-
fangadag saman,
stundum jóladag,
stundum gamlársdag og
stundum nýársdag. Þegar við
erum öll saman njótum við þess að eiga
stórhátíðina í faðmi hvert annars. Við
spilum, spjöllum og leyfum okkur líka að
slaka á yfir góðri bíómynd, bæði hefðbundnar
myndir eins og Love Actually og It’s a Wond-
erful Life og svo nútímajólasögur eins og
Children of Men. Svo er líka tilbreyting að hafa
svigrúmið sem fylgir því að vera stundum bara
fá.“
Hvað gerir fjölskyldan á Þorláksmessu? „Á
Þorláksmessu kemur stórfjölskyldan í skötu.
Þegar dagurinn rennur upp þarf því allt að
vera tilbúið og jólatréð skreytt. Skötuboðið er
gott upphaf að lokaundirbúningi jólanna í gleði,
hlýju og miklum mat! Því fylgir líka söngur og
gleði, og fjölskyldurnar skiptast á jólagjöfum
sem fá að búa undir trénu fram að jólum.“
Hver sér um að skreyta jólatréð og hvenær
er það yfirleitt gert? „Við reynum að gera
leiðangur úr því að útvega okkur jólatré og höf-
um mætt á skógræktarsvæðið í Heiðmörk til að
höggva fallegt greni eða furu. Börnin fá að
ráða hvort verður fyrir valinu. Þetta hefur ver-
ið mikilvægur hluti af jólaundirbúningnum.
Stundum hefur ekki skort snjóinn í Heiðmörk
og það hefur verið skemmtileg vetrarupplifun
að klofa snjóinn og takast á við að fella tréð
sem síðan prýðir stofuna okkar. Tréð er
skreytt kvöldið fyrir Þorláksmessu. Fjölskyldan
öll tekur þátt í að skreyta það og börnin eru í
lykilhlutverki. Kisa hefur líka stundum látið til
sín taka.“
Hver sér um að kaupa jólagjafirnar? „Við
hjónin gerum það í sameiningu. Þetta er gott
tækifæri til að njóta og upplifa í sameiningu.
Við notum tíma og peninga til að gleðja þau
sem við elskum og fáum mikið út úr því að
undirbúa það saman. Þegar utanlandsferðir
leggjast til á haustmánuðum notum við stund-
um tækifærið til að grípa jólagjafir í fjöl-
skylduvænlegum verslunum en annars höldum
við okkur við bókabúðir og handverksverslanir
með fallegum vörum.“
Hver sér um hreingerningar? „Heimilið okkar
er fjölmennt og við
þurfum alltaf að vera
á tánum með að
halda í horfinu í
hreingerningum
og tiltekt. Við
látum okkur
stundum eftir
þann munað að fá hjálp við
hreingerningar. Það er ekki
síst vel þegið fyrir há-
tíðarnar um jól og
áramót. Hverjum
datt annars í hug
að það væri
hægt að sinna
umfangsmiklum
störfum og sjá
um stórt heimili á
sama tíma?“
Hver sér um bakst-
ur? „Jólabaksturinn er
stundum í höndum handverks-
hóps Kristínar, sem hittist í upphafi aðventu og
hamast við sörugerð og önnur lekkerheit! Síð-
ustu ár hafa elstu dæturnar látið meira til sín
taka. Þær mæta í eldhúsið og rúlla upp klass-
ískum og frumlegum uppskriftum, ekki síst
þegar kemur að smákökugerð. Í bakstrinum
og smákökuáti gildir reyndar að byrja
snemma og hafa að leiðarljósi orð Mar-
teins Lúthers: Ef þú syndgar, syndga þá
djarflega!“
Hver sér um eldamennskuna á jóla-
matnum sjálfum? „Á aðfangadags-
kvöldi er hamborgarhryggur með
tilbehör og jólagrautur í eftirmat.
Það er matur bernskujóla Árna.
Á jóladag hittum við svo fólkið
hennar Kristínar sem leggur
meira upp úr hinu klassíska
sænska jólahlaðborði með
allskonar síld og saltaðri
skinku og öðru sem til-
heyrir. Í ár verður Kristín
á þönum allan aðfangadag
í þjónustu við Laug-
arneskirkju, Hátún og
Sóltún. Það kemur
því í hlut Árna
Svans að
standa við
pottana á
aðfangadegi,
áður en
hann og
börnin
kíkja í aft-
ansöng í
Laugarnes-
kirkju kl. 6.“
KRISTÍN ÞÓRUNN TÓMASDÓTTIR OG ÁRNI SVANUR DANÍELSSON
Ef þú syndgar,
syndga þá djarflega!
Getty Images/Fuse
Fjölskyldan
Marjorie Holmes rithöfundur
* Á jólunum liggja allarleiðir heim.
HVER SÉR UM JÓLABAKSTURINN? JÓLAÞRIFIN? JÓLAPAKKANA? JÓLAMATINN?
Hver gerir hvað?
JÓLAUNDIRBÚNINGURINN ER TÍMAFREKUR EN SKEMMTILEGUR. MARGT ÞARF AÐ GERA OG MARGAR HEFÐIR SEM ÞARF AÐ
HEIÐRA EN FORVITNILEGT ER AÐ VITA HVER TEKUR AÐ SÉR HVAÐA VERKEFNI Á HEIMILINU. SUNNUDAGSBLAÐIÐ KANNAÐI
VERKASKIPTINGU KYNJANNA HJÁ NOKKRUM HRESSUM HJÓNUM.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
og Kristján
les söguna
inn á
geisladisk
sem fylgir
bókinni.
Þetta er skemmtileg
nýjung á aðventu
fyrir okkur.“
Hvað gerir
fjölskyldan
á Þorláks-
messu?
„Þá er ár-
viss fjöl-
skyldu-
samvera. Og
svo pössum
við alltaf að eiga
einhverju ólokið í
innkaupunum því það er svo
gaman að kíkja í miðborgina á
Þorláksmessukvöldi.“
Hver sér um að skreyta jólatréð og
hvenær er það yfirleitt gert? „Sirrý og
synirnir hafa séð um það í gegnum árin og
það er yfirleitt gert á Þorláksmessu. Krist-
ján greiðir úr ljósaseríum og hengir á tréð
(og bölsótast út í það að hafa ekki gengið
betur frá þessu í fyrra). Sirrý og yngri
sonurinn sjá um skreytinguna í kjölfarið
og furða sig á öllu þessu smádóti sem
fylgir manni ári eftir ár – en má ekki
vanta.“
Hver sér um að kaupa jólagjafirnar?
Sirrý: „Það kaupa allir jólagjafir, hvert
fyrir sig og saman líka eftir aðstæðum
hverju sinni. Við eigum bókelska ættingja
og það einfaldar töluvert innkaupin.“
Hver sér um hreingerningar? ,,Sirrý
stjórnar þeim með harðri hendi og reynir
að virkja aðra í það með sér. Það hefur þó
reynst henni mjög vel undanfarin ár að
dempa ljósin. Það er af sem áður var þeg-
ar maður var nýbyrjaður að búa og tók
skápana og hélt að jólin kæmu ekki nema
þegar öllu væri lokið.“
Hver sér um bakstur? „Sirrý sér um smá
bakstur,“ segir Kristján. „Heyrðu nú,
þetta er stór bakstur á smákökum. En án
gríns þá er stefnan að minnka þetta ár frá
ári. Nokkrar plötur eru nauðsynlegar í
ofninn til að fá ilminn í húsið og stemn-
inguna við kaffiborðið,“ segir Sirrý.
Hver sér um eldamennskuna á jóla-
matnum sjálfum? „Það gerir Sirrý sem
sér um allt nema sultuna,“ segir Kristján.
„Já, en ég og stolti sultugerðarmaðurinn
erum orðin mjög samstiga og höfum bæði
nóg að gera þótt við gerum ekki sömu
verkin. Ég elda og Kristján leggur á borð,
keyrir út gjafir og stússar í öllu mögulegu
sem fylgir því að fá fjölskyldu og tengda-
fjölskyldu í jólamat,“ segir Sirrý.
SIGRÍÐUR ARNARDÓTTIR OG KRISTJÁN FRANKLÍN MAGNÚS
Sér um allt nema sultuna