Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Síða 17
* Nú er sólin heið ogég soðna, hér um bil
Snæfinnur snjókarl
21.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Í ferðalagið
Á vinnustaðinn
Í sumarbústaðinn
Í eldhúsið
• Klippir plastfilmur og ál
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setja í uppþvottavél
Fæst í Hagkaupum,
Fjarðarkaupum og Byko
Engar flækjurEkkert vesen
www.danco.is
Heildsöludreifing
Wrapmaster
Skammtari fyrir plastfilmur
Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma
Tilvalin jólagjöf
bara í smákökunum,“
segir Logi. „Ég þarf
reyndar yfirleitt
að baka nokkrum
sinnum, þar sem
Logi lítur svo á að
í desember sé eðli-
legur morgunmatur um það
bil tíu smákökur og lítri
af mjólk og það geng-
ur fljótt á birgðirnar
þannig.“
Hver sér um
eldamennskuna
á jólamatnum
sjálfum? „Ég
elda og geri það
eftir vandlegri for-
skrift frá mömmu.
Þegar ég fór að halda
mín eigin jól sendi mamma
mér plagg sem heitir Uppskrift
að jólum. Þar er farið yfir allt sem
maður þarf að vita um undirbún-
ing jólamáltíðarinnar, allt frá því
hvenær maður setur yfir grjónin
fyrir ris a la mande, yfir í sósu-
gerð með hamborgarhryggnum og
hvaða meðlæti á að hafa. Ég er að
þessu meira og minna frá hádegi á
aðfangadag og enda svo á að taka
jólabaðið meðan hamborgarhrygg-
urinn er í ofninum og hlusta í
baðinu á Guðna Má tala um Jesú
og vini hans í útvarpinu. Ætli
Magnús Geir sé ekki örugglega
búinn að tala við hann um að vera
á Rás 2 milli fjögur og sex á að-
fangadag?“ segir Svanhildur að
lokum.
Eru einhverjar sér-
stakar hefðir á heim-
ilinu fyrir jólin?
Svanhildur: „Já, hjálpi
mér, jólin eru eintómar
hefðir. Ein af
þeim er jóla-
ferð til Akur-
eyrar, þar sem
við förum með
stelpurnar í Jólahúsið á
Hrafnagili, þær fá að velja
sér eitthvað til að
skreyta með fyrir jól-
in og ég vel líka
nýja veglega jóla-
kúlu á tréð. Svo
kaupum við of
mikið af synd-
samlega góðum
karamellum sem
fást í Jólahúsinu og
líður öllum á eftir eins
og við þurfum að raka á
okkur tunguna. Hluti af töfr-
unum við þessa ferð er að mamma
og pabbi skreyta áður en við kom-
um og ég fæ nostalgíuna í æð um
leið og ég geng inn úr dyrunum í
Lerkilundinum,“ segir Svanhildur.
Hvað gerir fjölskyldan á Þor-
láksmessu? „Ég hlusta á jóla-
kveðjur á Rás 1, það er alveg
ómissandi, um leið og við skreyt-
um. Svo sjóðum við hangikjöt og
hinir og þessir laumast í bæinn til
að kaupa síðustu jólagjafirnar. Við
Logi höfum frá okkar fyrstu jól-
um, þegar við höfum verið í
Reykjavík, endað Þorláksmess-
urúntinn á því að fara í Fríðu
frænku, kaupa eitthvað smálegt
og fá okkur konfekt og lögg í
kjallaranum. Í fyrra held ég að við
höfum verið að taka upp nýja
hefð, sem mun bæta okkur upp
missinn af Fríðu frænku sem var
lokað í vor, en það er að fara til
Halldórs Högurðar og borða rest-
arnar af Þorláksmessuboðinu
hans, áður en við förum heim til
að skreyta tréð,“ segir Svanhildur.
„Hefðin er sú á aðfangadag að
meðan Svanhildur er í eldhúsinu
fer ég út með stelpurnar og tek
jólamynd af þeim, þar sem þær
horfa venjulega hvor í sína áttina
eða snúa sér undan, eru að slást
eða hlaupa út úr mynd á svona 98
af 100 myndum. Svo læt ég Svan-
hildi velja á milli þessara tveggja
sem eru nokkurn veginn í lagi og
fer svo í að setja jólakveðju á net-
ið, enda er þá orðið útséð um það,
þarna um þrjúleytið á aðfangadag,
að við sendum einhver jólakort
það árið,“ segir Logi.
Hver sér um að skreyta jólatréð
og hvenær er það yfirleitt gert?
„Svanhildur skreytir,“ segir Logi
og Svanhildur bætir við: „Stöku
sinnum hef ég látið undan þrýst-
ingi og skreytt tréð 22. desember,
en mér finnst að það eigi helst
ekki að gera fyrr en á Þorláks-
messukvöld, svo það sé það fyrsta
sem krakkarnir sjá þegar þeir
vakna og koma fram á aðfanga-
dagsmorgun. Það er reyndar
svona fjögurra tíma vinna að
skreyta tréð, þar sem
á það fara 200 ljós og
álíka margar kúlur eða annað
skraut. Skreytandinn er líka með
talsverða þráhyggju fyrir sym-
metríu og svoleiðis hlutum, þannig
að það hefur sína kosti að gera
þetta fyrr. Þá fá líka litlu stýrin
að vera með að skreyta, sem reyn-
ir á symmetríuáráttuna, en skilar
oft skemmtilegri útkomu.“
Hver sér um að kaupa jólagjaf-
irnar? „Við skiptum þessu aðeins
á milli okkar en Logi tekur fram-
kvæmdina að sér að mestu eftir að
vandað ákvarðanaferli hefur farið
fram á heimilinu. Djók. Við reyn-
um að fá einhvern óskalista hjá
börnunum og draga upp úr for-
eldrum okkar hvað þeir vilji fá.
Svo upphefst leit að gjöf fyrir þá
sem vantar ekkert og allt er fært í
excel-skjal.
Ég á jólainnkaupalista tíu ár
aftur í tímann og rúmlega það,
bæði jólagjafakaup og mat. Mat-
arinnkaupin eru til dæmis mjög
þægileg því ég fletti bara upp
grunnskjalinu og uppfæri það eftir
því hvað er til í skápunum.“
Hver sér um hreingerningar?
„Við fáum aðstoð við þær, en svo
deilum við þeim með okkur. Í
fyrra voru mamma og pabbi hjá
okkur á jólunum þannig að þau
léttu verulega undir með okkur
við síðustu verkin. Annars veit ég
að mér verður hent út úr
ákveðnum hópi á Facebook þegar
ég segi að jólin komi þótt það sé
ekki búið að spritthreinsa með
eyrnapinnum út í öll horn. Það er
reyndar ekki það sem ég ólst upp
við á æskuheimilinu, þar sem allt
var þrifið hátt og lágt og ég til
dæmis hafði það verkefni frá því
ég man eftir mér að pússa silfrið
og þrífa baðskápinn og laga til í
honum. Það var alvöruverkefni,
enda baðskápurinn á stærð við
meðalfataskáp,“ segir Svanhildur.
Hver sér um bakstur? „Svanhild-
ur sér um bakstur, svo nýtur hún
þess að eiga ofvirka mömmu sem
bakar fyrir hana stóru lagtert-
urnar, steikir laufabrauð og býr til
sprautukossa. Sjálf er hún meira
SVANHILDUR HÓLM OG LOGI BERGMANN
Jólakveðjurnar á
Rás 1 ómissandi
Eru einhverjar
sérstakar
hefðir á heim-
ilinu fyrir jólin?
„Þær eru
nokkrar,
já. Ein
sú allra
vinsæl-
asta er að
fara í góðan göngu- eða
bíltúr og skoða
jólaskreytingar
húsa. Því
fylgir mikill
„stemmari“
eins og við
köllum það,
enda eru
þær allaveg-
ana og oft á
tíðum bráð-
fyndnar og
skemmtilegar.“
Hvað gerir fjölskyldan á Þorláks-
messu? „Við förum í bæinn, kaupum
síðustu gjafirnar og skreytum jóla-
tréð.“
Hver sér um að skreyta jólatréð
og hvenær er það yfirleitt gert?
„Við skreytum yfirleitt seint á Þor-
láksmessu og gerum það öll saman.“
Hver sér um að kaupa jólagjaf-
irnar? „Við reynum að gera það sem
mest saman því þá næst hinn sanni
jólaandi.“
Hver sér um hreingerningar? „Að
sjálfsögðu við bæði en í ár munum
við líklega fá liðsauka því tvíbura-
drengjunum okkar sem eru rétt að
verða þriggja ára
finnst fátt meira
spennandi en að sópa,
hlaupa um og þurrka af,
setja úr og í þvottavélina og
ganga frá. Við vonum innilega að
þessi áhugi þeirra á heimilisverk-
unum fari ekki dvínandi með ár-
unum.“
Hver sér um bakstur? „Mamman og
tvíburarnir sjá um baksturinn sam-
an. Pabbinn þrífur svo áhöldin.“
Hver sér um eldamennskuna á
jólamatnum sjálfum? „Við erum svo
lánsöm að eiga bæði yndislegar fjöl-
skyldur sem við skiptumst á að vera
hjá á aðfangadag og jóladag. En þeg-
ar að því kemur að elda okkar eigin
jólamat mun húsbóndinn á heimilinu
sjá um það enda er hann yfirkokkur
heimilisins og einn sá allra besti.“
TINNA HRAFNSDÓTTIR OG SVEINN GEIRSSON
Pabbi þrífur áhöldin
eftir baksturinn
Síðasta helgin fyrir jól er runnin upp og margir því eflaust búnir með jólagjafainnkaup.
Upplagt er að eyða helginni í faðmi fjölskyldunnar og föndra saman yfir notalegri jóla-
tónlist. Þeir sem eiga eftir að kaupa einhverjar gjafir geta ef til vill klárað það í samein-
ingu og jafnvel fengið sér vænan kakóbolla og smákökur í leiðinni. Njótum samverunnar!
Jólaföndur og notalegheit um helgina