Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Síða 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Síða 25
einni saman. Það er einnig ágætt að setja sér raunhæf markmið. Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira? Að finna sér hreyfingu sem því þykir skemmtileg og að gefa sér tíma til að stunda hana. Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð í frí? Ég er alltaf á hreyfingu, ef ég er ekki að hlaupa á eftir og með börnum, þá er ég uppi á fjöllum, í jóga og á skíðum eða jafnvel að hoppa og skoppa á trampólíninu með krökk- unum mínum og svo finnst mér ofboðslega gaman að fara í æfingabúðir í karate hérlendis og erlendis. Ertu almennt meðvituð um mataræðið? Já ég er það, en ég er ekki hrifin af neinum svona kúr- um, prótíndufti eða þess háttar. Ég trúi á að borða reglulega fjölbreyttan og hollan mat og taka lýsi. Hvaða óhollusta freistar þín? Þessa stundina er það graflaxsósan með heima- grafna laxinum sem maðurinn minn út- býr alltaf um jólin. Hvaða gildi hefur karate fyrir þig? Mér þykir afskaplega vænt um íþrótt- ina mina og karate á alltaf eftir að fylgja mér. Þetta er ákveðin tenging á milli lík- ama og huga og til dæmis byrjar og endar hver karatetími á örlítilli hugleiðslu og það er svo mikil útrás og lífskraftur sem fylgir karate. Út frá karate hef ég einnig fund- ið mig í jóga og er auk þess aðeins að byrja að læra tai chi. Hverjar eru fyrirmyndir þínar? Móðir mín er mín helsta fyr- irmynd, en svo á ég einnig marg- ar aðrar fyrirmyndir, bæði í vinum mínum, fjölskyldu og öðru fólki. Það er enginn einn sem hægt er að benda á frekar en annar, heldur reyni ég að lifa lífinu þann- ig að ég tileinki mér það sem höfðar til mín og ég er sammála og líður vel með. S ólveig Krista Einarsdóttir hefur æft karate í Ka- ratefélaginu Þórshamri í rúm 20 ár og er hæst gráðaða konan á Íslandi með 3. dan eða þriðja svarta beltið. Ásamt því að hafa kennt karate í 17 ár er hún líffræðikennari við Menntaskólann í Reykjavík, jógakennari og fjögurra barna móðir. Íþróttagrein: Karate. Ertu búin að æfa lengi? Ég byrjaði haustið 1993, þá þrett- án ára gömul, þannig að það er rúmt 21 ár síðan ég byrj- aði. Hversu oft æfir þú í viku? Þessa önn hef ég ekki náð að sinna íþróttinni eins oft og ég hefði viljað, en það er mikið að gera á stóru heimili og ég hef látið það duga að þjálfa/kenna karate tvisvar í viku, en stefni á að fjölga æfingunum í vor, þar sem ég er búin að lofa mér í hópkatakeppni núna í mars, sem er viss hvatning fyrir mig. Annars er ég alltaf í karate ef svo mætti segja. Ég er oft að kýla og sparka út í loftið hér heima og svo hafa eldri strákarnir mínir gaman af því að æfa smák- arate með mömmu sinni heimavið. Hver er lykillinn að góðum árangri? Að hafa gaman af því sem maður er að gera. Ég hef alltaf haft gaman af því að mæta á æfingar og sprikla og sparka í öll þessi ár og ef mér líður vel af því að mæta á æfingar, þá finnst mér góðum árangri náð. Hvernig er best að koma sér af stað? Fyrst kemur hug- myndin og svo þarf bara að framkvæma hana, ég held að það sé það mikilvæg- asta, það er, að fram- kvæma það sem okkur dettur í hug. Stundum virkar það og stundum ekki, en það er betra að láta á það reyna í stað þess að sitja á hugmyndinni KEMPA VIKUNNAR SÓLVEIG KRISTA EINARSDÓTTIR Útrás og lífskraftur í karate komst ekki upp með annað en að taka á þessu. Ég endaði á því að fara niður á spítala í byrjun árs 2010 og var komin vikuna á eftir á fund á BUGL. Ég fann mig ekki þarna og sá ekki fram á að ég myndi ná árangri þar. Allt í einu varð ég ákveðin í því að gera þetta sjálf og ætlaði að sanna að ég gæti þetta. Ég hafði samband við þjálfara hjá Boot Camp og hann hjálpaði mér að vinna mig út úr þessu,“ seg- ir hún en ítrekar að þetta hafi verið hennar leið. Vildi ekki missa hreyfinguna „Ég vil sýna fram á að það séu til fleiri en ein leið. Það þurfa ekki allir að leggjast inn á spítala eða aðrar stofnanir. Ég var líka komin með teymi í kringum mig sem var ekki að fara að gefa neitt eftir,“ segir hún. „Ég ætlaði að ná að stunda íþróttir aftur og það var mín gulrót í þessu öllu saman, að ég gæti farið að æfa aftur. Maður getur ekki gert mikið í þessum lágpunkti og þarf að vinna sig alveg upp frá grunni. Ég gat ekki gert armbeygjur eða tekið stöngina í bekk. Til að byrja með voru þetta æfingar með létt hand- lóð. Ég gat ekki hitað upp og þetta voru því aðeins styrktaræfingar. Ég fékk prógramm sem ég fylgdi og fann að ég gat ekki bætt við það eins og ég reyndi að gera, ég hafði ekki burði til þess,“ segir hún en Biggi, Arnaldur Birgir Konráðsson, þjálfari hjá Boot Camp, var henni til halds og trausts. „Það er mikilvægt að hafa einhvern að vinna með sér og ræða hlutina við.“ Í hefðbundnari meðferð hefði hreyfingin alveg verið tekin af henni og það gat hún ekki hugsað sér. „Það er ekki hægt að taka allt það af einstaklingnum sem honum þykir vænst um og þetta var það sem mér þótti vænst um. Bara það að geta æft eitthvað var ákveðinn öryggis- ventill fyrir mig. Ég vildi ná heilsu á ný og stillti hugarfarið á það.“ Hún telur sig læknaða og ekki vera í meiri hættu en aðrir á að þróa með sér átröskun. „Það er mjög langt síðan þessi hugsun kom upp hjá mér, eitthvert samviskubit yfir mat. Ég er búin að vinna mikið í sjálfri mér.“ Bataferlið tók samt tíma. „Ég átti það til að vera fljót á mér og hugs- aði þegar ég var orðin 50 kg að nú væri þetta komið. Viðmiðið var á endanum 55-58 kg og ég hef haldið þeirri þyngd lengi. Batinn hefur verið í góðum farvegi í rúmlega þrjú ár og í byrjun árs 2015 verða fimm ár síðan bataferlið hófst.“ Ekki átröskunarsjúklingur að eilífu Bókina skrifaði hún að stórum hluta þegar hún dvaldi í Kalilforníu sem au-pair eftir útskrift úr menntaskóla en hún tók sér árs hlé frá námi. „Ég fór í naflaskoðun og gat unnið í sjálfri mér og endurskoðað hlutina. Ég var pínu hrædd við að fara burt, teymið mitt var á Íslandi en í raun- inni kom mér á óvart hvað ég var ákveðin og viljug í að halda árangr- inum og ég er það ennþá. Ég ætlaði ekki að láta neitt stoppa mig í bat- anum. Ég ætla ekki að láta skil- greina mig sem einhvern átrösk- unarsjúkling að eilífu. Þetta var bara ákveðið tímabil og frá mínum bæjardyrum séð er því lokið.“ Næringarfræðin er að mörgu leyti rökrétt val fyrir Birnu. „Mér finnst þetta mjög skemmtilegt og hef lengi haft mikinn áhuga á nær- ingarfræði. Mín hugsun með þessu er að geta miðlað til annarra með sérfræðiþekkingu að baki.“ Að námi loknu sér hún fyrir sér að hjálpa átröskunarsjúklingum. „Það er mikill skortur á mögu- leikum fyrir átröskunarsjúklinga til að ná bata. Það er bara eitt mót sem allir eru settir í og ef þú passar ekki í það er ekkert víst að þú getir fundið þér eitthvað annað.“ Eftir að bókin kom út hafa ein- staklingar leitað til hennar og hún unnið með þeim. „Vandinn er virki- lega til staðar,“ segir hún en hún hefur hvað mestan áhuga á að ná til unglinga í íþróttum og þjálfara þeirra. „Ég hef aðeins verið að ræða við þjálfara og haldið fyrirlestra um þessa reynslu. Skilaboðin eru til allra, ekki síst þjálfara og foreldra, að vera vakandi fyrir þessum ein- kennum,“ segir hún en það er stutt á milli þess að metnaður verði að þráhyggju. „Við höfum ekki gert okkur grein fyrir því hve þetta er alvarlegt vandamál. Átröskun er sjúkdómur sem hægt er að deyja úr ef þetta gengur of langt.“ Birna æfir ennþá. Hún leggur mesta áherslu á utanvegahlaup á sumrin og keppir í þeim. Hlaupin eru enn hennar aðalsmerki en hún hefur líka keppt í ýmsum þrekmót- um og kraftlyftingum. „Þótt það sé auðvitað óæskileg upplifun að glíma við átröskun hefur þetta samt kennt mér margt um sjálfa mig; ég veit hvar mín tak- mörk liggja og hef unnið mikið í mínum hugsunum. Skilaboðin í bókinni eru ekki þau að íþróttir séu hættulegar, eins og hún er stundum spurð að. „Íþróttir eru af hinu góða og við þurfum að hreyfa okkur og hugsa um að nær- ast vel.“ Morgunblaðið/Golli 21.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 Ráðlagt magn flúortannkrems og styrkur flúors í tannkremi fer eftir aldri barnsins. Magn tannkrems samsvarar ¼ af nögl litlafingurs á barni yngra en 3 ára (1.000-1.350 ppm F), nöglinni á litlafingri barns 3-5 ára (1.000-1.350 ppm F) og 1 cm fyrir sex ára og eldri (1.350-1.500 ppm F). Ekki nota of mikið tannkrem*Það er enginn vegur til frið-ar. Friður er vegurinn.A.J. Muste SKÖTUVEISLA23.DES Skútan ÍHÁDEGINUÁÞORLÁKSMESSU Skötuhlaðborð í hádeginu á Þorláksmessu í veislus al okkar. Boðið verður upp á Skötu fyrir amlóða upp í fullste rka. Vinsamlega pantið tímalega í síma 555-1810. MATSEÐILL Mild og sterk skata Tindabikkja Skötustappa tvær tegundir (vestfirsk og hvítlauks stappa) Saltfiskur Plokkfiskur Síldaréttir tvær tegundir Að sjálfsögðu verða á boðstólum sjóðandi heitir hamsar og hnoðmör, hangiflot, kartöflur, rófur, smjör og rúgbrauð. Eftirréttur. Jólagrautur með rúsínum og kanilsykri www.veislulist.is Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Verð kr. 3.600 Húsið opnar kl 11:30. Verð fyrir fyrirtæki sem eru í hádegisáskrift hjá okkur er kr. 3.000. Þarf að panta fyrirfram. Óskum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.pr.mann Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.