Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Qupperneq 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Qupperneq 40
Tíska Frida Giannini kveður Gucci AFP AFP *Frida Giannini, yfirhönnuður Gucci, hefurkvatt tískuhúsið ásamt unnusta sínum, Patri-zio di Marco, framkvæmdastjóra Gucci, semeinnig var sagt upp störfum í vikunni. Gucci erí eigu Kering sem staðfesti þessar fregnir í vik-unni. Giannini sýnir því síðustu línu sína fyrirtískuhúsið næstkomandi febrúar, en ekki er vitað hver kemur í hennar stað sem yfirhönn- uður Gucci. H vernig skilgreinir þú stíl? Þegar kona er sjálfsörugg í föt- unum sem hún velur og stendur með sínu vali burtséð frá tískustraumum. Ég fylgi t.d. ekki tískunni heldur vel það sem mér finnst flott, ekki hvað öðrum finnst. Áttu þér uppáhaldsflík eða -fylgihlut? Fyrsta sem mér dettur í hug er Imperial-leðurjakki og skór frá Strategia sem ég nota við öll tæki- færi og svo er nýja Chanel-„clutchið“ mitt í algjöru uppáhaldi núna. Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt? Einföld snið og góð efni og að flíkin passi við flestallt í fataskápnum mínum. Hvert er eftirlætistískutímabil þitt og hvers vegna? Þau eru svo mörg. Margt flott hefur komið í öllum tímabilum en ætli ég velji ekki 1966-1976, þá er mikil umbreyting í fatastíl og frelsið algjört. Þá kem- ur líka mikið af góðum efnum og svo voru förðun og hár æðisleg þá. Þetta var tímabil sem gaf okkur stíl sem hefur að mörgu leyti haldist, kemur alltaf inn reglulega og meira en önnur tímabil sem ég man eft- ir. Hvernig myndir þú lýsa fatastíl þínum? Frekar klassískur, einfaldur og föt sem endast, elska öll fötin mín og vil að þau endist, fæ ekki leið á þeim. Áttu einhverja dýrmæta flík sem þú tímir ekki að nota? Nei, til hvers að eiga eitthvað flott sem maður tímir ekki að nota? Ég nota öll föt jafnt. Hvaðan sækir þú innblástur? Úr umhverfinu og fólki í kringum mig. Svo er heilinn alltaf fullur af hugmyndum og hef ég gjarnan hannað, saumað eða prjónað ef mér dettur í hug þegar flíkin sem mig langar í er ekki til. Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna? Maskari og rauður dökkur varalitur eða gloss. Áttu þér einhverja tískufyrirmynd? Ætli það sé ekki bara Coco Cha- nel, hún kom konum í buxur og gaf okkur frelsi til að skapa okkar eigin stíl. Hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns? Ætli það sé ekki bara síður pels sem ég eignaðist fyrir 32 árum og hef notað rosalega mikið, meira að segja leikið mér í snjónum (sem ég geri reglulega) í honum. EINFÖLD SNIÐ OG GÓÐ EFNI MIKILVÆG Sesselja er ávallt glæsi- lega til fara og klæðir sig fremur eftir eigin sann- færingu en ákveðnum tískustraumum. AFP Innblástur úr umhverfinu SESSELJA SVEINBJÖRNSDÓTTIR SÉR UM ÞJÁLFUN OG VINNUR VIÐ ALMANNATENGSL FYRIR SNYRTIVÖRUSVIÐ NATHANS & OLSEN. SESSELJA ER MEÐ FLOTTAN FATASTÍL OG HELDUR UPP Á KLASSÍSKAR FLÍKUR. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Skór frá Strategia eru í uppáhaldi hjá Sesselju. Coco Chanel gaf konum frelsi til þess að skapa eigin stíl. Maskari og rauður varalitur eru nauðsynlegir í snyrti- töskuna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.