Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Síða 43

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Síða 43
Laugavegi 34, 101 Reykjavík Sími: 551 4301 | gudsteinn.is Guðsteins Eyjólfssonar sf V E R S L U N SKYRTURVERÐ FRÁ4.900 kr TREFLARVERÐ FRÁ3.900 kr HANSKARVERÐ FRÁ3.900 kr HÚFUR VERÐ FRÁ5.900 kr NÁTTFÖTVERÐ FRÁ7.900 kr ÞVERSLAUFURVERÐ FRÁ2.200 kr OPIÐ: Laugardag 20. des. 10 til 22 sunnudag 21. des. 13 til 22 mánudag 22. des. 9 til 22 þriðjudag 23. des. 9 til 23 aðfangadag 24. des. 10 til 12 laugardag 27. des. 12 til 16 21.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43 Þ að er ekki tekið út með sældinni að hafa sama bíla- smekk og eldri menn í laugardagsfötum. Því hefur mamma nú aldeilis fengið að finna fyrir síðustu vikuna og er ekki skemmt. Þetta myndi kannski sleppa ef mamma væri hætt að vinna eins og mennirnir í laugardagsfötunum, en að koma sér upp í Hádegismóa á hverjum degi og keyra börnin í skólann er að verða dálítið vondur brandari … Í haust lenti mamma á trúnó með mönnunum á dekkja- verkstæðinu og þeir voru nú aldeilis með það á hreinu að mamma gæti ekki lifað nema að kaupa splunkuný nagla- dekk undir bílinn. Og jú, þetta hefur gengið ágætlega hing- að til, eða þangað til það fór að snjóa fyrir alvöru og Kári fór að blása. Mamma fer bara ekkert ofan að því að henni finnst veru- lega að sér vegið. Henni finnst hún nefnilega pínulítið missa sjálfsvirðinguna þegar hún neyðist að ferðast á milli staða í gúmmístígvélum … (líka þótt þau séu frá Hunter og séu með hæl). Þetta er bara ekki alveg hennar stæll og heldur ekki að þurfa að vera alla daga með hárið í tagli svo lokkarnir fjúki bara ekki af eða klemmist á milli einhvers staðar. Svo finnst mömmu hún vera alveg komin á síðasta söludag þegar hún þarf að ferðast um bæinn í hnésíðri dúnkápu. Hún velti því fyrir sér í vikunni hvort sjoppu- gangurinn gæti orðið meiri? Svo þurfti mamma líka að láta skinka sig svolítið upp fyrir jólin og það þurfti allt að gerast í þessari viku. Mamma getur nefnilega ekki haldið jól með grá hár og svo þurfti að lagfæra ýmislegt annað sem ekki verður tíundað hér. Á fyrsta ófærð- ardeginum var mamma ekki komin í gúmmístígvélin því hún var ennþá að reyna að vera töff og upplifði sig algerlega nið- urlægða þar sem hún sat föst á bílaplani fyrir utan hár- greiðslustofu í 110. En það er alltaf ljós í myrkrinu og þegar mamma sá litla gangstéttagröfu koma á hægri siglingu upp brekkuna stökk mamma út úr bílnum og blikkaði starfsmann Reykjavík- urborgar og grátbað hann að ryðja nú aðeins bílaplanið sem mamma sat föst á. Og svo bað hún þennan indæla borg- arstarfsmann líka aðeins um að ýta sér … Hún þurfti nefni- lega að komast í bæinn og hafði engan tíma í þetta rugl … Þegar mamma var komin upp á Ártúnshöfða ákvað bíllinn fyrir framan hana að stoppa á ljósum sem gerði það að verk- um að mamma festist á brúnni þarna fyrir ofan Ártúnsbrekk- una. Á þessum tímapunkti var taugakerfi mömmu svolítið far- ið að gefa sig og þá mundi hún eftir töfraorðunum frá starfsmanni Reykjavíkurborgar sem sagði henni örfáum augnablikum áður að það væri bara eitt í stöðunni – að stand- ’ann flatan! martamaria@mbl.is Það getur farið illa með sjálfsvirðinguna að þurfa að ferðast milli staða í gúmmístígvélum. Getty Images Að stand’ann flatan … Getty Images

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.