Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014
H
ann er nú enginn Einstein,“
segja menn stundum um fjar-
staddan, þegar gera skal lítið úr
honum, án þess að segja beinlín-
is neitt ljótt, sem hafa megi eft-
ir. Þetta fellur oft í góðan jarð-
veg og þeir í kring glotta á kostnað hins fjarstadda eða
kinka kolli, rétt eins og þeir og snjallyrðismaðurinn séu
smáafsteypur af ofurmenninu.
Mannkynshræringur
Menn á borð við Albert Einstein eru ekki einungis
hafðir til vafasamrar viðmiðunar af þessu tagi. Í þá er
vitnað ótt og títt, enda ekki lakara ef önnur rök skortir.
En jafnvel þótt frómir menn og óljúgfróðir eigi hlut að,
er töluverð hætta á því að með fljóti sitthvað sem Ein-
stein og þeir aðrir hafa aldrei sagt og væri þvert um
geð að tengt væri við þá. Bréfritari tekur áhættuna af
því að detta í slíkan pytt. Hann þykist hafa heyrt haft
eftir Albert Einstein, að áður en alltof langur tími líði
frá muni mannkynið verða orðið eins á litið. Þetta átti
að gerast á tiltölulega skömmum tíma. En rétt er að
hafa í huga að Einstein hugsaði gjarnan í ljósárum í
sinni lögmálagerð. Sjálfsagt mætti sannreyna meinta
tilvitnun með því að ræsa netið til leitar. En því er
sleppt. Helst þykjast menn muna að Einstein hafi talið
að mannkynið myndi verða brúnleitt, svona eins og Ís-
lendingar þrá að vera eftir 3 vikur á Costa del Sol. Ein-
stein hefur ekki þurft flóknar formúlur til að komast að
þessum niðurstöðum. Hann hefur séð að jörðin skrepp-
ur hratt saman, í óeiginlegri merkingu, og svo er það
aflið, sem Einstein, með allar sínar gáfur, náði ekki að
læsa í formúlu. Ástin.
Einhver hefur kannski sent honum, í lauslegri þýð-
ingu, ljóð Tómasar, sem upplýsir að hjörtunum svipi
saman í Súdan og Grímsnesinu.
Phileas Fogg vann frægt veðmál og ógrynni fjár, er
hann komst á 80 dögum umhverfis jörðina. Það gerði
Fogg að vísu án viðkomu á Íslandi, sem gerir sögu
hans ótrúverðugri. Ekki Íslandsvinur, Phileas Fogg.
En nú gæti Phileas farið umhverfis jörðina á
skemmri tíma en Íslendingar fóru undan Eyjafjöll-
unum suður til Reykjavíkur (sem er raunar í annarri
átt) og enginn nennti að veðja við hann um ferðina.
Jarðarbúar lifa nú allir í næsta nágrenni og því verða
aðalskipulög væntanlega færð frá sveitarstjórnum og
undir Allsherjarþing S.þ. áður varir. Tvö skilyrði liggja
þar með fyrir. Það fyrra að heimslýðurinn búi allur á
sömu torfunni, og hitt er doktorsniðurstaða Tómasar
skálds um að hjörtunum svipi saman í Súdan og Gríms-
nesinu.
Þar með er mannkynið komið í blandarann eina og
sanna og kemur þaðan út ljósbrúnt og brúneygt.
Rasandi rasistafræðingar
Þar með eiga þeir sem flokka menn til góðs eða ills,
gáfna eða heimsku eftir skrokklit ekki lengur í nein
hús að venda. Nú þarf lítið til að hreytt sé „rasisti“ í
menn þegar fyrirferðarmestu kjánarnir telja sig hafa
fengið síðustu töluna í bingóinu sjái þeir orðið múlatti
notað eftir merkingu sinni.
En þegar spá Einsteins hefur fullkomnast verður
væntanlega skollinn á undurblíður friður.
Sagan sýnir að þeir sem upphefja sig á kostnað fólks
annarrar gerðar, þurfa ekki litinn til. Mörg dæmin má
nefna. Andúðin á gyðingum víða, og ofsóknir nasista
Reykjavíkurbréf 19.12.14
Olía, umræðubann
og aðventulok