Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Page 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Page 57
lítil að það var á reiki hvernig ætti að telja. En myndirnar eru marg- ar. Hver síða er nýtt til hins ýtrasta. Það var tekist á um síðufjöld- ann. Ég hefði viljað hafa bókina enn þykkari.“ Mikilvægar upplýsingar um horfin býli – Á þeirri rúmu öld sem bókin fjallar um hefur búskapur í landinu breyst gríðarmikið og þessi byggð meira en margar aðrar. „Jú jú, og ég upplifði það sjálfur. Kannski gat ég ekki skrifað al- veg nógu mikið um það en samt skín það alls staðar í gegn, í sögnum um fólkið og bæina. Í dag er bara búið kringum Reykhóla; það er á Reykjanesinu, þar inn af, í Króksfirði, Geiradal og Gilsfirði. Hitt er mestallt farið í eyði, Þorskafjörðurinn allur en svo eru Djúpidalur og Gufudalirnir og Skálanes í byggð, þar fyrir vestan er engin heils- ársbyggð. Í eyjunum er aðeins búið í Flatey. Ég vildi sérstaklega varpa ljósi á horfin býli, eins og Teigsskóg, Barm og Miðhús í Djúpafirði, Grónes og býlin í botni Kerlingar- fjarðar. Stundum missti ég frá mér upplýsingar þegar fólk hreinlega dó frá mér en það er ekkert hægt að gera við því. En mér fannst mikilvægt að fjalla um horfnu býlin og þótti til dæmis vænt um að fá myndir af fólkinu og húsinu í Teigsskógi, frá Hlíð í Þorskafirði og Hjöllum þar í firðinum, svo ég nefni dæmi. Ég lagði ofuráherslu á að fá upplýsingar um þessi horfnu býli. Þar var meira hulið fyrir fram- tíðina.“ – Það hlýtur að hafa verið sérkennilegt að upplifa það að sjá bú- skap hætta á hverri jörðinni á fætur annarri? „Jú, fólkið fór og kvaddi. Ég lenti í því sjálfur, 1975 fórum við frá Skálmarnesmúla. Þetta stendur manni nærri.“ Og Finnbogi annast einnig gamla kirkju þar heima, bændakirkju í gamla kerfinu eins og hann segir. „Ég vil halda henni við eins og kostur er, hún er í þokkalegu standi en þarf stöðugt viðhald.“ – Þegar búskapur breytist svona mikið, verður rit eins og þetta þá ekki enn mikilvægara en ella, til að halda heimildum til haga? „Það myndi ég telja,“ svarar Finnbogi. „Þetta er mjög mynda- snautt hérað í söfnum landsins, það er erfitt að finna þaðan ljós- myndir. Ég fann mjög fáa gullmola í myndasöfnum en mest fékk ég í einkasöfnum af gömlum myndum. Ég þurfti að nota ættartölur til að rekja mig í átt að myndum, hringja og falast eftir þeim. Þegar komið er í þriðju kynslóð frá ábúendum er þetta stundum gleymt og glatað en sums staðar náði maður í gamalt fólk, eldklárt, þess vegna eru margar ævagamlar hópmyndir í bókinni. Þær koma frá þessu gamla fólki, sem margt er komið yfir áttrætt eða nírætt. Það mundi nöfn fólksins á myndunum.“ Þá hafi margir lesið textann yfir, komið með góðar ábendingar og færir Finnbogi þeim þakkir fyrir. Þetta er fyrsta bókin sem Finnbogi tekur saman en hann hefur áð- ur skrifað greinar í Árbókina eins og áður segir. Finnbogi er annars málarameistari og hefur húsamálun verið hans atvinna. Þetta er tals- vert önnur iðja, að sitja við, grúska og skrifa. Hefur það ekki verið gaman? „Jú, þetta er mikið áhugamál. Ég held áfram að skrifa, byrjaði strax eftir að bókin fór í prentun,“ segir hann. Og næst er það saga kirkjunnar hans á Skálmarnesmúla sem birtist kannski í næstu Ár- bók sögufélags sýslunnar. Skálmarnesmúlakirkja, bændakirkjan sem Finnbogi annast um á æsku- slóðum. „Ég vil halda henni við eins og kostur er,“ segir hann. Ljósmynd/Finnbogi Jónsson Sýningu Daníels Björns- sonar, Bismút, lýkur í Kling & Bang gallerí við Hverfisgötu í dag, laugardag. Af því tilefni er boðið til lokahófs þar klukkan 15 og verður fagnað útgáfu ritsins „Hug- leiðingar um verk Daníels Björns- sonar og annað“ sem byggt er á við- tölum sem Ingibjörg Sigurjóns- dóttir tók við hann. 2 hjá nútímamönnum. Við vorum að fljúgast á öll kvöld og fyrir vikið lærði maður ekki nokkurn skapaðan hlut, þetta var svo gaman. Og hollt. Ég vil láta taka þetta upp á skemmtistöðum, það þarf ekki nema tvær dýnur. Svo tók ég jólapróf í landsprófi og fékk 4,12. Ég sá að ég yrði að taka mig á, hætti eftir jólin að mæta í tíma, sat heima og reiknaði algebru sjálfur og fór svo á fæt- ur um hádegi. Aldrei var gerð athugsemd við það. Og við að mæta ekki í tíma hækkaði ég upp í átta komma eitthvað … Ég fór svo í MR og MA líka, kláraði stúd- entinn þar, fór suður í læknadeildina og þar breyttist ég í hálfgerðan fagidíót.“ Valgarður bjó næstum átta ár í London og byrjaði ekki að fara aftur norður á æskuslóð- irnar fyrr en hann flutti aftur heim, fór þá með Ferðafélaginu, með læknastúdenta, fjöl- skyldu og fleiri. Það hlóð utan á sig. Auk þess að starfa sem læknir og vísindamaður á sviði krabbameinsfræða hefur hann síðan lengi fengist við að skrifa og sent frá sér ljóð og sögur. Er það árátta? „Það eru gen á bak við þetta. Faðir minn skrifaði og bróðir minn Egill eðlisfræðingur skrifaði og aftur í ættinni eru smiðir í stórum stíl. Það er líkt að vinna í tré og í orðum.“ – Ætlar þú að halda áfram og skoða æsku og þinn heim í texta? „Það getur vel verið. Margt er ósagt. Ég hneigist líka til almennrar fræðimennsku, sagnfræði og þjóðfræði þessa svæðis. Það er skrítið, maður getur komið að þessu aftur og aftur og skoðað það sífellt með nýjum aug- um og séð eitthvað nýtt.“ – Ertu að bjarga heimildum og sögnum? „Á ég ekki bara að svara því játandi?“ Það er ótrúlegt hvað veröldin hefur breyst mikið. Afi minn varð vitni að því þegar menn voru negldir. Það var gert ef einhverjir höfðu tekið líf sitt og gengið aftur, þá voru þeir grafnir upp og járn neglt í iljar þeim,“ segir Valgarður Egilsson sem er hér í garði sínum og gefur fuglum. Morgunblaðið/Ómar 21.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Hinni merku sýningu Silfur Íslands er að ljúka í Þjóð- minjasafninu. Um helgina verður boðið upp á síðustu leiðsögnina um hana þegar Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir sýningarstjóri gengur kl. 14 á morgun, sunnudag, með gestum um sýninguna í Bogasal. 4 Hin vinsæla og metnaðarfulla jólasýning Árbæjarsafns er sýnd í síðasta skipti fyrir jól á sunnudag milli klukkan 13 og 17. Gestir fá að kynnast jól- unum eins og þau voru hér áður fyrr. 5 Athyglisverðri sýningu Guð- nýjar Guðmundsdóttur myndlistarkonu, sem búsett er í Þýskalandi, lýkur í Týs- galleríi, Týsgötu 3, nú um helgina. Myndheimur Guðnýjar er draum- kenndur og sýnir hún að þessu sinni teikningar og þrívíð verk frá undan- förnum tveimur árum. 3 Leikhópurinn Soðið svið hef- ur í samstarfi við Þjóðleik- húsið aftur tekið upp sýningar á Hættuför í Huliðsdal eftir Sölku Guðmundsdóttur. Þrjár sýningar eru um helgina á þessari skemmtilegu sýningu fyrir ævin- týrafólk á öllum aldri. MÆLT MEÐ 1

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.