Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Qupperneq 58
58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014
BÓK VIKUNNAR Jólin hans Hallgríms eftir Steinunni Jó-
hannesdóttur er barnabók um jól Hallgríms Péturssonar þegar
hann er sjö ára gamall. Anna Cynthia Leplar myndskreytir.
Bækur
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR
kolbrun@mbl.is
Úr fórum mínum er listaverkabókmeð rúmlega 60 litmyndum afmálverkum Eddu Heiðrúnar
Backman. Guðmundur Andri Thorsson
skrifar formála sem er bæði á íslensku og
ensku og Martin Regal sá um ensku þýð-
inguna. Í formálanum segir Guðmundur
Andri að í myndum Eddu sé að finna „al-
úð, listfengi, hugvit og fegurð“. Alexandra
Baldursdóttir sá um umbrot bókarinnar
og tók einnig að sér hönnun ásamt Sunn-
evu Ásu Weisshappel. „Þetta fólk hefur
veg og vanda af útgáfunni og á skilið
miklar þakkir,“ segir Edda. Bók hennar
er til sölu í Líf og list, Gallerí bakarí og
Pennanum Eymundsson
Af hverju byrjaðir þú að mála?
„Ég byrjaði að mála árið 2010 til að
hafa ofan af fyrir mér. Mér leist ekki á
blikuna. Það er mjög mikilvægt að hafa
eitthvað fyrir stafni og hafa áhuga á ein-
hverju en ekki bara stara út í bláinn,“
segir Edda.
Hún er ekki myndlistarmenntuð, sem
kemur á óvart miðað við þá færni sem
hún sýnir í myndum sínum. „Ég var í
myndmennt í skóla eins og allir, en kom
annars ekki nálægt myndlistargerð. Ég
man að þegar ég var í menntaskóla sagði
ein skólasystir við mig: Þú veist Edda mín
að þú ert ágæt leikkona en þú ert líka
myndlistarmaður.“
Hún málar með munninum. „Þetta er
alþekkt aðferð en kostar þjálfun,“ segir
hún. „Það er mismunandi hvaða verkfæri
myndlistarmenn nota. Sumir myndlist-
armenn nota kræklótta grein í stað pens-
ils til að línan verði ekki stíf. Myndina
sem er á bókarkápunni, og er módelmynd,
málaði ég með bambus sem er eins og
hálfs metra langur og blaðið var á gólf-
inu.“
Hún segist mála flesta daga, en ekki á
laugardögum og sunnudögum. „Þá daga
skemmti ég mér, fer á sýningar og söfn,
hitti góða vini og borða góðan mat. Allt er
þetta mjög mikilvægt.“
Fyrir nokkrum árum greindist Edda
Heiðrún með MND-sjúkdóminn. Hún segir
að ekki hvarfli að sér að vorkenna sér í
veikindum sínum: „Ef ég hefði ekki veikst,
þá hefði ég aldrei kynnst því frábæra
fólki sem gerir okkur, sem höfum lent í
erfiðleikum, kleift að lifa lífinu og njóta
þess eins og hægt er. Til dæmis öku-
mönnum ferðaþjónustu fatlaðra, heima-
hjúkrun, sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum og
skjólstæðingum MS-setursins og Grensáss.
Svo ég tali nú ekki um e-liðið, stuðnings-
teymið mitt.“
Jólin nálgast og hún er spurð hvort hún
sé jólabarn og svarar: „Líklega er ég jóla-
barn. Það lýsir sér í því að mér finnst
gaman að gefa. Ég byrjaði að kaupa jóla-
gjafir í október og kaupi helst margar
gjafir handa hverjum og einum.“
EDDA HEIÐRÚN ER JÓLABARN OG FINNST GAMAN AÐ GEFA
Hugvit og fegurð
„Það er mjög mikilvægt að hafa eitthvað fyrir stafni og hafa áhuga á einhverju en ekki bara
stara út í bláinn,“ segir Edda.
Morgunblaðið/Kristinn
ÚT ER KOMIN LISTAVERKABÓK SEM GEYMIR MYNDIR AF MÁLVERKUM EDDU HEIÐRÚNAR BACKMAN.
HÚN SEGIR MIKILVÆGT AÐ HAFA EITTHVAÐ FYRIR STAFNI.
Ýmsar bækur hafa fylgt mér býsna lengi. Ég hef til dæmis lesið Einar
Kárason frá því að Þetta eru asnar Guðjón kom út fyrir rúmlega
þrjátíu árum. Sú ágæta bók hefur allar götur síðan skipað sérstakan
sess í huga mér og ýmsir frasar úr henni fest mér í
minni.
Sömu sögu má segja um Íslandsklukkuna sem
ég hef lesið oftar en ég get tölu á komið. Og ég held
ég kunni enn nánast utan að leikgerðina sem Fálkinn
gaf út á fjórum plötum forðum daga. Jón Hregg-
viðsson er oftast minn maður, stundum Snæfríður
en sjaldnar Arnas.
Leigjandann eftir Svövu Jakobsdóttur upp-
götvaði ég seint og um síðir en mér fannst ég aldrei
þurfa að lesa hann, manni hafði verið sagt að þetta
væri dæmi um einfalda allegoríu en ekkert er fjær sanni.
Ljóðabók Ingibjargar Haraldsdóttur, Nú eru aðrir tímar,
hafði mikil áhrif á mig þegar hún kom út. Sum ljóðin lærði ég utan að
þegar í stað, svo sem Nostalgíu og titilljóð bókarinnar, Nú eru aðrir
tímar.
Eftir rúmlega tuttugu ára feril í bókaútgáfu standa margir frábærir
höfundar mér býsna nærri. Það væri hinsvegar eins og að gera upp á
milli barnanna sinna að draga fram einn umfram annan. Samt get ég
ekki stillt mig um að nefna eina skáldsögu sem hræddi úr mér líftór-
una eins og öðrum lesendum heima og erlendis – þó vildi höfund-
urinn draga hana til baka á síðustu stundu af því að hún væri ekki al-
veg nógu hrollvekjandi. Þetta var Ég man þig eftir Yrsu
Sigurðardóttur.
Í UPPÁHALDI
PÉTUR MÁR ÓLAFSSON
ÚTGÁFUSTJÓRI
Pétur Már Ólafsson hefur starfað í bókaútgáfu í rúm tuttugu ár. Ein skáld-
saga hræddi úr honum líftóruna og það er Ég man þig eftir Yrsu.
Morgunblaðið/Kristinn
Ingibjörg Haralds-
dóttir
BÓKSALA 8.-14. DESEMBER
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Kamp KnoxArnaldur Indriðason
2 DNAYrsa Sigurðardóttir
3 Útkall : ÖrlagaskotiðÓttar Sveinsson
4 ÖræfiÓfeigur Sigurðsson
5 Þín eigin þjóðsagaÆvar Þór Benediktsson
6 Sveitin í sálinniEggert Þór Bernharðsson
7 Gula spjaldið í GautaborgGunnar Helgason
8 LjónatemjarinnCamilla Läckberg
9 Saga þeirra, sagan mínHelga Guðrún Johnson
10 Vísindabók Villa 2Vilhelm Anton Jónsson
Íslensk skáldverk
1 Kamp KnoxArnaldur Indriðason
2 DNAYrsa Sigurðardóttir
3 ÖræfiÓfeigur Sigurðsson
4 VonarlandiðKristín Steinsdóttir
5 SkálmöldEinar Kárason
6 KataSteinar Bragi
7 Litlu dauðarnirStefán Máni
8 TáningabókSigurður Pálsson
9 EnglarykGuðrún Eva Mínervudóttir
10 Þrír sneru afturGuðbergur Bergsson