Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1994, Page 71

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1994, Page 71
inni við þetta tækifæri, og niðri hana til að uppheíja sjálfa sig, veit Bloom að við réttar aðstæður mundu þessir sömu menn falla íyrir henni. Hann hugsar: „Það er svosem gott og blessað að gera gys að því núna þarsem það stendur svart á hvítu, en þetta þvaður gengur í mann einsog heitar lummur. Var hann ekki líka í bakarabransanum?“ (bls. 128). Og fljótlega kemur í ljós að skrúðmælgin er einmitt það sem heillar þessa Dyflinnarbúa framar öllu öðru. Lögmaðurinn O’Molloy vitnar í ræðu Bushe hæstaréttarlögmanns sem dæmi um frábæra málsnilld. Tilvitnunin er í lýsingu á styttu Michaelangelos af Móse (bls. 140) og er reyndar næstum því eins uppskrúfuð og belgingsleg og ræða bakarans. Nú falla áheyrendur hins vegar í stafi yfir andagiffinni. Bloom er ekki viðstaddur, en það er Stephen hins vegar og viðbragð hans er athyglisvert: „Stephen roðnaði, þareð blóð hans heillaðist af þokka máls og látbragðs.“ (bls. 141). Hann roðnar vegna þess að hann skammast sín fyrir að vera nærri tilbúinn að falla fyrir þeim freistingum málskrúðsins sem hann veit hann verður að standast, ef hann á ekki að verða jafn andlega lamaður af innantómu gaspri og landar hans. Prófessorinn rifjar síðan upp „glæsilegasta dæmi mælskulistar“ sem hann hefur orðið vitni að (bls. 142-144) og fer með kafla úr ræðu sem Taylor nokkur hafði flutt í sögufélagi háskólans, þar sem hann beitir mælskulist sinni til að sannfæra menn um að írum beri að tala írsku, með því að bera þá saman við ísraelslýð í Egyptalandi. Þetta er stórum betri ræða en hinar tvær og enn er Stephens freistað, hann hugsar: „Göfug orð eru í vændum. Gættu að. Gætirðu sjálfur reynt til við það?“ (bls. 143). Freisting Stephens er hér fólgin í því að ganga írlandi á hönd, berjast fyrir málstað þess með hefðbundnum vopnum skrúðmælginnar. En það er einmitt allt þetta sem Stephen er að reyna að rífa sig lausan frá. Þegar prófessorinn lýsir yfir hrifningu sinni á þessari mælskulist andmælir Stephen ekki, en honum verður hugsað til fjöldafundanna miklu í Tara 1843, þar sem uppundir miljón manns komu til þessa forna konungsseturs til að hlýða á mælsku O’Donnells, en nú eru orð hans fokin burt með vindinum (bls. 144). Stephen veit það liggur fyrir honum að freista þess að skapa eitthvað varanlegra en mælsku af þessu tagi og í lok kaflans tekur hann stökkið og semur dæmisög- una um piparmeyjarnar, sem vikið verður að síðar. En þegar Crawford ritstjóri hvetur Stephen til að skrifa fyrir sig í blaðið biður hann um: „... eitthvað sem bragð er að. Hafið okkur alla með í því, fjandinn hafi það. Föður, Son og Heilagan anda og alla heilu hersinguna." (bls. 136). Þetta hljómar eins og uppskrift að sjálfum Ódysseifi (Stephen er auðvitað að miklu leyti sjálfsmynd Joyce), enda þótt bókin sú hefði tæpast orðið ritstjóranum að skapi. Eitt atriði enn auðkennir stíl og frásagnaraðferð Eólosare n það er notkun TMM 1994:1 6l
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.