Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1994, Side 100

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1994, Side 100
selinn til höggs gegn bókinni", bls. 91-102) þar sem Guðbergur Bergsson rithöfundur greinir samtímaveruleika okkar út frá þessari hugmynd um afturgönguna og lýsir hvernig öfl sem hann kennir við afturhald ryðjast nú fram á sjónarsviðið að nýju. Sá háski sem samfélaginu er búinn af draugun- um sé jafnvel enn meiri en sá sem stafaði af sömu hugmyndum á meðan þær voru í fullu fjöri því að hans mati hafa þeir draugar sem sveima um í samtímanum öðlast nýjan ki'aft við uppvakninguna sem gerir þá um margt erfiða viðureignar, einkum þar sem fjölmennir hópar fólks eru nú á valdi þeirra. Hann telur einnig að helstu einkenni þessara reimleika og þeirrar hnignunar sem er fylgifiskur þeirra birtist afar vel í stuttri umfjöllun sem ég skrifaði um viðta\sbókina:Guðbergur Bergsson metsölubóke ftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur (Forlagið 1992) fyrirTMM 2/1993 (bls. 96-98). Þessi einkenni eru einkum: 1) Hörmuleg afleiðing lítillar menntunar þrátt fyrir langan skólalærdóm eða þá vegna hans, 2) ofurvald kvennafræða, fjölmiðla og markaðshyggju í samtímanum, 3) römm tvíhyggja þessara afla sem útilokar alla frjálsa og óvilhalla hugsun, 4) fordild í garð umbyltingarafla í samfélag- inu en einkum þó í listum sem byggir á valdahroka og yfirgangi, s.s. „við vitum betur“ viðhorfið sem kæfir allt sem er sjálfsprottið og upprunalegt. Þessi samfélagsgreining á vissulega vel við marga þá þætti sem vega þungt í samtímanum og í henni felst einnig nauðsynleg rýni í sögulegar rætur þeirra. Þetta á til að mynda um hvernig tvíhyggjuviðhorf hinna „skýru lína“ nær að vera enn svo sterkt í samtímanum þrátt fyrir að panturinn sem baráttan á þjóðmálavettvanginum taldi sig eiga í listinni eigi nú að hafa verið leystur út. Samtímaumræðan um listir en einkum þó um bókmenntir er enn of föst í því að finna samnefnara, að vera með eða á móti hinu og þessu og það er hárrétt hjá Guðbergi að hún hefur ekki nægilega treyst sér upp úr holunum sem hún gróf sér þegar tímarnir voru aðrir og menn voru að bregðast við öðrum aðstæðum. Hinar hreinu línur eru því vissulega í hróplegu ósamræmi við „ ... það grugguga hugsanalíf og hegðun, siðgæði og stjórnmál, atvinnulíf og óheiðarleikann sem blasir við jafhvel hálfblind- um skilningi11 (94-95), eins og Guðbergur kemst að orði. Spurningin er hins vegar hvort umfjöllun hans sjálfs sé öðru marki brennd eða hvort hann sjáist ekki fyrir í greiningu sinni þannig að sú áhersla sem þar er lögð á opinn huga og fordómaleysi sé rifin jafnóðum niður af hinu einstrengingslega mati sem sér hnignunina birtast nánast blæbrigðalaust í flestum kimum samfélagsins. Það má líta aðeins nánar á þetta atriði í ljósi umfjöllunarinnar um menntunina eða öllu heldur það hlutverk sem menntunin hefur í nútíma- samfélaginu. Hér er það einmitt greining ástandsins sem er hvað athyglis- verðust. Guðbergur ræðst mjög harkalega gegn tæknihyggjunni sem 90 TMM 1994:1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.