Ský - 01.01.2006, Blaðsíða 9
sk‡ 9
Stutt og laggott
K
jaftfor glysgella sem ögrar öllum í kringum sig. Hálf-
gerður anti-kristur sem trúir að kaupa megi öll heimsins
gæði og verulega ýkt persóna. Á þessa lund má lýsa sjón-
varpsfígúrunni Silvíu Nótt, sem slegið hefur rækilega í
gegn síðustu mánuði og var meðal annars kjörin Sjónvarpsmaður
ársins á Edduhátíðinni sl. haust, kynþokkafyllsta kona landsins og
fulltrúi Íslands í Evróvisjón. Hún er sannfærandi vegna raunveru-
legrar skírskotunar til samtímans og margir trúa margir að hún sé
til. En Silvía Nótt finnst hvorki í símaskrá né finnst í katalógum
Hagstofunnar, þó svo hún komi upp á 32 þúsund heimasíðum á
Netinu sé nafn hennar slegið inn á leitarvélina Google. Talan er nán-
ast ýkjukennd, en dagsönn þó.
Stórskemmtileg og hæfileikarík stelpa
En hver er stúlkan að baki Silvíu Nótt? Sú heitir Ágústa Eva
Erlendsdóttir, 23ja ára Reykjavíkurmær, dóttir þeirra Sig-
urdísar Sveinsdóttur textílhönnuðar og Erlends Magn-
ússonar, húsasmiðs og tréskurðarmeistara. Hún er
uppalin í Hveragerði og síðar á Hvolsvelli, þar sem
faðir hennar reisti á sínum tíma lítið víkingaþorp
í útjaðri byggðarinnar. Stúlkan á því ekki langt að
sækja listræna hæfileika. Eftir grunnskóla
lá leiðin aftur til borgarinnar, þar
sem Ágústa Eva nam við Menntaskólann í Kópavogi. Kom þá nærri
leiklist í félagsstarfi skólans og af því má ráða hvar taugar hennar og
áhugasvið liggur. Þá var hún meðal þátttakenda í uppfærslu á söng-
leiknum Hárinu í Austurbæ sumarið 2004 og á útmánuðum í fyrra
byrjaði hún að syngja með hljómsveitinni Ske.
„Ágústa Eva er stórskemmtileg og hæfileikarík stelpa. Létt á því,
kæruleysisleg en líka mjög fagmannleg í því sem hún gerir. Eðalmann-
eskja. Hún er mjög ólík Silvíu myndi ég segja, þó svo húmorinn sem
býr til Silvíu sé frá henni kominn. Hins vegar eru margar stelpur
til sem eru mjög líkar Silvíu, hvort sem fólk trúir því eða ekki.
Mér sýnist hún vera ýkt útgáfa af ákveðinni týpu sem er til,“ segir
Guðmundur Steingrímsson, forsprakki sveitarinnar, aðspurður um
söngkonuna Ágústu Evu, „Hún er góð söngkona og augljóslega fín
leikkona líka. Búin að gera megastjörnu úr karakternum sínum, sem
allir elska að hata eða hata að elska. Þetta er nokkuð góður spuni.“
Reykás og raunveruleg
Þættirnir um Silvíu Nótt fóru í loftið síðastliðið sumar á Skjá einum
og fengu strax mikla eftirtekt og náðu vinsældum. Kannski einfald-
lega vegna þess að eitthvað sannfærandi var í karakternum. Reyndar
er ekki úr vegi að skoða Silvíu í samanburði við aðrar tilbúnar sjón-
varpspersónur sem hafa orðið þjóðareign. Þar er nærtækt að
nefna Ragnar Reykás, sem Sigurður Sigurjónsson hefur
gert ódauðlegan í Spaugstofunni. Kannski vegna þess að
nóta Ragnars má svo víða finna; menn sem skipta um
skoðun eftir því hvernig vindarnir blása og tala eins
og þeir ætla að viðmælanda sínum best líki. Svo
ístöðulitlar sálir eru víða á sveimi. Og Silvía Nótt
á sömuleiðis margar sínar líkar; í markaðsþjóðfé-
lagi nútímans trúa margir hinu sama og hún;
að allt verði keypt og gleðin felist í glamúr-
num og fáist fyrst og síðast í hinu efnislega.
„Það besta við Silvíu Nótt fannst mér
að hér steig fram á sjónarsviðið persóna sem
var ýkt, en samt varð ekki betur séð en að gríð-
arlega margir héldu að hún væri raunveruleg.
Og allt þetta fólk hafði allt á hornum sér út af
henni. Var að missa sig yfir orðanotkun hennar og
íslenskukunnáttu og hvað hún væri heimsk og mikil
dræsa. Að hún skyldi til dæmis voga sér að gera grín
að fólki í Kolaportinu,“ segir Guðmundur Steingrímsson.
„Mér finnst gaman hvernig Silvía Nótt hefur laðað fram alla
þessa dómhörku í samfélaginu og látið hana dynja á sér. Það sýnir
hvað þjóðfélagið er í raun fattlaust. Ég held að þetta fattleysi hljóti að
hafa farið fram úr björtustu vonum framleiðenda þáttanna.“
Hún heitir Ágústa Eva Erlendsdóttir, 23ja ára Reykjavíkur, dóttir þeirra
Sigurdísar Sveinsdóttur textílhönnuðar og Erlends Magnússonar, húsasmiðs
og tréskurðarmeistara. Hún er uppalin í Hveragerði og síðar á Hvolsvelli.
Silvía Nótt.
Á bak við gervið
er Ágústa Eva
Erlendsdóttir
söngkona í
hljómsveitinni Ske.
Sjónvarpsgellan Silvía
Texti: Sigurður Bogi Sævarsson • Mynd: Páll Sefánsson
Stutt og laggott
sky
,