Ský - 01.01.2006, Blaðsíða 38
Stutt og laggott
eir eru orðnir nokkrir Íslandsvinirnir sem
koma úr kvikmyndabrans-
anum. Einn þeirra er kvik-
myndaleikstjórinn Eli Roth,
sem bjó hér á landi þegar
faðir hans kenndi við Háskóla
Íslands og hefur verið tíður gestur síðan.
Þegar hann var hér á ferð fyrir rúmum
tveimur árum að kynna mynd sína Cabin
Fever var Eyþór Guðjónsson fenginn sem
leiðsögumaður fyrir hann um landið, en
leiðsögn er eitt af mörgum störfum sem
Eyþór hefur stundað á viðburðaríkum ferli
í atvinnulífinu. Vinskapur tókst með þeim
Roth og áður en hann yfirgaf landið sagð-
ist hann ætla að skrifa hlutverk Íslendings
í kvikmynd og Eyþór ætti að leika hann.
Eyþór tók þessa tilkynningu Roths mátulega
alvarlega og hugsaði ekki meira um það.
Annað kom á daginn og við skulum gefa
Eyþóri orðið:
„Það er svo ári síðar að Eli mætir til lands-
ins með handritið að Hostel og bauð mér
hlutverk. Ég hélt fyrst að hann væri að gera
grín að mér, en svo var ekki, honum var full
alvara. Í fyrstu neitaði ég hlutverkinu, enda
önnum kafinn í spennandi verkefnum sem
ég vildi ekki missa tíma frá, en hlutverkið
krafðist þess að ég yrði í Prag í sex til sjö
vikur, þar að auki leist mér ekkert á hand-
ritið við fyrsta lestur.
Roth hélt áfram að hvetja mig til þess að
taka að mér hlutverkið, en hafði þó varann
á og tók nokkra íslenska leikara í prufu. Það
varð svo úr að ég lét mig hafa það að leika
í myndinni, fyrst og fremst vegna þess að
mér var lofað að meðan á kvikmyndatöku
stæði fengi ég leyfi til að skreppa þrisvar til
Íslands til að sinna mínum málum. Þar að
auki vissi ég að þetta gæti verið skemmtilegt
ævintýri.“
Sjö vikur í Prag
Þegar kom að tökum á Hostel hélt Eyþór til
Prag og vissi í raun ekkert hvað beið hans:
„Í fyrsta lagi hafði ég aldrei leikið í kvik-
mynd. Vinir mínir höfðu nefnt það við mig
að ég þyrfti að taka nokkra tíma í leiklist til
að vera ekki algjör græningi innan um þjálf-
aða leikara, en ég neitaði því, sagðist leika á
mínum forsendum. Ég hefði kannski betur
farið eftir ráðum þeirra því að leika í kvik-
mynd er mun erfiðara en mér hafði nokkru
sinni dottið í hug. Það er ekkert grín að
þurfa að bíða í langan tíma og svo allt í einu
sagt að stökkva fram fyrir kvikmyndatöku-
menn, aðstoðarmenn, aukaleikara og statista
og fara með texta á ensku og eiga þar að auki
að vera eðlilegur. Ég tala nú ekki um að þar
sem ég lék íslenskan stuðbolta átti ég einnig
að vera fyndinn því þrátt fyrir að Hostel sé
hryllingsmynd þá er húmor í myndinni, sér-
staklega fyrri hluta hennar. Þetta var samt
mjög gaman og viss áskorun sem ég tel mig
hafa staðist. Í það minnsta hef ég fengið góða
dóma hér og þar og einn virtur kvikmynda-
gagnrýnandi í Bandaríkjanna kom að máli
við mig og lýsti hrifningu yfir leik mínum.“
Hvernig skyldi svo Eyþóri hafa liðið þegar
hann fékk að sjá myndina? „Ég sá Hostel
fyrst á kvikmyndahátíðinni í Toronto og fór
á algjöran bömmer. Mér fannst ég vera asna-
legasti kvikmyndaleikari sem ég hafði séð.
Það sem gerðist var að ég einblíndi á sjálfan
mig alla myndina og tók varla eftir nokkru
öðru og horfði ekki á myndina sem heild,
heldur var að gagnrýna mig í huganum.
Þegar ég nefndi þetta við hina leikarana
sögðu þeir að ég ætti ekki að hafa áhyggjur,
þeim fyndist þeir alltaf líka asnalegir í kvik-
mynd. Þá fór mér að líða aðeins betur og
eftir því sem ég horfi oftar á myndina verð ég
sáttari við leik minn þó ég verði aldrei 100%
ánægður. Ég hef heyrt að Samuel L. Jackson
geti ekki horft á myndir sínar í fimm ár eftir
að hafa lokið við þær, vegna þess að hann sé
svo gagnrýninn á sjálfan sig. Ég er því greini-
lega ekki einn um það.“
Aðsóknarmesta
myndin í Bandaríkjunum
Að leika í kvikmynd er út af fyrir sig
merkileg reynsla fyrir þann sem ekki hefur
áður gert það og að leika í kvikmynd sem
einn daginn er aðsóknarmesta kvikmyndin í
Bandaríkjunum er svo allt annar handleggur.
Öllum á óvart fór Hostel í efsta sæti vin-
sældalistans og er ljóst að myndin er mikil
auðlind fyrir þá sem eru á prósentum af
hagnaði, en ekki komst Eyþór í þann hóp:
„Ég er hræddur um að þeir leikarar sem fá
boð um ágóðahluti þurfi að vera þekktari
en ég. Hvað um það, ég fór ekki út í þetta
ævintýri peninganna vegna, en óneitanlega
er skemmtilegt að myndin skuli ná svona
miklum vinsældum. Það kom mér samt ekki
Það er ekki auðvelt að vera
fyndinn fyrir framan kvikmynda-
vél, segir framkvæmdamað-
urinn Eyþór Guðjónsson sem
leikur eitt aðalhlutverkið í
Hostel. Hann hefur ekki hug á
áframhaldandi leiklistarferli.
38 sk‡
EYÞÓR
slær í gegn í Hostel
Viðtal: Hilmar Karlsson • Ljósmyndir: Geir Ólafsson o.fl.
Kvikmyndir